1 Þetta hef ég talað til yðar svo að þér fallið ekki frá. 2 Þeir munu gera yður samkunduræk. Já, sú stund kemur að hver sem líflætur yður þykist veita Guði þjónustu. 3 Þetta munu þeir gera af því þeir þekkja hvorki föðurinn né mig. 4 Þetta hef ég talað til yðar til þess að þér minnist þess að ég sagði yður það þegar stund þeirra kemur.

Verk andans

Ég hef ekki sagt yður þetta frá öndverðu af því ég var með yður. 5 En nú fer ég til hans sem sendi mig og enginn yðar spyr mig: Hvert fer þú? 6 En hryggð hefur fyllt hjarta yðar af því að ég sagði yður þetta. 7 En ég segi yður sannleikann: Það er yður til góðs að ég fari burt því ef ég fer ekki kemur hjálparinn ekki til yðar. En ef ég fer sendi ég hann til yðar. 8 Þegar hann kemur mun hann sanna heiminum hvað er synd og réttlæti og dómur. 9 Syndin er að þeir trúðu ekki á mig, 10 réttlætið að ég fer til föðurins og þér sjáið mig ekki lengur 11 og dómurinn að höfðingi þessa heims er dæmdur.
12 Enn hef ég margt að segja yður en þér getið ekki skilið það nú. 13 En þegar andi sannleikans kemur mun hann leiða yður í allan sannleikann. Það sem hann segir yður hefur hann ekki frá sjálfum sér heldur mun hann segja yður það sem hann heyrir og kunngjöra yður það sem koma á. 14 Hann mun gera mig dýrlegan því af mínu mun hann taka og kunngjöra yður. 15 Allt sem faðirinn á er mitt. Því sagði ég að hann tæki af mínu og kunngjörði yður.

Hryggð mun snúast í fögnuð

16 Innan skamms sjáið þér mig ekki lengur og aftur innan skamms munuð þér sjá mig.“
17 Þá sögðu nokkrir lærisveina hans sín á milli: „Hvað er hann að segja við okkur: Innan skamms sjáið þér mig ekki og aftur innan skamms munuð þér sjá mig, og: Ég fer til föðurins?“ 18 Lærisveinarnir spurðu: „Hvað merkir þetta: Innan skamms? Við vitum ekki hvað hann er að fara.“
19 Jesús vissi að þeir vildu spyrja hann og sagði við þá: „Eruð þér að spyrjast á um það að ég sagði: Innan skamms sjáið þér mig ekki og aftur innan skamms munuð þér sjá mig? 20 Sannlega, sannlega segi ég yður: Þér munuð gráta og kveina en heimurinn mun fagna. Þér munuð hryggjast en hryggð yðar mun snúast í fögnuð. 21 Þegar konan fæðir er hún í nauð því stund hennar er komin. Þegar hún hefur alið barnið minnist hún ekki framar þrauta sinna af fögnuði yfir því að maður er í heiminn borinn. 22 Eins eruð þér nú hryggir en ég mun sjá yður aftur og hjarta yðar mun fagna og enginn tekur fögnuð yðar frá yður. 23 Á þeim degi munuð þér ekki spyrja mig neins. Sannlega, sannlega segi ég yður: Hvað sem þér biðjið föðurinn um í mínu nafni mun hann veita yður. 24 Hingað til hafið þér einskis beðið í mínu nafni. Biðjið og þér munuð öðlast svo að fögnuður yðar verði fullkominn.

Ég hef sigrað heiminn

25 Þetta hef ég sagt yður í líkingum. Sú stund kemur að ég tala ekki framar við yður í líkingum heldur mun ég berum orðum segja yður frá föðurnum. 26 Á þeim degi munuð þér biðja í mínu nafni. Ég segi yður ekki að ég muni biðja föðurinn fyrir yður 27 því sjálfur elskar faðirinn yður þar eð þér hafið elskað mig og trúað að ég sé frá Guði kominn. 28 Ég er kominn í heiminn frá föðurnum. Ég yfirgef heiminn aftur og fer til föðurins.“
29 Lærisveinar hans sögðu: „Nú talar þú berum orðum og mælir enga líking. 30 Nú vitum við að þú veist allt og þarft eigi að nokkur spyrji þig. Þess vegna trúum við að þú sért frá Guði kominn.“
31 Jesús svaraði: „Trúið þér nú? 32 Sú stund kemur og er komin að þér tvístrist hver til sín og skiljið mig einan eftir. Þó er ég ekki einn því faðirinn er með mér. 33 Þetta hef ég talað við yður svo að þér eigið frið í mér. Í heiminum hafið þér þrenging. En verið hughraustir. Ég hef sigrað heiminn.“