1Sá sem elskar aga elskar þekkingu 
en sá sem hatar umvöndun er heimskur. 
   2Hinn góði hlýtur velþóknun Drottins 
en meinfýsinn mann fyrirdæmir hann. 
   3Ranglætið veitir engum fótfestu 
en réttlætið stendur djúpum rótum. 
   4Væn kona er kóróna manns síns 
en vond kona er sem rotnun í beinum hans. 
   5Réttlátir hyggja á réttlæti 
en ranglátir hafa svik í huga.
   6Orð ranglátra eru banvæn 
en tunga hinna réttsýnu frelsar þá. 
   7Ranglátir kollsteypast og hverfa 
en hús réttlátra stendur. 
   8Af vitsmunum sínum hlýtur maðurinn lof 
en hinn fláráði verður fyrirlitinn. 
   9Betra er að vera lítils metinn og eiga þó þræl 
en að berast á og skorta brauð. 
   10Hinn réttláti annast búfé sitt vel 
en harðneskja er í hjarta ranglátra. 
   11Sá sem yrkir land sitt mettast af brauði 
en sá sem sækist eftir hégóma er heimskur. 
   12Hinn rangláti girnist illan feng 
en hinn réttláti á sér trygga staðfestu.
   13Yfirsjón varanna er ill snara 
en hinn réttláti bjargast úr nauðum. 
   14Ávextir varanna metta mann gæðum 
og af handaverkum sínum hlýtur hann umbun.
   15Heimskingi telur sig breyta rétt 
en vitur maður þiggur ráð. 
   16Bræði afglapans birtist strax, 
greindur maður dylur gremju sína. 
   17Sannsögult vitni mælir það sem rétt er 
en falsvotturinn svik. 
   18Vanhugsuð orð eru sem sverðalög 
en tunga hins vitra græðir. 
   19Sönn orð standa að eilífu 
en lygimál aðeins skamma hríð. 
   20Svik eru í hjarta hins meinfýsna 
en sá gleðst sem stuðlar að friði.
   21Hins réttláta bíður ekkert böl 
en ógæfan hleðst á hinn rangláta. 
   22 Lygarar eru Drottni andstyggð 
en hinir sannorðu eru yndi hans. 
   23 Vitur maður dylur þekkingu sína 
en heimskinginn flíkar flónsku sinni.
   24 Hönd hinna iðnu mun drottna 
en hangandi hönd á erfiði í vændum.
   25 Hugsýki íþyngir hjartanu,
eitt vingjarnlegt orð gleður það. 
   26 Hinn réttláti vísar öðrum veginn 
en vegur ranglátra leiðir þá í villu. 
   27 Letin nær ekki bráðinni 
en iðnin er dýrmætur auður. 
   28 Á vegi réttlætisins er líf
en glæpaleiðin liggur í dauðann.  
			Orðskviðirnir 12. kafliHið íslenska biblíufélag2021-02-15T19:13:38+00:00
			
			
  
  			
			
				
																													
  
		        Orðskviðirnir 12. kafli                        
  Hægt er að nálgast texta þessa kafla í öðrum íslenskum þýðingum með því að smella á nafn þýðingarinnar hér fyrir neðan. Þýðingin opnast í nýjum glugga.    
                        
  
	