Synir Ísraels
1 Synir Ísraels voru: Rúben, Símeon, Leví og Júda, Íssakar og Sebúlon, 2 Dan, Jósef og Benjamín, Naftalí, Gað og Asser.
Ættbálkur Júda. Niðjatal
3 Synir Júda voru Er og Ónan og Sela. Kanverska konan, dóttir Súa, ól honum þessa þrjá syni. En Er, frumburður Júda, var illur í augum Drottins svo að hann lét hann deyja. 4 Og Tamar, tengdadóttir Júda, ól honum Peres og Serak. Júda átti alls fimm syni. 5 Synir Peresar voru Hesrón og Hamúl. 6 Synir Seraks voru Simrí og Etan og Heman og Kalkól og Dara, alls fimm. 7 Og sonur Simrí var Karmí og sonur Karmí var Akar sem steypti Ísrael í ógæfu með því að stela því sem hafði verið helgað banni. 8 Og sonur Etans var Asarja. 9 Hesrón fæddust synirnir Jerahmeel og Ram og Kelúbaí.
10 Og Ram gat Ammínadab og Ammínadab gat Nahson, höfðingja Júdamanna, 11 og Nahson gat Salma og Salma gat Bóas 12 og Bóas gat Óbeð og Óbeð gat Ísaí 13 og Ísaí gat Elíab, frumburð sinn, og þá Abínadab og Símea hinn þriðja, 14 Netaneel hinn fjórða, Raddaí hinn fimmta, 15 Ósem hinn sjötta, Davíð hinn sjöunda. 16 Og systur þeirra voru Serúja og Abígail. Og synir Serúju voru Abísaí og Jóab og Asahel, þeir voru þrír. 17 Og Abígail ól Amasa og faðir Amasa var Jeter Ísmaelíti.
18 Og Kaleb Hesrónsson gat dótturina Jeríót við Asúbu, konu sinni, og þetta voru synir hennar: Jeser og Sóbab og Ardon. 19 En þegar Asúba var dáin tók Kaleb Efrat sér fyrir konu og hún ól honum Húr. 20 Og Húr gat Úrí og Úrí gat Besaleel.[
21 Hesrón gekk síðan inn til dóttur Makírs, föður Gíleaðs. Hann hafði tekið hana sér fyrir konu þegar hann var sextíu ára. Hún ól honum Segúb 22 og Segúb gat Jaír. Hann átti tuttugu og þrjár borgir í landi Gíleaðs 23 en Gesúr og Aram tóku af þeim þorp Jaírs ásamt Kenat og þorpunum umhverfis, alls sextíu borgir. Allir þessir menn voru synir Makírs, föður Gíleaðs. 24 Og eftir andlát Hesróns gekk Kaleb inn til Efrötu, konu Hesróns, föður hans. Og hún ól honum Asúr, föður Tekóa.
25 Og synir Jerahmeels, frumburðar Hesróns, voru frumburðurinn Ram og Búna og Óren og Ósem og Ahía. 26 Og Jerahmeel átti aðra konu sem hét Atara. Hún var móðir Ónams. 27 Og synir Rams, frumburðar Jerahmeels, voru Maas og Jamín og Eker. 28 Og synir Ónams voru Sammaí og Jada. Og synir Sammaí voru Nadab og Abísúr. 29 Og kona Bísúrs hét Abíhaíl og hún fæddi honum Akban og Mólíd. 30 Og synir Nadabs voru Seled og Appaín en Seled dó barnlaus. 31 Sonur Appaíms var Jíseí og sonur Jíseí Sesan. Og sonur Sesans var Ahelaí. 32 Og synir Jada, bróður Sammaí, voru Jeter og Jónatan en Jeter dó barnlaus. 33 Og synir Jónatans voru Pelet og Sasa. Þetta voru synir Jerahmeels.
34 Sesan átti enga syni, aðeins dætur. En Sesan átti egypskan þræl, Jarha að nafni. 35 Sesan gaf Jarha, þræli sínum, dóttur sína fyrir konu og hún ól honum Attaí. 36 Og Attaí gat Natan og Natan gat Sabat 37 og Sabat gat Eflal og Eflal gat Óbeð 38 og Óbeð gat Jehú og Jehú gat Asarja 39 og Asarja gat Heles og Heles gat Eleasa 40 og Eleasa gat Sísemaí og Sísemaí gat Sallúm 41 og Sallúm gat Jekamja og Jekamja gat Elísama.
42 Og synir Kalebs, bróður Jerahmeels, voru Mesa, frumburður hans, hann var faðir Sífs, og næstelsti sonur hans var Maresa, faðir Hebrons. 43 Og synir Hebrons voru Kóra og Tappúa og Rekem og Sema. 44 Og Sema gat Raham, föður Jorkeams, og Rekem gat Sammaí 45 og sonur Sammaí var Maon og Maon var faðir Bet Súrs.
46 Og Efa, hjákona Kalebs, ól Haran og Mósa og Gases. Og Haran gat Jehdaí. 47 Og synir Jehdaí voru Regem og Jótam og Gesan og Pelet og Efa og Saaf.
48 Og Maaka, hjákona Kalebs, ól Seber og Tírkana 49 og hún ól einnig Saaf, föður Madmanna og Sefa, föður Makbena og Gíbea. Og Aksa var dóttir Kalebs. 50 Þetta voru synir Kalebs.
Synir Húrs, frumburðar Efrata, voru Sóbal, faðir Kirjat Jearíms, 51 Salma, faðir Betlehems, Haref, faðir Bet Gaders. 52 Og Sóbal, faðir Kirjat Jearíms, átti að sonum Reaja og helming Manaktíta 53 og helming ættbálkanna frá Kirjat Jearím, Jítríta og Pútíta og Súmatíta og Misraíta. Sóreatítar og Estoalítar eru komnir af þeim. 54 Synir Salma, föður Betlehems, voru Netófatítar, Atrót Bet Jóab og helmingur Manatíta, það er Sóreítar, 55 ættir Sifríta,[ sem búa í Jabes, Tíreatíta, Símeatíta og Súkatíta. Þeir voru Kínítar, komnir frá Hammat, föður Rekabs ættar.