1 Drottinn almáttugur, Guð Ísraels. Það er sál í nauð og þjakaður andi sem hrópar til þín. 2 Heyr, Drottinn, og miskunna þú því að vér höfum syndgað gegn þér. 3 Þú ríkir að eilífu en vér erum að eilífu glataðir. 4 Drottinn almáttugur, Guð Ísraels. Hlýð á bænir látinna Ísraelsmanna og afkomenda þeirra sem syndguðu gegn þér. Þeir hlýddu ekki raust Drottins Guðs síns og sakir þess hefur ógæfan fylgt oss. 5 Minnstu ekki misgjörða feðranna. Minnstu heldur máttar þíns og nafns þíns á þessari stundu. 6 Því að þú ert Drottinn Guð og vér skulum syngja þér lof, Drottinn. 7 Til þess lagðir þú guðsótta í hjörtu vor að vér ákölluðum nafn þitt. Þér lofsyngjum vér í útlegð vorri því að vér höfum rýmt úr hjörtum vorum öllu ranglæti feðra vorra sem syndguðu gegn þér. 8 Nú erum vér í útlegð þar sem þú dreifðir oss til smánar og bölvunar. Oss er hegnt fyrir allar misgjörðir feðra vorra sem brugðu trúnaði við Drottin Guð.

Spekin vegsömuð

9Heyr, Ísrael, boð lífsins,
takið eftir svo að þér öðlist skilning.
10 Hvers vegna, Ísrael,
hví ert þú í landi óvina?
Hví ertu orðinn aldurhniginn í framandi landi?
11 Hví ertu flekkaður eins og nár
og talinn með þeim sem gengnir eru til heljar?
12 Þú yfirgafst lind spekinnar.
13 Hefðir þú gengið á Guðs vegum
sætir þú heill heima um aldur.
14 Lærðu því hvar hyggindi eru og kraftur
og hvar skilning er að finna.
Þá munt þú einnig komast að raun um
hvar líf er að finna, hvar augu ljóma af gleði
og hvar langlífi og friður finnst.
15 Hver hefur fundið bústað spekinnar,
hver gengið í forðabúr hennar?
16 Hvar eru þeir sem réðu þjóðum
og drottnuðu yfir dýrum jarðarinnar?
17 Hvar eru þeir sem höfðu fugla himins að leikfangi
og söfnuðu auði gulls og silfurs
sem mennirnir treysta á
og gera allt til að eignast?
18 Hvar eru þeir sem mótuðu silfrið með kostgæfni?
Hvar má finna snilli þeirra?
19 Þeir eru horfnir og stignir niður til heljar
og aðrir komnir í þeirra stað.
20 Nýjar kynslóðir litu dagsljósið og bjuggu á jörðu
en veg spekinnar þekktu þær eigi.
21 Þær báru ekki skyn á stigu hennar
og fóru á mis við hana
og niðjar þeirra fóru víðs fjarri vegum spekinnar.
22 Til spekinnar spurðist ekki í Kanaan
og ekki birtist hún heldur í Teman.
23 Niðjar Hagar, sem leituðu spekinnar á jörðu,
og kaupmenn frá Merran og Tema,
sagnaþulir og vísdómsleitendur
fundu ekki heldur veg spekinnar
og hirtu ekki um stigu hennar.
24 Ó, Ísrael, hve mikilfenglegur er bústaður Drottins,
hve víðáttumiklar lendur hans.
25 Þær eru stórar og óendanlegar,
háar og ómælanlegar.
26 Þar fæddust nafnfrægu risarnir,
fortíðarhetjurnar voldugu og vígkænu.
27 En Guð útvaldi þá ekki
og vísaði þeim ekki veg spekinnar.
28 Þeir fórust vegna skorts á hyggindum,
glötuðust vegna heimsku sinnar.
29 Hver hefur stigið upp í himininn og sótt spekina
og komið með hana niður úr skýjunum?
30 Hver hefur haldið yfir um hafið og fundið hana
og keypt spekina fyrir skírasta gull?
31 Alls enginn þekkir veginn til hennar
eða lætur sig varða um stigu hennar.
32 En sá sem allt veit þekkir spekina
og hefur fundið hana af innsæi sínu,
sá sem mótaði jörðina fyrir eilífar aldir
og fyllti hana ferfætlingum.
33 Hann sendir út ljósið og það fer,
hann kallar á það og titrandi hlýðir það honum.
34 Stjörnurnar tendrast á varðstöðvum sínum
og ljóma af gleði.
35 Hann kallar á þær og þær segja: „Hér erum vér.“
Með fögnuði skína þær við skapara sínum.
36 Þannig er Guð vor.
Við hann verður engum jafnað.
37 Hann fann allan veg spekinnar
og gaf hana Jakobi, þjóni sínum,
og Ísrael sem hann elskaði.
38 Eftir það birtist hún á jörðu,
og bjó með mönnunum.