Við Betesdalaug

1 Þessu næst var ein af hátíðum Gyðinga og Jesús fór upp til Jerúsalem. 2 Við Sauðahliðið í Jerúsalem er laug sem kallast á hebresku Betesda. Þar eru fimm súlnagöng. 3 Í þeim lá fjöldi sjúkra manna, blindra, haltra og lamaðra [sem biðu hræringar vatnsins. 4 En engill Drottins fór öðru hverju niður í laugina og hrærði vatnið. Sá sem fyrstur fór ofan í eftir hræring vatnsins varð heill hvaða sjúkdómur sem þjáði hann.][ 5 Þarna var maður nokkur sem hafði verið sjúkur í þrjátíu og átta ár. 6 Jesús sá hann þar sem hann lá og vissi að hann hafði lengi verið sjúkur. Hann segir við manninn: „Viltu verða heill?“
7 Hinn sjúki svaraði honum: „Herra, ég hef engan til að láta mig í laugina þegar vatnið hrærist og meðan ég er á leiðinni fer annar ofan í á undan mér.“
8 Jesús segir við hann: „Statt upp, tak rekkju þína og gakk!“ 9 Jafnskjótt varð maðurinn heill, tók rekkju sína og gekk.
En þessi dagur var hvíldardagur 10 og menn[ sögðu við hinn læknaða: „Í dag er hvíldardagur. Þú mátt ekki bera rekkjuna.“
11 Hann svaraði þeim: „Sá sem læknaði mig sagði við mig: Tak rekkju þína og gakk!“
12 Þeir spurðu hann: „Hver er sá maður sem sagði þér: Tak hana og gakk?“
13 En læknaði maðurinn vissi ekki hver hann var því að Jesús hafði leynst brott enda var þröng á staðnum.
14 Nokkru síðar hitti Jesús hann í helgidóminum og sagði við hann: „Nú ert þú orðinn heill. Syndga ekki framar svo að eigi hendi þig annað verra.“
15 Maðurinn fór og sagði ráðamönnum Gyðinga[ að Jesús væri sá sem læknaði hann. 16 Nú tóku þeir að ofsækja Jesú fyrir það að hann gerði þetta á hvíldardegi. 17 En hann svaraði þeim: „Faðir minn starfar til þessarar stundar og ég starfa einnig.“
18 Nú sóttu þeir enn fastar að taka hann af lífi þar sem hann braut ekki aðeins hvíldardagshelgina heldur kallaði líka Guð sinn eigin föður og gerði sjálfan sig þannig Guði jafnan.

Upprisa og líf

19 Þessu svaraði Jesús og sagði við þá: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Ekkert getur sonurinn gert af sjálfum sér. Hann gerir það eitt sem hann sér föðurinn gera. Því hvað sem hann gerir, gerir sonurinn einnig. 20 Faðirinn elskar soninn og sýnir honum allt sem hann gerir sjálfur. Hann mun sýna honum meiri verk en þessi svo að þér verðið furðu lostnir. 21 Eins og faðirinn vekur upp dauða og lífgar, þannig lífgar og sonurinn þá sem hann vill. 22 Enda dæmir faðirinn engan heldur hefur hann falið syninum allt dómsvald 23 svo að allir heiðri soninn eins og þeir heiðra föðurinn. Sá sem heiðrar ekki soninn, heiðrar ekki föðurinn sem sendi hann.
24 Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem heyrir orð mitt og trúir þeim sem sendi mig hefur eilíft líf og kemur ekki til dóms heldur er hann stiginn yfir frá dauðanum til lífsins. 25 Sannlega, sannlega segi ég yður: Sú stund kemur og er þegar komin að hinir dauðu munu heyra raust Guðs sonarins og þeir sem heyra munu lifa. 26 Eins og faðirinn hefur líf í sjálfum sér þannig hefur hann og veitt syninum að hafa líf í sjálfum sér. 27 Og hann hefur veitt honum vald til að halda dóm því að hann er Mannssonur. 28 Undrist þetta ekki. Sú stund kemur þegar allir þeir sem í gröfunum eru munu heyra raust hans 29 og ganga fram. Þeir sem gert hafa hið góða munu rísa upp til lífsins en þeir sem drýgt hafa hið illa munu rísa upp til dómsins. 30 Ég megna eigi að gera neitt af sjálfum mér. Ég dæmi samkvæmt því sem ég heyri og dómur minn er réttvís því að ég leita ekki míns vilja heldur vilja þess sem sendi mig.

Faðirinn vitnar

31 Ef ég vitna sjálfur um mig er vitnisburður minn ekki gildur. 32 Annar er sá sem vitnar um mig og ég veit að sá vitnisburður sem hann ber mér er sannur. 33 Þér hafið sent til Jóhannesar. Hann bar sannleikanum vitni. 34 Ekki þarf ég vitnisburð manns en ég segi þetta til þess að þér megið frelsast. 35 Hann var logandi og skínandi lampi. Þér vilduð um stund gleðjast við ljós hans. 36 Ég hef þann vitnisburð sem er meiri en Jóhannesar því verkin, sem faðir minn fékk mér að fullna, verkin, sem ég vinn, bera mér það vitni að faðirinn hefur sent mig. 37 Faðirinn sem sendi mig hefur sjálfur vitnað um mig. Þér hafið aldrei heyrt rödd hans né séð ásýnd hans. 38 Og orð hans býr ekki í yður því að þér trúið ekki þeim sem hann sendi. 39 Þér rannsakið ritningarnar því í þeim hyggist þér eiga eilíft líf. Og það eru þær sem vitna um mig 40 en þér viljið ekki koma til mín og öðlast lífið.
41 Ég þigg ekki heiður af mönnum 42 en ég þekki yður, ég veit að þér hafið ekki í yður kærleika til Guðs. 43 Ég er kominn í nafni föður míns og þér takið ekki við mér. Ef annar kæmi í sínu eigin nafni tækjuð þér við honum. 44 Hvernig getið þér trúað þegar þér þiggið heiður hver af öðrum en leitið ekki þess heiðurs sem er frá einum Guði? 45 Ætlið eigi að ég muni ákæra yður fyrir föðurnum. Sá sem ákærir yður er Móse og á hann vonið þér. 46 Ef þér tryðuð Móse munduð þér líka trúa mér því um mig hefur hann ritað. 47 Fyrst þér trúið ekki því sem hann skrifaði, hvernig getið þér þá trúað orðum mínum?“