Samhuga að vilja Krists

1 Skylt er okkur, hinum styrku, að bera veikleikann með hinum óstyrku og hugsa ekki aðeins um sjálf okkur. 2 Sérhvert okkar hugsi um náunga sinn, það sem honum er til góðs og til uppbyggingar. 3 Kristur hugsaði ekki um sjálfan sig heldur eins og ritað er: „Lastyrði þeirra sem löstuðu þig lentu á mér.“ 4 Allt það sem áður er ritað er ritað okkur til fræðslu til þess að við héldum von okkar vegna þess þolgæðis og uppörvunar sem ritningarnar gefa. 5 En Guð, sem veitir þolgæðið og hugrekkið, gefi ykkur að vera samhuga að vilja Krists Jesú 6 til þess að þið einum huga og einum munni vegsamið Guð, föður Drottins vors Jesú Krists.
7 Takið því hvert annað að ykkur eins og Kristur tók ykkur að sér Guði til dýrðar. 8 Ég segi að Kristur sé orðinn þjónn hinna umskornu til að sýna orðheldni Guðs og staðfesta fyrirheitin sem gefin voru feðrunum 9 en heiðingjarnir vegsami Guð sakir miskunnar hans eins og ritað er: „Þess vegna skal ég játa þig meðal heiðingja og lofsyngja þínu nafni.“
10 Og enn segir: „Fagnið, þið heiðingjar, með lýð Guðs.“
11 Og enn: „Lofið Drottin, allar þjóðir, vegsamið hann, allir lýðir.“
12 Og enn segir Jesaja: „Koma mun rótarkvistur Ísaí og sá er rís upp til að stjórna þjóðum, á hann munu þjóðir vona.“
13 Guð vonarinnar fylli yður öllum fögnuði og friði í trúnni svo að þér séuð auðug að voninni í krafti heilags anda.

Starf og áform Páls

14 Fyrir mitt leyti er ég sannfærður um að sjálf eruð þið, góð systkin,[ svo rík að góðgirni og auðguð alls konar þekkingu að þið eruð fær um að leiðbeina hvert öðru. 15 Ég hef þó ritað ykkur, sums staðar í djarfara lagi, til þess að minna ykkur á sitthvað. Það hef ég gert af því að Guð hefur gefið mér þá náð 16 að gegna heilagri þjónustu við Krist Jesú hjá heiðingjum, vera prestur fyrir fagnaðarerindi Guðs til þess að heiðingjar mættu verða Guði velþóknanleg fórn, helguð af heilögum anda.
17 Það sem ég vinn til lofs í augum Guðs er verk Jesú Krists í mér. 18 Ekki skal ég dirfast að nefna annað en það sem Jesús Kristur hefur unnið með mér til þess að leiða heiðingja til hlýðni. Til þess hefur hann styrkt mig til orða og verka 19 með máttugum táknum og stórmerkjum í krafti heilags anda. Þannig hef ég lokið því af að boða fagnaðarerindið um Krist alla leið frá Jerúsalem og hringinn til Illýríu. 20 En það hefur verið mér metnaðarmál að boða ekki fagnaðarerindið þar sem Kristur hefur þegar verið kynntur. Ég vil ekki byggja á grunni sem annar hefur lagt. 21 Enda segir Ritningin: „Þeir skulu sjá hann sem enginn hafði frætt þá um og þeir skilja hann sem ekkert höfðu heyrt.“
22 Því er það að mér hefur hvað eftir annað verið meinað að koma til ykkar. 23 En nú á ég ekki lengur neitt ógert á þessum slóðum og mig hefur árum saman langað að koma til ykkar 24 um leið og ég færi til Spánar. Ég vona að fá að sjá ykkur, er ég fer um hjá ykkur, og að þið búið mig til ferðar þangað þegar ég hef fengið að njóta samvista við ykkur um hríð. 25 En nú ætla ég til Jerúsalem til að færa hjálp hinum heilögu þar. 26 Því að Makedónía og Akkea hafa ákveðið að gangast fyrir samskotum handa fátæklingum meðal hinna heilögu þar í borg. 27 Sjálfir ákváðu þeir það enda eru þeir í skuld við þá. Fyrst heiðingjar hafa fengið hlutdeild í andlegri blessun frá þeim ber og þeim skylda til að hjálpa þeim í líkamlegum efnum. 28 En þegar ég hef lokið þessu og komið þessu framlagi tryggilega í þeirra hendur ætla ég að fara um hjá ykkur á leið minni til Spánar. 29 Og það veit ég að þegar ég kem til ykkar mun ég koma með blessun Krists í fullum mæli.
30 Ég heiti á ykkur, systkin,[ vegna Drottins vors Jesú Krists og kærleiksanda hans, að hjálpa mér í stríði mínu með því að biðja fyrir mér til Guðs 31 að hann bjargi mér frá þeim mönnum í Júdeu sem neita að trúa og hjálpin, sem ég fer með til Jerúsalem handa hinum heilögu þar, verði vel þegin. 32 Þá get ég komið til ykkar með fögnuði og ef Guð lofar notið góðrar hvíldar með ykkur. 33 Guð friðarins sé með yður öllum. Amen.