Sýnir spámannsins
Fyrsta sýn: Engisprettur
 1Drottinn Guð birti mér í sýn: 
Sjáðu, hann gerði engisprettur 
þegar háin tók að spretta eftir konungsslátt. 
   2Þegar þær voru að ljúka við allt grængresið í landinu 
hrópaði ég: „Drottinn Guð, fyrirgef. 
Hvernig getur Jakob afborið þetta, þar sem hann er svo lítill?“ 
   3Þá iðraðist Drottinn og sagði: 
„Það skal ekki verða.“  
Önnur sýn: Eldur
 4Drottinn Guð birti mér í sýn: 
Drottinn Guð hrópaði á refsandi eld
og hann gleypti hið mikla djúp. 
En þegar hann tók að gleypa þurrlendið 
   5sagði ég: „Drottinn Guð, hættu. 
Hvernig getur Jakob afborið þetta, hann er svo lítill?“
   6Þá iðraðist Drottinn og sagði: 
„Það skal ekki heldur verða.“  
Þriðja sýn: Lóðlína
 7Drottinn Guð birti mér í sýn: 
Sjáðu, maður nokkur stóð uppi á múrvegg 
með lóðlínu í hendi. 
   8Drottinn spurði mig: „Hvað sérðu, Amos?“ 
Ég svaraði: „Lóðlínu.“ 
Þá sagði Drottinn: 
„Sjá, ég mun leggja lóðlínu við lýð minn, Ísrael. 
Ég mun ekki framar láta hann afskiptalausan. 
   9Fórnarhæðir Ísaks verða lagðar í eyði
og helgistaðir Ísraels brotnir til grunna, 
og ég mun rísa upp gegn ætt Jeróbóams með sverð í hendi.“  
Amos og Amasía
10 Amasía, prestur í Betel, sendi Jeróbóam Ísraelskonungi þessi boð: „Amos gerir uppreisn gegn þér mitt í Ísraelsríki. Boðskapur hans er óþolandi fyrir landið                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                     11 því að Amos boðar þetta: Jeróbóam mun falla fyrir sverði og Ísraelsmenn verða fluttir úr landi sínu í útlegð.“
 12 En við Amos sagði Amasía: „Sjáandi, farðu héðan og flýðu til Júda. Þar geturðu unnið fyrir mat þínum sem spámaður. 13 En þú getur ekki haldið áfram að koma fram sem spámaður í Betel því að það er konunglegur helgistaður og ríkismusteri.“
 14 Amos svaraði Amasía og sagði: „Ég er ekki spámaður og ekki lærisveinn spámanns, heldur fjárhirðir og rækta mórber. 15 En Drottinn sótti mig til hjarðarinnar og Drottinn sagði við mig: Farðu og starfaðu sem spámaður fyrir þjóð mína, Ísrael. 16 En hlustaðu nú á orð Drottins: Þú hefur sagt: Þú mátt ekki starfa sem spámaður gegn Ísrael og ekki flytja spámannleg orð gegn ætt Ísaks. 
 17 Þess vegna segir Drottinn:
Eiginkona þín verður skækja í borginni, 
synir þínir og dætur munu falla fyrir sverði, 
landareign þinni verður skipt með mælisnúru 
og sjálfur munt þú deyja í óhreinu landi. 
18Ísraelsmenn verða fluttir úr landi sínu í útlegð.“  
