1Sonur minn, varðveittu orð mín 
og hugfestu fyrirmæli mín. 
   2Varðveittu fyrirmæli mín, því að þá munt þú lifa, 
og leiðsögn mína eins og sjáaldur auga þíns. 
   3Bind þau á fingur þína 
og skráðu þau á spjald hjarta þíns. 
   4Segðu við spekina: „Þú ert systir mín,“ 
og kallaðu skynsemina vinkonu 
   5svo að þær varðveiti þig fyrir hinni framandi konu, 
hinni blíðmálgu konu. 
   6Út um gluggann á húsi mínu
skimaði ég milli rimlanna
   7og sá þar meðal sveinanna 
ungan og vitstola mann. 
   8Hann kom að götuhorni 
og fetaði leiðina að húsi hennar, 
   9í rökkrinu, að kvöldi dags, 
um miðja nótt og í niðdimmu. 
   10Kona gekk til móts við hann, 
klædd sem skækja og undirförul í hjarta, 
   11eirðarlaus óhemja er hún 
og hefst aldrei við heima, 
   12hún er ýmist á götunum eða á torgunum 
og liggur í leyni við hvert horn, 
   13þrífur í hann og kyssir hann 
og segir í blygðunarleysi: 
   14„Ég átti að færa heillafórn, 
í dag hef ég goldið heit mitt. 
   15Þess vegna fór ég út að finna þig 
til þess að leita þín, og hef nú fundið þig. 
   16Ég hef búið rúm mitt ábreiðum, 
marglitum ábreiðum úr egypsku líni. 
   17Myrru, alóe og kanel 
hef ég stökkt á hvílu mína. 
   18Komdu, við drekkum okkur ástdrukkin, 
njótum ásta fram á morgun. 
   19Maðurinn minn er að heiman, 
hann er farinn í langferð. 
   20Peningapyngjuna tók hann með sér, 
hann kemur ekki heim fyrr en í tunglfyllingu.“ 
   21Hún tælir hann með fortölum 
og ginnir hann með blíðmælgi. 
   22 Hann fer rakleiðis á eftir henni 
eins og naut á leið til slátrunar, 
eins og hjörtur sem anar í netið 
   23 uns örin smýgur gegnum lifur hans, 
eins og fuglinn hraðar sér í snöruna 
og veit ekki að líf hans er í veði. 
   24 Þér yngismenn, hlýðið því á mig 
og gefið gaum að orðum mínum. 
   25 Láttu ekki hjartað tælast á leið hennar, 
villstu ekki inn á götur hennar. 
   26 Marga hefur hún sært ólífissári 
og fórnarlömb hennar eru óteljandi.
   27 Hús hennar er helvegur 
niður til heimkynna dauðans.  
			Orðskviðirnir 7. kafliHið íslenska biblíufélag2021-02-15T19:13:45+00:00
			
			
  
  			
			
				
																													
  
		        Orðskviðirnir 7. kafli                        
  Hægt er að nálgast texta þessa kafla í öðrum íslenskum þýðingum með því að smella á nafn þýðingarinnar hér fyrir neðan. Þýðingin opnast í nýjum glugga.    
                        
  
	
