Abímelek
1 Abímelek Jerúbbaalsson fór til Síkem til móðurbræðra sinna og talaði við þá og við allt frændlið móðurættar sinnar á þessa leið: 2 „Talið svo í eyru allra Síkembúa: Hvort fellur ykkur betur að sjötíu menn, allir synir Jerúbbaals, drottni yfir ykkur eða að einn maður drottni yfir ykkur? Minnist þess einnig að ég er hold ykkar og bein.“ 3 Móðurbræður hans mæltu öll þessi orð um hann í eyru Síkembúa svo að hugur þeirra hneigðist að Abímelek og þeir sögðu: „Hann er bróðir okkar.“ 4 Þeir gáfu honum sjötíu sikla silfurs úr musteri Baals Berits og Abímelek leigði fyrir þá þrjóta og lausamenn og gerðist fyrirliði þeirra. 5 Því næst fór hann til húss föður síns í Ofra og drap bræður sína, syni Jerúbbaals, alls sjötíu manns, á einum steini. Jótam, yngsti sonur Jerúbbaals, komst einn undan en hann hafði falið sig. 6 En allir Síkembúar söfnuðust nú saman og allir þeir sem bjuggu í Bet Milló og tóku þeir Abímelek til konungs hjá merkisteinseikinni við Síkem.
7 Þegar Jótam frétti þetta fór hann og stóð á tindi Garísímfjalls, hóf upp rödd sína, kallaði og mælti til þeirra: „Heyrið mig, Síkembúar, svo að Guð heyri ykkur.
8 Einu sinni hugðust trén smyrja konung sér til handa. Og þau sögðu við olíutréð: Ver þú konungur yfir okkur. 9 En olíutréð sagði við þau: Á ég að láta eftir olíu mína sem Guð og menn virða mig fyrir og fara að sveima uppi yfir trjánum?
10 Þá sögðu trén við fíkjutréð: Komdu og vertu konungur yfir okkur. 11 En fíkjutréð svaraði þeim: Á ég þá að láta eftir sætu mína og ávextina gómsætu og fara að sveima uppi yfir trjánum?
12 Þá sögðu trén við vínviðinn: Komdu og vertu konungur yfir okkur.
13 En vínviðurinn sagði við þau: Á ég að láta eftir vínlög minn, sem gleður bæði Guð og menn, og fara að sveima uppi yfir trjánum?
14 Þá sögðu öll trén við þyrninn: Komdu og vertu konungur yfir okkur. 15 En þyrnirinn sagði við trén: Ef það er alvara ykkar að smyrja mig til konungs, komið þá og fáið ykkur skjól í skugga mínum. En sé ekki svo þá gangi eldur út frá þyrninum og eyði sedrustrjánum á Líbanon.
16 Ef þið hafið sýnt hreinskilni og einlægni í því að taka Abímelek til konungs, ef þið hafið gert vel við Jerúbbaal og hús hans og ef þið hafið breytt við hann eins og hann hafði til unnið – 17 því að faðir minn barðist fyrir ykkur og stofnaði lífi sínu í hættu og ykkur frelsaði hann úr höndum Midíans 18 en þið hafið í dag risið upp gegn húsi föður míns og drepið syni hans, sjötíu að tölu, á einum steini og tekið Abímelek, son ambáttar hans, til konungs yfir Síkembúa af því að hann er bróðir ykkar – 19 og ef þið hafið þá sýnt Jerúbbaal og ætt hans hreinskilni og einlægni í dag, þá gleðjist yfir Abímelek og gleðjist hann þá líka yfir ykkur.
20 En ef svo er ekki, þá gangi eldur út frá Abímelek og eyði Síkembúum og þeim sem búa í Bet Milló og eldur gangi út frá Síkembúum og þeim sem búa í Bet Milló og eyði Abímelek.“ 21 Síðan lagði Jótam á flótta og fór til Beer. Þar dvaldist hann vegna Abímeleks, bróður síns.
22 Abímelek réð nú fyrir Ísrael í þrjú ár. 23 Þá sendi Guð anda sundurþykkis milli Abímeleks og Síkembúa, svo að Síkembúar brugðu trúnaði við Abímelek, 24 til þess að hefnd gæti komið fyrir níðingsverkið á sjötíu sonum Jerúbbaals og að blóð þeirra kæmi yfir Abímelek, bróður þeirra, sem hafði drepið þá, og Síkembúa sem höfðu hjálpað honum að drepa bræður sína. 25 Settu Síkembúar þá menn í fyrirsát gegn honum hæst á fjöllum uppi og rændu þeir alla þá er um veginn fóru fram hjá þeim. Og Abímelek var sagt frá þessu.
26 Þá komu Gaal Ebedsson og bræður hans. Þeir héldu inn í Síkem og Síkembúar fengu traust á honum. 27 Þeir fóru út á akurinn, tíndu vínber í víngörðum sínum og tróðu þau og héldu hátíð, fóru inn í musteri guðs síns, átu og drukku og bölvuðu Abímelek. 28 Og Gaal Ebedsson sagði: „Hver er Abímelek og hverjir erum við í Síkem, að við eigum að lúta honum? Er hann ekki sonur Jerúbbaals og Sebúl höfuðsmaður hans? Þessir menn lutu mönnum Hemors, stofnanda Síkem. Hví skyldum við lúta honum? 29 Ef þetta fólk væri undir minni stjórn skyldi ég ekki vera lengi að reka Abímelek burt. Ég mundi skora á Abímelek: Fylktu liði og gakktu fram.“
30 Er Sebúl, höfuðsmaður borgarinnar, frétti ummæli Gaals Ebedssonar varð hann afar reiður, 31 sendi menn á laun til Abímeleks og lét segja honum: „Gaal Ebedsson og bræður hans eru komnir til Síkem og æsa þeir borgina upp gegn þér. 32 Farðu nú af stað að næturlagi með liðið sem hjá þér er og feldu þig á ökrunum. 33 Að morgni, þegar sól rennur upp, skalt þú vera snemma á fótum og ráðast á borgina. Þá mun hann og lið hans fara út á móti þér og þú skalt þá fara með hann eins og færi gefst.“
34 Þá fór Abímelek af stað um nótt með allt lið sitt og þeir leyndust á fjórum stöðum fyrir Síkem. 35 Þegar Gaal Ebedsson kom út og nam staðar fyrir utan borgarhliðið spratt Abímelek upp úr launsátrinu og liðið sem með honum var. 36 Gaal sá liðið og sagði við Sebúl: „Sjá, þarna kemur fólk ofan af fjöllunum.“ En Sebúl sagði við hann: „Þú sérð skuggana í fjöllunum og heldur að það séu menn.“ 37 En Gaal þagnaði ekki og sagði: „Þarna kemur fólk niður frá Tabbúrerets og annar hópur kemur frá Elónmeónením.“ 38 Þá mælti Sebúl við hann: „Hvar
eru nú stóryrði þín? Þú sagðir: Hver er Abímelek? Ber okkur að lúta honum? Er þetta ekki liðið sem þú fyrirleist? Farðu út og berstu við það.“ 39 Fór Gaal þá fyrir Síkembúum og barðist við Abímelek. 40 En Abímelek sótti svo hart að honum að hann flýði fyrir honum og varð þar mannfall mikið allt að borgarhliðinu. 41 Eftir það dvaldist Abímelek í Arúma en Sebúl rak Gaal og bræður hans burt svo að þeir gátu ekki búið í Síkem.
42 En daginn eftir fór fólkið út á akurinn og sögðu menn Abímelek frá þessu. 43 Þá tók hann lið sitt, skipti því í þrjár sveitir og leyndist á akrinum. Þegar hann sá fólkið koma út úr borginni réðst hann á það og vann sigur á því. 44 Abímelek sjálfur og sveitin, sem með honum var, skundaði fram og nam staðar fyrir borgarhliðinu en báðar hinar sveitirnar gerðu áhlaup á alla þá sem voru úti á víðavangi og unnu sigur á þeim. 45 Því næst herjaði Abímelek á borgina allan þann dag, vann hana og drap fólkið sem í henni var. Hann braut síðan niður borgina og stráði yfir hana salti.[
46 Þegar allir þeir menn, sem bjuggu í Síkemturni, heyrðu þetta gengu þeir inn í hvelfinguna í musteri Sáttmála-guðs. 47 Og er Abímelek var sagt frá því að allir menn í Síkemturni hefðu safnast þar saman 48 fór hann upp á Salmónfjall með allt lið sitt. Og Abímelek tók öxi í hönd sér og hjó af trjágrein, hóf hana á loft og lagði á herðar sér og sagði við liðið sem með honum var: „Gerið nú sem skjótast það sama og þið sáuð mig gera.“
49 Þá hjuggu allir mennirnir hver sína grein, fylgdu Abímelek og báru þær að hvelfingunni og lögðu síðan eld í hvelfinguna yfir þeim. Þannig dóu allir menn í Síkemturni, hér um bil þúsund karlar og konur.
Dauði Abímeleks
50 Síðan fór Abímelek til Tebes og settist um Tebes og vann hana. 51 Í miðri borginni var rammgerður turn. Þangað flýðu allir borgarbúar, jafnt karlar sem konur. Lokuðu þeir sig þar inni og fóru síðan upp á þakið á turninum. 52 Nú kom Abímelek að turninum og gerði árás á hann. En þegar hann gekk að dyrum turnsins til þess að leggja eld í hann 53 kastaði kona ein efri kvarnarsteini í höfuð Abímeleks og mölvaði sundur hauskúpuna. 54 Þá kallaði hann sem skjótast til skjaldsveins síns og mælti við hann: „Bregð þú sverði þínu og dreptu mig svo að ekki verði sagt um mig: Kona drap hann.“ Þá lagði sveinn hans hann í gegn og varð það hans bani. 55 Þegar Ísraelsmenn sáu að Abímelek var fallinn fóru þeir hver til síns heima. 56 Þannig launaði Guð illsku Abímeleks sem hann hafði sýnt föður sínum þegar hann drap sjötíu bræður sína. 57 Og Guð lét alla illsku Síkembúa koma þeim í koll. Rættist þannig á þeim formæling Jótams Jerúbbaalssonar.