Júda og Tamar
1 Um þessar mundir bar svo við að Júda fór frá bræðrum sínum og settist að hjá manni að nafni Híra frá Adúllam. 2 Þar sá Júda dóttur kanversks manns sem Súa hét. Hann kvæntist henni og gekk inn til hennar. 3 Hún varð þunguð og ól son sem hún nefndi Ger. 4 Hún varð þunguð í annað sinn og ól son sem hún nefndi Ónan. 5 Enn ól hún son og nefndi hann Sela. Hún var stödd í Kesíb er hún ól hann.
6 Júda tók konu að nafni Tamar til handa Ger, frumgetnum syni sínum. 7 En Ger, frumgetinn sonur Júda, vakti andúð Drottins svo að Drottinn lét hann deyja. 8 Þá mælti Júda við Ónan: „Gakktu inn til konu bróður þíns og gegndu mágskyldunni við hana að þú megir afla bróður þínum afkvæmis.“ 9 Sökum þess að Ónan vissi að afkvæmið skyldi eigi verða hans þá lét hann sæðið spillast á jörðu í hvert sinn er hann gekk inn til konu bróður síns, til þess að komast hjá því að afla bróður sínum afkvæmis. 10 Með þessu vakti hann andúð Drottins sem lét hann einnig deyja. 11 Þá sagði Júda við Tamar, tengdadóttur sína: „Nú skalt þú búa sem ekkja í húsi föður þíns þangað til Sela, sonur minn, verður fulltíða.“ Hann óttaðist að ella mundi Sela deyja eins og bræður hans. Þá sneri Tamar heim og bjó í húsi föður síns.
12 En er fram liðu stundir andaðist dóttir Súa, kona Júda. Að sorgartímanum liðnum fór Júda ásamt Híra, vini sínum frá Adúllam, upp til Timna þar sem verið var að rýja sauði hans. 13 Þegar Tamar var sagt að tengdafaðir hennar væri farinn til Timna að rýja sauði sína, 14 þá fór hún úr ekkjubúningi sínum, huldi sig blæju og hjúpaði sig. Síðan settist hún við hlið Enaímborgar sem er við veginn til Timna. Henni var orðið ljóst að hún yrði ekki gefin Sela fyrir konu þó að hann væri orðinn fulltíða.
15 Júda kom auga á hana og hélt að hún væri skækja því að hún hafði hulið andlit sitt. 16 Hann sneri sér að henni við veginn: „Leyfðu mér að leggjast með þér!“ sagði hann því að hann vissi ekki að hún var tengdadóttir hans. Hún svaraði: „Hvað viltu gefa mér til að fá að leggjast með mér?“ spurði hún. 17 „Ég skal senda þér hafurkið úr hjörðinni,“ svaraði hann. Hún sagði: „Þá verðurðu að gefa mér pant þangað til þú sendir það.“ 18 Þá mælti hann: „Hvaða pant skal ég fá þér?“ En hún svaraði: „Innsiglishring þinn og festi þína og staf þinn sem þú heldur á.“ Hann lét hana hafa það sem hún bað um og lagðist síðan með henni og hún varð þunguð af hans völdum. 19 Tamar gekk síðan burt og lagði af sér blæjuna og fór aftur í ekkjubúning sinn.
20 Júda sendi hafurkiðið með vini sínum frá Adúllam til að fá aftur pantinn frá konunni en hann fann hana ekki. 21 Hann spurði menn þar á staðnum: „Hvar er portkonan sem sat við veginn hjá Enaím?“ „Hér hefur engin portkona verið,“ svöruðu þeir. 22 Hann sneri þá aftur til Júda og kvaðst ekki hafa fundið hana og menn þar á staðnum hefðu sagt: „Hér hefur engin portkona verið.“ 23 Þá sagði Júda: „Látum hana halda pantinum svo að ekki verði hæðst að okkur. Ég sendi þetta kið en þú fannst hana ekki.“
24 Þremur mánuðum síðar var Júda sagt: „Tamar, tengdadóttir þín, hefur drýgt hór og er orðin þunguð í hórdómi.“ Þá sagði Júda: „Leiðið hana út og brennið hana.“ 25 En er hún var leidd út sendi hún tengdaföður sínum svohljóðandi boð: „Ég er þunguð af völdum þess manns sem á þetta.“ Hún bætti við: „Kannaðu hver á þennan innsiglishring, festi og staf.“ 26 Júda þekkti gripina: „Hún hefur réttinn sín megin vegna þess að ég gifti hana ekki Sela, syni mínum,“ sagði hann og kenndi hennar ekki upp frá því.
27 Þegar hún hafði tekið léttasóttina kom í ljós að hún gekk með tvíbura 28 og meðan á fæðingunni stóð rétti annar þeirra út höndina. Tók þá ljósmóðirin rauðan þráð og batt um hönd hans og sagði: „Þessi birtist fyrr.“ 29 En hann kippti aftur að sér hendinni og bróðir hans birtist. Þá sagði hún: „Að sjá hvernig þú ryðst fram fyrir!“ Og hún nefndi hann Peres. [ 30 Síðan fæddist bróðir hans og var rauði þráðurinn um hönd hans. Hún nefndi hann Sera. [