Jesús tekinn höndum
1 Þegar Jesús hafði þetta mælt fór hann út með lærisveinum sínum og yfir um lækinn Kedron. Þar var grasgarður sem Jesús gekk inn í og lærisveinar hans. 2 Júdas, sem sveik hann, þekkti líka þennan stað því Jesús og lærisveinar hans höfðu oft komið þar saman. 3 Júdas tók með sér flokk hermanna og verði frá æðstu prestum og faríseum. Þeir koma þar með blysum, lömpum og vopnum. 4 Jesús vissi allt sem yfir hann mundi koma, gekk fram og sagði við þá: „Að hverjum leitið þið?“
5 Þeir svöruðu honum: „Að Jesú frá Nasaret.“
Hann segir við þá: „Ég er hann.“
En Júdas, sem sveik hann, stóð líka hjá þeim. 6 Þegar Jesús sagði við þá: „Ég er hann,“ hopuðu þeir á hæl og féllu til jarðar. 7 Þá spurði hann þá aftur: „Að hverjum leitið þið?“
Þeir svöruðu: „Að Jesú frá Nasaret.“
8 Jesús mælti: „Ég sagði ykkur að ég væri hann. Ef þið leitið mín þá lofið þessum að fara.“ 9 Þannig rættist orð hans er hann hafði mælt: „Engum glataði ég af þeim sem þú gafst mér.“
10 Símon Pétur hafði sverð, brá því og hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum hægra eyrað. Þjónninn hét Malkus. 11 Þá sagði Jesús við Pétur: „Slíðra þú sverð þitt. Á ég ekki að drekka kaleikinn sem faðirinn hefur fengið mér?“
Jesús yfirheyrður
12 Hermennirnir, foringinn og varðmenn Gyðinga[ tóku nú Jesú höndum, bundu hann 13 og færðu hann fyrst til Annasar. Hann var tengdafaðir Kaífasar sem var æðsti prestur það ár. 14 En Kaífas var sá sem hafði gefið Gyðingum það ráð að betra væri að einn maður dæi fyrir lýðinn.
15 Símon Pétur fylgdi Jesú og annar lærisveinn. Sá lærisveinn var kunnugur æðsta prestinum og fór með Jesú inn í hallargarð æðsta prestsins. 16 En Pétur stóð utan dyra. Hinn lærisveinninn, sem var kunnugur æðsta prestinum, kom út aftur, talaði við þernuna, sem gætti dyra, og fór inn með Pétur. 17 Þernan við dyrnar sagði þá við Pétur: „Ert þú ekki líka einn af lærisveinum þessa manns?“
Hann sagði: „Ekki er ég það.“
18 Þjónarnir og varðmennirnir höfðu kveikt kolaeld því kalt var og stóðu við hann og vermdu sig. Pétur stóð hjá þeim og ornaði sér.
19 Nú spurði æðsti presturinn Jesú um lærisveina hans og kenningu hans.
20 Jesús svaraði honum: „Ég hef talað í áheyrn allra. Ég hef ætíð kennt í samkundunni og í helgidóminum þar sem allir Gyðingar safnast saman en í leynum hef ég ekkert talað. 21 Hví spyr þú mig? Spyrðu þá sem heyrt hafa hvað ég hef við þá talað. Þeir vita hvað ég hef sagt.“
22 Þegar Jesús sagði þetta rak einn varðmaður, sem þar stóð, honum löðrung og sagði: „Svarar þú æðsta prestinum svona?“
23 Jesús svaraði honum: „Hafi ég illa mælt þá sanna þú að svo hafi verið en hafi ég rétt að mæla, hví slær þú mig?“ 24 Þá sendi Annas hann bundinn til Kaífasar æðsta prests.
25 En Símon Pétur stóð og vermdi sig. Hann var þá spurður: „Ert þú ekki líka einn af lærisveinum hans?“
Hann neitaði því og sagði: „Ekki er ég það.“
26 Þá sagði einn af þjónum æðsta prestsins, frændi þess sem Pétur sneið af eyrað: „Sá ég þig ekki í grasgarðinum með honum?“
27 Aftur neitaði Pétur og um leið gól hani.
Fyrir Pílatusi
28 Menn æðsta prestsins fóru nú með Jesú frá Kaífasi til hallar landshöfðingjans. Það var snemma morguns. Þeir fóru ekki sjálfir inn í höllina svo að þeir saurguðust ekki heldur mættu neyta páskamáltíðar. 29 Pílatus kom út til þeirra og sagði: „Hvaða ákæru berið þið fram gegn þessum manni?“
30 Þeir svöruðu: „Ef þetta væri ekki illvirki hefðum við ekki selt hann þér í hendur.“
31 Pílatus segir við þá: „Takið þið hann og dæmið hann eftir ykkar lögum.“
Þeir[ svöruðu: „Okkur leyfist ekki að taka neinn af lífi.“ 32 Þannig rættist orð Jesú þegar hann gaf til kynna með hvaða hætti hann ætti að deyja.
33 Pílatus gekk þá aftur inn í höllina, kallaði Jesú fyrir sig og sagði við hann: „Ert þú konungur Gyðinga?“
34 Jesús svaraði: „Eru þetta þín orð eða hafa aðrir sagt þér frá mér?“
35 Pílatus svaraði: „Er ég þá Gyðingur? Þjóð þín og æðstu prestarnir hafa selt þig mér í hendur. Hvað hefur þú gert?“
36 Jesús svaraði: „Mitt ríki er ekki af þessum heimi. Væri mitt ríki af þessum heimi hefðu þjónar mínir barist svo ég yrði ekki framseldur Gyðingum. En nú er ríki mitt ekki þaðan.“
37 Þá segir Pílatus við hann: „Þú ert þá konungur?“
Jesús svaraði: „Rétt segir þú. Ég er konungur.[ Til þess er ég fæddur og til þess er ég kominn í heiminn að ég beri sannleikanum vitni. Hver sem er sannleikans megin heyrir mína rödd.“
38 Pílatus segir við hann: „Hvað er sannleikur?“
Jesús dæmdur til dauða
Að svo mæltu gekk hann aftur út til Gyðinga og sagði við þá: „Ég finn enga sök hjá honum. 39 Þið eruð vanir því að ég gefi ykkur einn mann lausan á páskunum. Viljið þið nú að ég gefi ykkur lausan konung Gyðinga?“
40 Þeir hrópuðu á móti: „Ekki hann heldur Barabbas.“ En Barabbas var ræningi.