Hjörð Guðs og hirðar
1 Orð Drottins kom til mín:
2 Mannssonur, spáðu gegn hirðum Ísraels og segðu við þá: Svo segir Drottinn Guð: Vei hirðum Ísraels sem aðeins hirða um sjálfa sig. Eiga þeir ekki að halda fénu á beit? 3 Þið drekkið mjólkina og klæðist ullinni, slátrið feitustu sauðunum en um hjörðina hirðið þið ekki. 4 Þið hafið ekki hjálpað hinu veikburða, ekki læknað hið sjúka, ekki bundið um hið særða og hvorki sótt það sem hraktist burt né leitað þess sem týndist, en hið sterka hafið þið leitt með harðri hendi. 5 Fé mitt tvístraðist þar sem hirðir var enginn og það varð villidýrum að bráð. Fé mitt tvístraðist 6 og rásaði um öll fjöll og alla háa hóla. Sauðirnir úr hjörð minni dreifðust um allar jarðir en enginn spurði um þá og enginn leitaði þeirra. 7 Heyrið því, hirðar, orð Drottins: 8 Svo sannarlega sem ég lifi, segir Drottinn Guð: Sauðunum í hjörð minni hefur verið rænt og fé mitt orðið villidýrum að bráð úti á bersvæði þar sem hirðir var enginn. Hirðar mínir leituðu ekki fjár míns en hirtu aðeins um sjálfa sig en ekki um sauði mína. 9 Heyrið því, hirðar, orð Drottins. 10 Svo segir Drottinn Guð: Hlustið. Ég ætla að halda gegn hirðunum og krefjast sauða minna úr hendi þeirra. Ég læt þá hætta að hirða um fé mitt, þeir skulu ekki fá að hirða um eigin hag framar. Ég bjarga hjörð minni úr munni þeirra, hún skal ekki verða fæða þeirra framar.
Góði hirðirinn
11 Því að svo segir Drottinn Guð: Nú ætla ég sjálfur að leita sauða minna og líta eftir þeim. 12 Eins og hirðir lítur eftir hjörð sinni þegar hún er á dreif í kringum hann mun ég fylgjast með mínu fé. Ég mun bjarga sauðum mínum frá öllum þeim stöðum sem þeir dreifðust til á hinum dimma og drungalega degi. 13 Ég mun leiða þá burt frá þjóðunum, safna þeim saman úr löndunum og leiða þá heim til síns eigin lands. Ég mun halda þeim í haga á fjöllum Ísraels, í daladrögum og á hverju byggðu bóli í landinu. 14 Ég mun sjálfur halda þeim til beitar í góðu haglendi, beitiland þeirra verður á háfjöllum Ísraels. Þar munu þeir leggjast og ganga í frjósömu haglendi á fjöllum Ísraels. 15 Ég mun sjálfur halda fé mínu til beitar og sjá því fyrir hvíldarstað, segir Drottinn Guð. 16 Ég mun leita þess sem villist og sækja hið hrakta, binda um hið limlesta og styrkja hið veikburða. Ég mun gæta hins feita og þróttmikla og halda því í haga eins og rétt er.
17 En þú, hjörð mín, svo segir Drottinn Guð: Ég dæmi milli kindar og kindar, milli hrúta og hafra. 18 Nægir ykkur ekki að ganga í besta haglendi? Þurfið þið að traðka það niður sem eftir er af haga ykkar? Þegar þið hafið drukkið tært vatn, þurfið þið þá að grugga það sem eftir er með fótunum? 19 Þá verða sauðirnir í hjörð minni að vera á beit í flaginu sem fætur ykkar hafa traðkað og drekka það sem fætur ykkar hafa gruggað. 20 Þess vegna segir Drottinn Guð við ykkur: Ég mun sjálfur dæma milli vænna sauða og magurra. 21 Þar sem þið ryðjið öllum hinum veikburða úr vegi með hupp og bógi og stangið þá með hornunum þar til þið hafið hrakið þá í burtu 22 ætla ég að hjálpa sauðum mínum svo að þeir verði ekki framar teknir sem ránsfengur. Ég mun dæma milli kindar og kindar. 23 Ég mun setja einn hirði yfir þá sem mun halda þeim í haga, þjón minn Davíð. Hann mun halda þeim í haga og hann verður hirðir þeirra. 24 Ég sjálfur, Drottinn, verð Guð þeirra en Davíð, þjónn minn, verður höfðingi á meðal þeirra. Ég, Drottinn, hef talað.
25 Ég mun gera sáttmála við þá þeim til heilla og eyða rándýrum úr landinu. Þá munu þeir búa óhultir í eyðimörkinni og sofa í skógunum. 26 Ég læt þá og umhverfi hæðar minnar bera blessun og ég mun senda regn á réttum tíma, regn til blessunar. 27 Trén á sléttunni skulu bera ávöxt og landið gefa af sér og þeir verða óhultir í landi sínu. Þeir munu skilja að ég er Drottinn þegar ég brýt okið af þeim og frelsa þá úr greipum þeirra sem þrælka þá. 28 Þeir skulu ekki framar verða ránsfengur framandi þjóða og villidýrin í landinu munu ekki heldur rífa þá í sig. Þeir munu búa óhultir og enginn mun hrekja þá í burtu.
29 Þeim til heilla mun ég rækta þeim garð[ svo að þeir verði ekki framar hungri að bráð í landinu og þurfi ekki að þola smánaryrði framandi þjóða. 30 Þá munu þeir skilja að ég, Drottinn, er Guð þeirra. Ég er með þeim og Ísraelsmenn eru þjóð mín, segir Drottinn Guð.
31 Þið eruð hjörð mín sem ég held í haga. Ég er Guð ykkar, segir Drottinn Guð.