Sáðmaðurinn gekk út að sá
1 Sama dag gekk Jesús að heiman og settist við vatnið. 2 Svo mikill mannfjöldi safnaðist að honum að hann varð að stíga í bát og sitja þar. En allt fólkið stóð á ströndinni. 3 Jesús talaði margt til þess í dæmisögum.
Hann sagði: „Sáðmaður gekk út að sá 4 og þá er hann sáði féll sumt hjá götunni og fuglar komu og átu það upp. 5 Sumt féll í grýtta jörð þar sem var lítill jarðvegur og það rann skjótt upp því það hafði ekki djúpa jörð. 6 Þegar sól hækkaði visnaði það og sökum þess að það hafði ekki rótfestu skrælnaði það. 7 Sumt féll meðal þyrna og þyrnarnir uxu og kæfðu það. 8 En sumt féll í góða jörð og bar ávöxt, sumt hundraðfaldan, sumt sextugfaldan og sumt þrítugfaldan.
9 Hver sem eyru hefur hann heyri.“
Hvers vegna í dæmisögum?
10 Þá komu lærisveinarnir til hans og spurðu: „Hvers vegna talar þú til fólksins í dæmisögum?“
11 Hann svaraði: „Ykkur er gefið að þekkja leynda dóma himnaríkis, öðrum er það ekki gefið. 12 Því að þeim sem hefur mun gefið verða og hann mun hafa gnægð en frá þeim sem eigi hefur mun tekið verða jafnvel það sem hann hefur. 13 Þess vegna tala ég til þeirra í dæmisögum að sjáandi sjá þau ekki og heyrandi heyra þau ekki né skilja. 14 Á þeim rætist spádómur Jesaja:
Með eyrum munuð þér heyra og alls ekki skilja
og sjáandi munuð þér horfa og ekkert sjá.
15Því að hjarta lýðs þessa er sljótt orðið
og illa heyra þeir með eyrum sínum
og augunum hafa þeir lokað,
svo að þeir sjái ekki með augunum
né heyri með eyrunum
og skilji með hjartanu og snúi sér
og ég lækni þá.
16 En sæl eru augu ykkar af því að þau sjá og eyru ykkar af því að þau heyra. 17 Sannlega segi ég ykkur: Margir spámenn og réttlátir menn þráðu að sjá það sem þið sjáið en sáu það ekki og heyra það sem þið heyrið en heyrðu það ekki.
Merking dæmisögunnar
18 Heyrið þá hvað dæmisagan um sáðmanninn merkir: 19 Þegar einhver heyrir orðið um ríkið og skilur ekki þá kemur hinn vondi og rænir því sem sáð var í hjarta hans. Það sem sáð var við götuna merkir þetta. 20 Það sem sáð var í grýtta jörð merkir þann sem tekur orðinu með fögnuði um leið og hann heyrir það 21 en hefur enga rótfestu. Hann er hvikull og er þrenging verður eða ofsókn vegna orðsins bregst hann þegar. 22 Það er sáð var meðal þyrna merkir þann sem heyrir orðið en áhyggjur heimsins og tál auðæfanna kefja orðið svo það ber engan ávöxt. 23 En það er sáð var í góða jörð merkir þann sem heyrir orðið og skilur það. Hann er sá sem ber ávöxt og gefur af sér hundraðfalt, sextugfalt eða þrítugfalt.“
Illgresi sáð
24 Aðra dæmisögu sagði Jesús þeim: „Líkt er um himnaríki og mann er sáði góðu sæði í akur sinn. 25 En er menn voru í svefni kom óvinur hans, sáði illgresi meðal hveitisins og fór síðan. 26 Þegar sæðið spratt upp og tók að bera ávöxt kom illgresið og í ljós. 27 Þá komu þjónar húsbóndans til hans og sögðu við hann: Herra, sáðir þú ekki góðu sæði í akur þinn? Hvaðan kemur illgresið? 28 Hann svaraði þeim: Þetta hefur einhver óvinur gert. Þjónarnir sögðu við hann: Viltu að við förum og reytum það? 29 Hann sagði: Nei, með því að tína illgresið gætuð þið slitið upp hveitið um leið. 30 Látið hvort tveggja vaxa saman fram að kornskurði. Þegar komin er kornskurðartíð mun ég segja við kornskurðarmenn: Safnið fyrst illgresinu og bindið í bundin til að brenna því en hirðið hveitið í hlöðu mína.“
Líkt mustarðskorni
31 Aðra dæmisögu sagði Jesús þeim: „Líkt er himnaríki mustarðskorni sem maður tók og sáði í akur sinn. 32 Smæst er það allra sáðkorna en nær það vex er það öllum jurtum meira, það verður tré, og fuglar himins koma og hreiðra sig í greinum þess.“
Líkt súrdeigi
33 Aðra dæmisögu sagði Jesús þeim: „Líkt er himnaríki súrdeigi er kona tók og fól í þrem mælum mjöls uns það sýrðist allt.“
34 Þetta allt talaði Jesús í dæmisögum til fólksins og án dæmisagna talaði hann ekki til þess. 35 Það átti að rætast sem Guð lét spámanninn segja:
Ég mun tala í dæmisögum
og boða það sem hulið var frá sköpun heims.
Jesús skýrir
36 Þá skildi Jesús við mannfjöldann og fór inn. Lærisveinar hans komu til hans og sögðu: „Skýrðu fyrir okkur dæmisöguna um illgresið á akrinum.“
37 Hann mælti: „Sá er sáir góða sæðinu er Mannssonurinn, 38 akurinn er heimurinn, góða sæðið merkir börn ríkisins en illgresið börn hins vonda. 39 Óvinurinn, sem sáði því, er djöfullinn. Kornskurðurinn er endir veraldar og kornskurðarmennirnir englar. 40 Eins og illgresinu er safnað og brennt í eldi, þannig verður við endi veraldar. 41 Mannssonurinn mun senda engla sína og þeir munu nema brott úr ríki hans allt sem leiðir í villu og alla er illt fremja 42 og kasta þeim í eldsofninn. Þar verður grátur og gnístran tanna. 43 Þá munu þau sem hlýtt hafa Guði skína sem sól í ríki föður þeirra.
Hver sem eyru hefur hann heyri.“
Líkt fjársjóði, perlu, neti
44 Enn sagði Jesús: „Líkt er himnaríki fjársjóði sem fólginn var í jörðu og maður fann og leyndi. Í fögnuði sínum fór hann, seldi allar eigur sínar og keypti akur þann.
45 Enn er himnaríki líkt kaupmanni sem leitaði að fögrum perlum. 46 Og er hann fann eina dýrmæta perlu fór hann, seldi allt sem hann átti og keypti hana.
47 Enn er himnaríki líkt neti sem lagt er í sjó og safnar alls kyns fiski. 48 Þegar það er fullt draga menn það á land, setjast við og safna þeim góðu í ker en kasta þeim óætu burt. 49 Svo mun verða þegar veröld endar: Englarnir munu koma, skilja vonda menn frá réttlátum 50 og kasta þeim í eldsofninn. Þar verður grátur og gnístran tanna.
51 Hafið þið skilið allt þetta?“
„Já,“ svöruðu lærisveinarnir.
52 Jesús sagði við þá: „Þannig er sérhver fræðimaður sem orðinn er lærisveinn himnaríkis líkur húsföður sem ber fram nýtt og gamalt úr forðabúri sínu.“
Í Nasaret
53 Þegar Jesús hafði lokið þessum dæmisögum hélt hann þaðan. 54 Hann kom í ættborg sína og tók að kenna þeim í samkundu þeirra. Þeir undruðust stórum og sögðu: „Hvaðan kemur honum þessi speki og kraftaverkin? 55 Er þetta ekki sonur smiðsins? Heitir ekki móðir hans María og bræður hans Jakob, Jósef, Símon og Júdas? 56 Og eru ekki systur hans allar hjá okkur? Hvaðan kemur honum þá allt þetta?“ 57 Og þeir höfnuðu honum hneykslaðir.
En Jesús sagði við þá: „Hvergi er spámaður minna metinn en í landi sínu og með heimamönnum.“ 58 Og hann gerði þar ekki mörg kraftaverk sökum vantrúar þeirra.[