1 Sálmur Davíðs þá er hann gerði sér upp vitfirringu frammi fyrir Abímelek svo að Abímelek rak hann í burt og hann fór.
2Ég vil vegsama Drottin alla tíma,
ætíð sé lof hans mér í munni.
3Ég hrósa mér af Drottni,
hinir snauðu skulu heyra það og fagna.
4Vegsamið Drottin ásamt mér,
tignum nafn hans einum hug.
5Ég leitaði Drottins og hann svaraði mér,
frelsaði mig frá öllu sem ég hræddist.
6Lítið upp til hans og ljómið af gleði,
þá munuð þér aldrei roðna af skömm.
7Hér er vesæll maður sem hrópaði
og Drottinn bænheyrði hann
og hjálpaði honum úr öllum nauðum hans.
8Engill Drottins
setur vörð kringum þá sem óttast hann
og frelsar þá.
9Finnið og sjáið að Drottinn er góður,
sæll er sá maður sem leitar hælis hjá honum.
10Óttist Drottin, þér hans heilögu,
því að þeir sem óttast hann líða engan skort.
11Ljón búa við skort og svelta
en þeir er leita Drottins fara einskis góðs á mis.
12Komið börn, hlýðið á mig,
ég vil kenna yður að óttast Drottin.
13Ef einhver óskar lífs,
þráir lífdaga til þess að njóta hamingjunnar,
14þá varðveit tungu þína frá illu
og varir þínar frá svikatali.
15Forðastu illt og gerðu gott,
leitaðu friðar og leggðu stund á hann.
16Augu Drottins hvíla á réttlátum
og eyru hans gefa gaum að hrópi þeirra.
17Auglit Drottins beinist gegn illvirkjum
til þess að afmá minningu þeirra af jörðinni.
18Þegar réttlátir hrópa heyrir Drottinn,
hann bjargar þeim úr öllum nauðum þeirra.
19Drottinn er nálægur þeim sem hafa sundurmarið hjarta,
hann hjálpar þeim sem hafa sundurkraminn anda.
20Margar eru raunir réttláts manns
en Drottinn frelsar hann úr þeim öllum.
21Hann gætir allra beina hans,
ekki eitt þeirra skal brotið.
22 Ógæfa drepur óguðlegan mann,
þeir er hata hinn réttláta verða sekir fundnir.
23 Drottinn frelsar líf þjóna sinna,
enginn sem leitar hælis hjá honum mun sekur fundinn.