Nýtt líf
1 Bræður mínir og systur.[ Ef einhver er staðinn að misgjörð þá leiðréttið þið, sem andleg eruð, þann mann með hógværð. Og hafið gát á sjálfum ykkur að þið freistist ekki líka. 2 Berið hvert annars byrðar og uppfyllið þannig lögmál Krists. 3 Sá sem þykist vera nokkuð en er þó ekkert blekkir sjálfan sig. 4 En sérhver rannsaki breytni sjálfs sín og þá mun hann hafa hrósunarefni í samanburði við sjálfan sig en ekki í samanburði við aðra 5 því að sérhver mun verða að bera sína byrði.
6 Sá sem fær fræðslu um fagnaðarerindið veiti þeim sem uppfræðir hlutdeild með sér í öllum gæðum.
7 Villist ekki. Guð lætur ekki að sér hæða. Það sem maður sáir, það mun hann og uppskera. 8 Sá sem sáir í hold sjálfs sín mun af holdinu uppskera glötun en sá sem sáir í andann mun af andanum uppskera eilíft líf. 9 Þreytumst ekki að gera það sem gott er því að á sínum tíma munum við uppskera ef við gefumst ekki upp. 10 Þess vegna skulum við, meðan tími er til, gera öllum gott og einkum trúsystkinum okkar.
Lokaorð
11 Sjáið með hversu stórum stöfum ég skrifa ykkur með eigin hendi. 12 Þeir sem eru að þröngva ykkur til að láta umskerast gera það til að sýnast, einungis til þess að þeir verði eigi ofsóttir vegna kross Krists. 13 Því að ekki halda einu sinni sjálfir umskurnarmennirnir lögmálið heldur vilja þeir að þið látið umskerast til þess að þeir hafi eitthvað sýnilegt að stæra sig af. 14 En það sé fjarri mér að hrósa mér af öðru en krossi Drottins vors Jesú Krists. Sakir hans er ég krossfestur heiminum og heimurinn mér. 15 Umskurn eða yfirhúð skipta engu, heldur að vera ný sköpun. 16 Og yfir öllum þeim sem fylgja þessari reglu sé friður og miskunn og yfir Ísrael Guðs.
17 Enginn mæði mig héðan í frá því að ég ber merki Jesú á líkama mínum.
18 Náðin Drottins vors Jesú Krists sé með anda yðar, bræður mínir og systur.[ Amen.