Foreldrar og börn

1 Börn, hlýðið foreldrum ykkar vegna Drottins því að það er rétt.
2 „Heiðra föður þinn og móður“ – það er hið fyrsta boðorð með fyrirheiti: 3 „til þess að þér vegni vel og þú verðir langlífur á jörðinni“.
4 Og feður, reitið ekki börn ykkar til reiði heldur alið þau upp með aga og fræðslu um Drottin.

Þrælar og húsbændur

5 Þrælar, hlýðið jarðneskum húsbændum ykkar með lotningu og ótta af einlægni hjartans, eins og það væri Kristur. 6 Ekki með augnaþjónustu eins og þeir er mönnum vilja þóknast heldur eins og þjónar Krists er gera vilja Guðs af heilum huga. 7 Þjónið eins og Drottinn ætti í hlut og ekki menn. 8 Þið vitið og sjálfir að sérhver mun fá aftur af Drottni það góða sem hann gerir, hvort sem hann er þræll eða frjáls maður.
9 Og þið, sem eigið þræla, breytið eins við þá. Hættið að ógna þeim. Þið vitið að þeir eiga í himnunum sama Drottin og hann fer ekki í manngreinarálit.

Alvæpni Guðs

10 Að lokum: Styrkist í Drottni og krafti máttar hans. 11 Klæðist alvæpni Guðs til þess að þið getið staðist vélabrögð djöfulsins. 12 Því að baráttan sem við eigum í er ekki við menn af holdi og blóði heldur við tignirnar og völdin, við heimsdrottna þessa myrkurs, við andaverur vonskunnar í himingeimnum. 13 Takið því alvæpni Guðs til þess að þið getið veitt mótstöðu á hinum vonda degi og haldið velli þegar þið hafið sigrað allt.
14 Standið því gyrt sannleika um lendar ykkar og klædd réttlætinu sem brynju 15 og skóuð á fótunum með fúsleik til að flytja fagnaðarboðin um frið. 16 Takið umfram allt skjöld trúarinnar sem þið getið slökkt með öll logandi skeyti hins vonda. 17 Setjið upp hjálm hjálpræðisins og grípið sverð andans, Guðs orð. 18 Gerið það með bæn og beiðni og biðjið á hverri tíð í anda. Verið þannig árvökul og stöðug í bæn fyrir öllum heilögum. 19 Biðjið fyrir mér að mér verði gefin orð að mæla, þá er ég lýk upp munni mínum, til þess að ég kunngjöri með djörfung leyndardóm fagnaðarerindisins. 20 Boðberi þess er ég í fjötrum mínum. Biðjið að ég geti flutt það með djörfung eins og mér ber að tala.

Lokaorð

21 En til þess að þið fáið einnig að vita um hagi mína, hvernig mér líður, þá mun Týkíkus, minn elskaði bróðir og trúi aðstoðarmaður í þjónustu Drottins, skýra ykkur frá öllu. 22 Ég sendi hann til ykkar einkum í því skyni að þið fáið að vita hvernig mér líður og til þess að hann uppörvi ykkur.
23 Friður sé með söfnuðinum[ og kærleikur, með trúnni frá Guði föður og Drottni Jesú Kristi. 24 Náð sé með öllum þeim sem elska Drottin vorn Jesú Krist með ódauðlegum kærleik.