Með svikum

1 Þegar Jesús hafði lokið þessari ræðu sagði hann við lærisveina sína: 2 „Þið vitið að eftir tvo daga eru páskar. Þá verður Mannssonurinn framseldur til krossfestingar.“
3 Æðstu prestarnir og öldungarnir söfnuðust nú saman í höll æðsta prestsins, er Kaífas hét, 4 og réðu með sér að handsama Jesú með svikum og taka hann af lífi. 5 En þeir sögðu: „Ekki á hátíðinni, annars verður uppþot meðal fólksins.“

Gott verk gerði hún

6 En Jesús var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa. 7 Kom þá til hans kona og hafði alabastursbuðk með dýrum smyrslum og hellti yfir höfuð honum þar sem hann sat að borði. 8 Við þessa sjón urðu lærisveinarnir gramir og sögðu: „Til hvers er þessi sóun? 9 Þetta hefði mátt selja dýru verði og gefa fátækum.“
10 Jesús varð þess vís og sagði við þá: „Hvað eruð þið að angra konuna? Gott verk gerði hún mér. 11 Fátæka hafið þið jafnan hjá ykkur en mig hafið þið ekki ávallt. 12 Þegar hún hellti þessum smyrslum yfir líkama minn var hún að búa mig til greftrunar. 13 Sannlega segi ég ykkur: Hvar um heim sem fagnaðarerindi þetta verður flutt mun þess getið sem hún gerði og hennar minnst.“

Þrjátíu silfurpeningar

14 Þá fór einn þeirra tólf, Júdas Ískaríot að nafni, til æðstu prestanna 15 og sagði: „Hvað viljið þið gefa mér fyrir að framselja ykkur Jesú?“ En þeir greiddu honum þrjátíu silfurpeninga. 16 Upp frá þessu leitaði hann færis að framselja Jesú.

Búið til páskamáltíðar

17 Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna komu lærisveinarnir til Jesú og sögðu: „Hvar vilt þú að við búum þér páskamáltíðina?“
18 Hann mælti: „Farið til ákveðins manns í borginni og segið við hann: Meistarinn segir: Minn tími er í nánd, hjá þér vil ég halda páska með lærisveinum mínum.“
19 Lærisveinarnir gerðu sem Jesús bauð þeim og bjuggu til páskamáltíðar.
20 Um kvöldið sat Jesús til borðs með þeim tólf. 21 Og er þeir mötuðust sagði hann: „Sannlega segi ég ykkur: Einn af ykkur mun svíkja mig.“
22 Þeir urðu mjög hryggir og sögðu við hann, einn af öðrum: „Er það ég, Drottinn?“
23 Hann svaraði þeim: „Sá sem dýfði brauðinu í fatið með mér mun svíkja mig. 24 Mannssonurinn fer að sönnu héðan svo sem um hann er ritað en vei þeim manni sem því veldur að Mannssonurinn verður framseldur. Betra væri þeim manni að hafa aldrei fæðst.“
25 En Júdas, sem sveik hann, sagði: „Rabbí, er það ég?“
Jesús svaraði: „Það eru þín orð.“

Heilög kvöldmáltíð

26 Þá er þeir mötuðust tók Jesús brauð, gerði þakkir, braut það og gaf lærisveinunum og sagði: „Takið og etið, þetta er líkami minn.“
27 Og hann tók kaleik, gerði þakkir, gaf þeim og sagði: „Drekkið allir hér af. 28 Þetta er blóð mitt, blóð sáttmálans, úthellt fyrir marga til fyrirgefningar synda. 29 Ég segi ykkur: Héðan í frá mun ég eigi drekka af þessum vínviðar ávexti til þess dags er ég drekk hann nýjan með ykkur í ríki föður míns.“
30 Þegar þeir höfðu sungið lofsönginn fóru þeir til Olíufjallsins.

Afneitun sögð fyrir

31 Þá segir Jesús við þá: „Á þessari nóttu munuð þið allir hafna mér því að ritað er: Ég mun slá hirðinn og sauðir hjarðarinnar munu tvístrast. 32 En eftir að ég er upp risinn mun ég fara á undan ykkur til Galíleu.“
33 Þá segir Pétur: „Þótt allir hafni þér skal ég aldrei hafna þér.“
34 Jesús sagði við hann: „Sannlega segi ég þér: Á þessari nóttu, áður en hani galar, muntu þrisvar afneita mér.“
35 Pétur svarar: „Þótt ég ætti að deyja með þér þá mun ég aldrei afneita þér.“
Eins töluðu allir lærisveinarnir.

Í Getsemane

36 Þá kemur Jesús með þeim í garð er heitir Getsemane og hann segir við lærisveinana: „Setjist hér meðan ég fer og biðst fyrir þarna.“ 37 Hann tók með sér þá Pétur og báða sonu Sebedeusar. Og nú setti að honum hryggð og angist. 38 Hann segir við þá: „Sál mín er hrygg allt til dauða. Bíðið hér og vakið með mér.“
39 Þá gekk Jesús lítið eitt lengra, féll fram á ásjónu sína, baðst fyrir og sagði: „Faðir minn, ef verða má þá fari þessi kaleikur fram hjá mér. Þó ekki sem ég vil heldur sem þú vilt.“
40 Jesús kom aftur til lærisveinanna og fann þá sofandi. Þá sagði hann við Pétur: „Þið gátuð þá ekki vakað með mér eina stund? 41 Vakið og biðjið svo að þið fallið ekki í freistni. Andinn er reiðubúinn en holdið veikt.“
42 Aftur vék hann brott annað sinn og bað: „Faðir minn, ef eigi verður hjá því komist að ég drekki þennan kaleik, þá verði þinn vilji.“ 43 Þegar hann kom aftur fann hann þá enn sofandi því þeir gátu ekki haldið augunum opnum.
44 Þá fór hann enn frá þeim og baðst fyrir þriðja sinn með sömu orðum og fyrr. 45 Og hann kom til lærisveinanna og sagði við þá: „Sofið þið enn og hvílist? Stundin er komin og Mannssonurinn er framseldur í hendur syndugra manna. 46 Standið upp, förum! Í nánd er sá er mig svíkur.“

Tekinn höndum

47 Meðan Jesús var enn að tala kom Júdas, einn þeirra tólf, og með honum mikill flokkur frá æðstu prestunum og öldungunum og höfðu þeir sverð og barefli. 48 Svikarinn hafði sagt þeim þetta til marks: „Sá sem ég kyssi, það er hann. Takið hann höndum.“
49 Hann gekk beint að Jesú og sagði: „Heill, rabbí!“ og kyssti hann.
50 Jesús sagði við hann: „Vinur, hví ertu hér?“
Þá komu hinir, lögðu hendur á Jesú og tóku hann fastan. 51 Einn þeirra sem með Jesú voru greip til sverðs og brá því, hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum eyrað. 52 Jesús sagði við hann: „Slíðra sverð þitt! Allir sem sverði bregða munu fyrir sverði falla. 53 Hyggur þú að ég geti ekki beðið föður minn að senda mér nú meira en tólf sveitir engla? 54 Hvernig ættu þá ritningarnar að rætast sem segja að þetta eigi svo að verða?“
55 Þá sagði Jesús við flokkinn: „Eruð þið að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja til að handtaka mig? Daglega sat ég í helgidóminum og kenndi og þið tókuð mig ekki höndum. 56 En allt verður þetta til þess að ritningar spámannanna rætist.“
Þá yfirgáfu allir lærisveinarnir Jesú og flýðu.

Fyrir ráðinu

57 Þeir sem tóku Jesú höndum færðu hann til Kaífasar æðsta prests en þar voru saman komnir fræðimennirnir og öldungarnir. 58 Pétur fylgdi honum álengdar, allt að garði æðsta prestsins. Þar gekk hann inn og settist hjá þjónunum til að sjá hver yrði endir á. 59 Æðstu prestarnir og allt ráðið leituðu ljúgvitnis gegn Jesú til að geta líflátið hann 60 en fundu ekkert þótt margir ljúgvottar kæmu. Loks komu tveir 61 og sögðu: „Þessi maður sagði: Ég get brotið niður musteri Guðs og reist það aftur á þrem dögum.“
62 Þá stóð æðsti presturinn upp og sagði: „Svarar þú því engu sem þessir vitna gegn þér?“ 63 En Jesús þagði. Þá sagði æðsti presturinn við hann: „Ég særi þig við lifanda Guð, segðu okkur: Ertu Kristur, sonur Guðs?“
64 Jesús svarar honum: „Það voru þín orð. En ég segi ykkur: Upp frá þessu munuð þið sjá Mannssoninn sitja til hægri handar Hinum almáttuga og koma á skýjum himins.“
65 Þá reif æðsti presturinn klæði sín og sagði: „Hann guðlastar, hvað þurfum við nú framar votta við? Þið heyrðuð guðlastið. 66 Hvað líst ykkur?“
Þeir svöruðu: „Hann er dauðasekur.“
67 Og þeir hræktu í andlit honum og slógu hann með hnefunum en aðrir börðu hann með stöfum 68 og sögðu: „Þú ert spámaður, Kristur. Hver sló þig?“

Pétur afneitar

69 En Pétur sat úti í garðinum. Þar kom að honum þerna ein og sagði: „Þú varst líka með Jesú frá Galíleu.“
70 Því neitaði hann svo allir heyrðu og sagði: „Ekki veit ég hvað þú ert að fara.“ 71 Hann gekk út í fordyrið. Þar sá hann önnur þerna og sagði við þá sem þar voru: „Þessi var með Jesú frá Nasaret.“
72 En hann neitaði sem áður og sór þess eið að hann þekkti ekki þann mann.
73 Litlu síðar komu þeir er þar stóðu og sögðu við Pétur: „Víst ertu líka einn af þeim enda segir málfæri þitt til þín.“
74 En hann sór og sárt við lagði að hann þekkti ekki manninn. Um leið gól hani. 75 Og Pétur minntist þess er Jesús hafði mælt: „Áður en hani galar muntu þrisvar afneita mér.“ Og hann gekk út og grét beisklega.