1Sá sem elskar aga, elskar þekking, en sá sem hatar umvöndun, er heimskur.2Hinn góði hlýtur velþóknun af Drottni, en hrekkvísan mann fyrirdæmir hann.3Enginn maður nær fótfestu með óguðleika, en rót hinna réttlátu mun eigi bifast.4Væn kona er kóróna manns síns, en vond kona er sem rotnun í beinum hans.5Hugsanir réttlátra stefna að rétti, en ráðagjörðir óguðlegra að svikum.6Orð óguðlegra brugga banaráð, en munnur hreinskilinna frelsar þá.7Óguðlegir kollsteypast og eru eigi framar til, en hús réttlátra stendur.8Manninum verður hrósað eftir vitsmunum hans, en sá sem er rangsnúinn í hjarta, verður fyrirlitinn.9Betra er að láta lítið yfir sér og hafa þjón en að berast mikið á og hafa ekki ofan í sig.10Hinn réttláti er nærgætinn um þörf skepna sinna, en hjarta óguðlegra er hart.11Sá sem yrkir land sitt, mettast af brauði, en sá sem sækist eftir hégómlegum hlutum, er óvitur.12Hinn óguðlegi ágirnist feng hinna vondu, en rót réttlátra er varanleg.13Yfirsjón varanna er ill snara, en hinn réttláti bjargast úr nauðum.14Af ávexti munnsins mettast maðurinn gæðum, og það sem hendur hans hafa öðrum gjört, kemur aftur yfir hann.15Afglapanum finnst sinn vegur réttur, en vitur maður hlýðir á ráð.16Gremja afglapans kemur þegar í ljós, en kænn maður dylur smán sína.17Sá sem segir sannleikann hispurslaust, mælir fram það sem rétt er, en falsvotturinn svik.18Þvaður sumra manna er sem spjótsstungur, en tunga hinna vitru græðir.19Sannmálar varir munu ávallt standast, en lygin tunga aðeins stutta stund.20Yfir svikum búa þeir, er illt brugga, en gleði valda þeir, er ráða til friðar.21Réttlátum manni ber aldrei böl að hendi, en óhamingja hleðst á óguðlega.22Lygavarir eru Drottni andstyggð, en þeir sem sannleik iðka, eru yndi hans.23Kænn maður fer dult með þekking sína, en hjarta heimskingjanna fer hátt með flónsku sína.24Hönd hinna iðnu mun drottna, en hangandi höndin verður vinnuskyld.25Hugsýki beygir manninn, en vingjarnlegt orð gleður hann.26Hinum réttláta vegnar betur en öðrum, en vegur óguðlegra leiðir þá í villu.27Letinginn nær ekki villibráðinni, en iðnin er manninum dýrmætur auður.28Á vegi réttlætisins er líf, en glæpaleiðin liggur út í dauðann.

12.3 Föstum fótum Okv 10.30+
12.6 Orð ranglátra Okv 10.31,32; 11.9; 15.28; Jes 32.6-7; sbr Okv 6.19+ – tunga réttsýnna Okv 10.21+
12.10 Umhyggja fyrir dýrum 5Mós 22.4,6-7; 25.4
12.12 Staðfesta réttlátra Jer 17.7-8; Slm 1.3; sbr Okv 11.28
12.17 Falsvottur Okv 6.19+
12.21 Hlutskipti réttlátra og ranglátra Okv 3.33+
12.22 Drottni andstyggð Okv 3.32+
12.28 Réttlæti og líf Okv 10.11+ , sbr Matt 7.13-14; Jóh 14.6