Safn spakmæla
1 Orðskviðir Salómons:
Vitur sonur gleður föður sinn 
en heimskur sonur er móður sinni til mæðu. 
   2Rangfenginn auður stoðar ekki 
en réttlæti frelsar frá dauða. 
   3Drottinn lætur ekki réttlátan mann þola hungur 
en kröfum hinna ranglátu hafnar hann. 
   4Iðjuleysi færir örbirgð 
en auðs aflar iðin hönd. 
   5Hygginn er sá er safnar á sumri 
en illa fer þeim sem sefur af sér uppskeruna. 
   6Blessun hvílir yfir höfði hins réttláta 
en lögleysan hylst í munni hins illa. 
   7Minning hins réttláta verður blessuð 
en nafn óguðlegra tærist burt. 
   8Sá sem er vitur í hjarta þýðist áminningar 
en þeim farnast illa sem talar af gáleysi.
   9Sá sem fer rétta vegu gengur óhultur 
en upp kemst um þann sem þræðir hlykkjóttan veg. 
   10Sá sem deplar auga veldur sárindum 
en sá sem finnur að af hreinskilni stillir til friðar. [ 
   11Lífslind er munnur réttláts manns 
en lögleysan hylst í munni hins illa. 
   12Hatur vekur illdeilur 
en kærleikurinn breiðir yfir alla bresti. 
   13Viska er á vörum hyggins manns 
en á baki hins óvitra dynur vöndurinn. 
   14Vitrir menn geyma þekkingu sína 
en orð afglapans boða bráða glötun. 
   15Auður ríks manns er honum öflugt vígi 
en fátækt hinna snauðu verður þeim að falli. 
   16Eljusemi hins réttláta verður til lífs 
en gróði hins rangláta til syndar. 
   17Sá fer leið lífsins sem hlítir leiðsögn 
en sá villist af leið sem hafnar umvöndun. 
   18Sá sem leynir hatri er hræsnari, 
sá sem dreifir hviksögum er heimskingi. 
   19Málæðinu fylgja yfirsjónir 
en sá breytir hyggilega sem hefur taumhald á tungu sinni. 
   20Tunga hins réttláta er hreint silfur, 
vit hins óguðlega er lítils virði. 
   21Orð hins réttláta eru margra framfæri 
en afglaparnir deyja úr fákænsku. 
   22 Blessun Drottins auðgar 
og erfiði mannsins bætir engu við hana. 
   23 Heimskingjanum er ósóminn ánægja 
en viskan er hyggnum manni gleði. 
   24 Það sem hinn óguðlegi óttast kemur yfir hann 
en réttlátum verður að von sinni. 
   25 Stormur feykir burt hinum rangláta 
en hinn réttláti stendur á ævarandi grunni. 
   26 Það sem tönnunum er vínsýra og augunum reykur, 
það er letinginn þeim sem fela honum erindi. 
   27 Ótti Drottins lengir lífdagana 
en æviár ranglátra verða stytt. 
   28 Eftirvænting réttlátra endar í gleði 
en vonir ranglátra rætast ekki. 
   29 Vegur Drottins er athvarf vammlausum 
en illvirkjum tortíming. 
   30 Hinum réttláta verður ekki þokað 
og hinir óguðlegu munu ekki byggja landið. 
   31 Af munni hins réttláta streymir viska 
en lygatungan verður skorin burt. 
   32 Varir hins réttláta vita hvað geðfellt er 
en munnur óguðlegra er flærðin ein.  
