1 Eftir Davíð.
Lofaður sé Drottinn, bjarg mitt,
sem æfir hendur mínar til bardaga,
fingur mína til orrustu.
2Þú ert miskunn mín og vígi,
vörn mín og hjálparhella,
skjöldur minn og athvarf,
hann leggur undir mig þjóðir.
3Drottinn, hvað er maðurinn, að þú þekkir hann,
mannsins barn, að þú gefir því gaum?
4Maðurinn er sem vindblær,
dagar hans líða hjá eins og skuggi.
5Drottinn, sveig þú himin þinn og stíg niður,
snertu fjöllin svo að úr þeim rjúki,
6lát eldingar leiftra og tvístra óvinum þínum,
skjót örvum þínum og hrek þá burt.
7Rétt út hönd þína frá hæðum,
hríf mig burt og bjarga mér
úr beljandi vatnsflaumi,
úr greipum framandi manna
8sem tala lygi með munni sínum
og svíkja með hægri hendi sinni.
9Guð, ég vil syngja þér nýjan söng,
leika fyrir þig á tístrengjaða hörpu,
10fyrir þig, sem veitir konungum sigur,
bjargar Davíð þjóni sínum
11undan ógnandi sverði.
Hríf mig burt og bjarga mér úr greipum framandi manna
sem tala lygi með munni sínum
og svíkja með hægri hendi sinni.
12Synir vorir líkjast viðarteinungum
sem uxu hátt í æskuþrótti sínum,
dætur vorar eru sem súlur,
úthöggnar til hallarprýði.
13Hlöður vorar eru fullar
og geyma afurðir af hverri tegund.
Búfé vort fjölgar sér þúsundfalt,
margþúsundfalt á haglendum vorum.
14Kýrnar eru kálffullar.
Engin innrás og engir hernumdir,
engin neyðaróp á strætum vorum.
15Sæl er sú þjóð sem þannig farnast,
sæl er sú þjóð sem á Drottin að Guði.
Sálmarnir 144. kafliHið íslenska biblíufélag2020-05-30T18:12:31+00:00
Sálmarnir 144. kafli
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
Hægt er að nálgast texta þessa kafla í öðrum íslenskum þýðingum með því að smella á nafn þýðingarinnar hér fyrir neðan. Þýðingin opnast í nýjum glugga.