Stuðningsmenn Davíðs í Siklag
1 Þetta eru þeir sem komu til Davíðs í Siklag þegar hann var enn útilokaður frá þjónustu við Sál Kísson. Voru þeir meðal þeirra kappa sem studdu hann í bardögum. 2 Þeir voru vopnaðir bogum í hægri hendi og gátu kastað grjóti og skotið ör af boga jafnt með hægri hendi sem vinstri.
Af ættmennum Sáls komu eftirtaldir frá Benjamín: 3 Ahíeser, höfðingi þeirra, einnig Jóas Semaasson frá Gíbeu, Jesíel og Pelet Asmavetssynir, Beraka og Jehú frá Anatót, 4 Jismaja frá Gíbeon, einn hinna þrjátíu kappa og foringi þeirra, 5 Jeremía, Jehasíel, Jóhanan og Jósabad frá Gedera, 6 Elúsaí, Jerímót, Baalja, Semarja og Sefatja frá Haríf, 7 Elkana, Jissía, Asareel, Jóeser og Jasóbeam, sem voru Kóraítar, 8 Jóela og Sebadja Jeróhamssynir frá Gedór.
9 Einnig gengu til liðs við Davíð hraustir kappar af ættbálki Gaðs og komu í virki hans í eyðimörkinni. Þeir voru þjálfaðir hermenn, vopnaðir skjöldum og spjótum. Þeir líktust ljónum og voru fljótir í förum eins og skógargeitur í fjöllum. 10 Eser var foringi þeirra, Óbadía var annar, Elíab þriðji, 11 Mismanna fjórði, Jeremía fimmti, 12 Attaí sjötti, Elíel sjöundi, 13 Jóhanan áttundi, Elsabad níundi, 14 Jeremía tíundi og Makbannaí var sá ellefti.
15 Þessir menn af ættbálki Gaðs voru foringjar hersins. Sá aumasti þeirra var hundrað manna maki en sá sterkasti þúsund manna maki. 16 Það voru þeir sem fóru yfir Jórdan í fyrsta mánuðinum þegar hún flæddi yfir bakka sína og hafði einangrað dalina í austri og vestri.
17 Einnig komu menn úr ættbálkum Benjamíns og Júda til Davíðs í virkinu. 18 Davíð gekk út til þeirra, ávarpaði þá og sagði: „Ef þið komið til mín með friði og ætlið að styðja mig er ég fús til samstarfs við ykkur. En ef þið ætlið að svíkja mig í hendur fjandmanna minna þó að ég hafi ekkert illvirki framið, þá sér Guð feðra okkar það og refsar ykkur.“ 19 Þá kom andi yfir Amasaí,[ foringja hinna þrjátíu, og hann svaraði:
Þínir erum við, Davíð.
Með þér erum við, sonur Ísaí.
Heill, heill sé þér.
Heill þeim sem styður þig
því að Guð þinn styður þig.
Þá tók Davíð við þeim og setti þá meðal foringja liðs síns.
20 Nokkrir menn úr ættbálki Manasse gengu einnig til liðs við Davíð þegar hann átti að fara með Filisteum í orrustu gegn Sál. Hann varð þeim þó ekki að neinu liði því að höfðingjar Filistea sendu hann burt þegar þeir höfðu ráðið ráðum sínum og komist að þessari niðurstöðu: „Hann mun að nýju ganga í lið með Sál, húsbónda sínum, og það mun kosta okkur höfuðið.“
21 Þegar hann kom aftur til Siklag gengu þessir menn úr ættbálki Manasse í lið með honum: Adna, Jósabad, Jedíael, Míkael, Jósabad, Elíhú og Silletaí. Þeir voru foringjar þúsund manna liða sem komu frá Manasse 22 og studdu Davíð gegn ránsflokknum því að þeir voru allir miklir bardagamenn og urðu foringjar í hernum. 23 Á hverjum degi komu menn til Davíðs til að styðja hann þannig að herbúðir hans urðu mjög fjölmennar.
Stríðsmenn Davíðs í Hebron
24 Þetta er skrá yfir þá hermenn sem komu til Davíðs í Hebron með alvæpni til þess að fela honum konungdóm Sáls eftir boði Drottins:
25 Af ættbálki Júda komu 6800 menn sem báru skildi og spjót, allt menn með alvæpni, 26 af ættbálki Símeons komu 7100 hraustir hermenn 27 og af ættbálki Leví 4600 menn. 28 Auk þess kom Jójada, höfðingi ættar Arons, ásamt 29 3700 mönnum og Sadók, ungur og hraustur stríðsmaður, ásamt 22 foringjum úr fjölskyldu hans. 30 Af ættbálki Benjamíns, frændum Sáls, komu 3000 en meirihluti þeirra hélt þá enn trúnaði við ætt Sáls. 31 Af ættbálki Efraíms komu 20.800 hraustir hermenn, mikils metnir í fjölskyldum sínum, 32 og af hálfum ættbálki Manasse komu 18.000 menn sem höfðu verið kallaðir saman með nafnakalli til þess að koma og taka Davíð til konungs. 33 Af öllum ættbálki Íssakars, sem kunni skil á sérhverri tíð og vissi hvað Ísrael bar að gera, komu 200 foringjar ásamt öllum þeim ættmennum sínum sem voru undir þeirra stjórn, 34 af Sebúlon kom 50.000 manna her, fullbúinn til orrustu og skipaði sér heils hugar í fylkinguna, 35 af Naftalí komu þúsund höfðingjar ásamt 37.000 mönnum vopnuðum skjöldum og spjótum, 36 af Dan komu 28.600 menn albúnir til orrustu, 37 af Asser kom 40.000 manna her, einnig búinn til bardaga, 38 af ættbálkunum handan við Jórdan, af ættbálkum Rúbens, Gaðs og hálfum ættbálki Manasse, kom 120.000 manna her með alvæpni, búinn til bardaga.
39 Allir þessir hermenn skipuðu sér heils hugar í fylkinguna og komu til Hebron til að gera Davíð að konungi yfir öllum Ísrael og aðrir Ísraelsmenn voru einnig einhuga um að gera Davíð að konungi. 40 Þeir dvöldust nú þrjá daga hjá Davíð og neyttu matar og drykkjar því að ættmenn þeirra sáu þeim fyrir vistum. 41 Jafnvel nágrannar þeirra, sem komu alla leið frá Íssakar, Sebúlon og Naftalí, færðu þeim mat á ösnum, úlföldum, múldýrum og nautum. Þeir færðu þeim mjöl, fíkjukökur og rúsínukökur, vín, olíu og mikinn fjölda nauta og fjár því að gleði ríkti í Ísrael.