1a Þannig voru allir Ísraelsmenn skráðir í ættartölur. Þeir voru skráðir í bók Ísraelskonunga.
Íbúar í Jerúsalem eftir útlegðina
1b Júdamenn voru fluttir í útlegð til Babel vegna svika þeirra. 2 Þeir fyrstu, sem settust að í landi þeirra og borgum, voru Ísraelsmenn, prestar, Levítar og musterisþjónar. 3 Og í Jerúsalem bjuggu eftirtaldir af niðjum Júda og Benjamíns og Efraíms og Manasse:
4 Útaí Ammíhúdsson, Omrísonar, Imrísonar, Banísonar. Hann var afkomandi Peresar Júdasonar. 5 Og af Sílonítum: frumburðurinn Asaja og synir hans. 6 Og af niðjum Sera: Jegúel. Og bræður þeirra voru sex hundruð og níutíu.
7 Og af niðjum Benjamíns: Sallúm Mesúllamsson, Hódavjasonar, Semíasonar. 8 Og Jíbneja Jeróhamsson og Ela Ússíson, Míkrísonar og Mesúllam Sefatjason, Regúelssonar, Jíbnejasonar. 9 Og bræður þeirra eftir ættartölum þeirra voru níu hundruð fimmtíu og sex. Þeir voru allir ættarhöfðingjar.
10 Og af prestunum: Jedaja og Jójaríb og Jakín 11 og Asarja Hilkíason, Mesúllamssonar, Sadókssonar, Merajótssonar, Ahítúbssonar, höfðingja yfir húsi Guðs. 12 Og Adaja Jeróhamsson, Pashúrssonar, Malkíasonar, og Maesí Adíelsson, Jahserasonar, Mesúllamssonar, Mesillemítssonar, Immerssonar. 13 Og bræður þeirra, ættarhöfðingjar, voru sautján hundruð og sextíu talsins. Þeir voru mjög hæfir menn til að gegna þjónustu í húsi Guðs.
14 Og af Levítunum: Semaja Hassúbsson, Asríkamssonar, Hasabjasonar af niðjum Merarí. 15 Og Bakbakkar, Heres og Galal og Mattanja Míkason, Síkrísonar, Asafssonar 16 og Óbadía Semajason, Galalssonar, Jedútúnssonar og Berekía Asason, Elkanasonar sem bjó í þorpum Netófatíta.
17 Og hliðverðirnir voru Sallúm og Akkúb og Talmon og Ahíman og bræður þeirra. Var Sallúm, bróðir þeirra, æðstur 18 og gætir enn konungshliðsins gegnt austri. Þetta voru hliðverðirnir í búðum Levíta.
19 Og Sallúm Kóreson, Ebjasafssonar, Kórasonar og bræður hans, af ættkvísl hans, Kóraítar, voru þröskuldsverðir í tjaldinu. Feður þeirra höfðu gætt dyranna í herbúðum Drottins. 20 Og Pínehas Eleasarsson var áður yfirmaður þeirra, Drottinn sé með honum. 21 Og Sakaría Meselemjason gætti dyra samfundatjaldsins.
22 Alls voru þeir sem valdir höfðu verið til að vera hliðverðir við þröskuldana tvö hundruð og tólf. Þeir höfðu látið skrá sig í ættartölur í þorpum sínum. Davíð og sjáandinn Samúel höfðu sett þá í embætti vegna þess að þeim var treystandi. 23 Þeir og synir þeirra gættu hliðanna að húsi Drottins, að húsi tjaldbúðarinnar. 24 Hliðverðirnir sneru í átt að heimshornunum fjórum: austri, vestri, norðri og suðri. 25 Bræður þeirra, sem bjuggu í þorpum sínum, áttu að koma við og við og gegna þjónustunni með þeim, sjö daga í senn, 26 þar sem aðeins fjórir æðstu hliðverðirnir höfðu fast starf á hendi. Þeir voru Levítar.
Þeir höfðu og umsjón með herbergjum og fjárhirslum í húsi Guðs. 27 Um nætur héldu þeir til við hús Guðs því að þeim var falin gæsla og höfðu lykil til að ljúka upp á hverjum morgni.
28 Nokkrir þeirra áttu að sjá um þjónustuáhöldin og telja þau er þeir báru þau út og inn. 29 Nokkrir skyldu sjá um áhöldin, öll hin helgu áhöld, hveitimjölið, vínið og olíuna, reykelsið og kryddjurtirnar. 30 Nokkrir af sonum prestanna áttu að gera smyrsl úr kryddjurtunum. 31 En Mattitja, einum af Levítunum, frumburði Sallúms Kóraíta, var falinn pönnubaksturinn. 32 Nokkrir af Kahatítum, bræðrum þeirra, áttu að sjá um skoðunarbrauðin og leggja þau fram á hverjum hvíldardegi.
33 Söngvararnir, ættarhöfðingjar Levíta, búa í herbergjunum, lausir við önnur störf því að þeir hafa starfs að gæta dag og nótt. 34 Þetta voru ættarhöfðingjar Levíta og höfðingjar ætta þeirra. Þeir bjuggu í Jerúsalem.
Ætt Sáls konungs
35 Faðir Gíbeons, Jeíel, bjó í Gíbeon. Kona hans hét Maaka 36 og frumgetinn sonur hans var Abdón, þá Súr og Kís og Baal og Ner og Nadab 37 og Gedór og Ahjó og Sakaría og Miklót. 38 Og Miklót gat Símeam. Þeir settust einnig að í Jerúsalem eins og bræður þeirra og bjuggu hjá þeim.
39 Og Ner gat Kís og Kís gat Sál og Sál gat Jónatan og Malkísúa og Abínadab og Esbaal. 40 Og sonur Jónatans var Meríbaal og Meríbaal gat Míka. 41 Og synir Míka voru Píton og Melek og Tahrea og Akas. 42 Og Akas gat Jaera og Jaera gat Alemet og Asmavet og Simrí. Og Simrí gat Mósa 43 og Mósa gat Bínea. Sonur hans var Refaja og sonur hans Elasa og sonur hans Asel. 44 Og Asel átti sex syni og hétu þeir: Asríkam og Bokrú og Ísmael og Searja og Óbadía og Hanan. Þetta voru synir Asels.