Orð móður Lemúels
1 Orð Lemúels konungs í Massa 
sem móðir hans kenndi honum: 
  2Hvað á ég að segja þér, sonur minn, 
sonur kviðar míns, 
sonur áheita minna? 
   3Gefðu konum ekki kraft þinn, 
þrek þitt þeim sem táldraga konunga. 
   4Ekki sæmir það konungum, Lemúel, 
ekki sæmir það konungum að drekka vín 
eða höfðingjum áfengur drykkur. 
   5Þeir kynnu að drekka og gleyma lögunum 
og ganga á rétt hinna fátæku. 
   6Gefið áfengan drykk hinum lánlausa 
og vín þeim sem er beiskur í lund. 
   7Drekki þeir og gleymi fátækt sinni 
og minnist ekki framar mæðu sinnar. 
   8Ljúktu upp munni þínum fyrir hinn mállausa, 
fyrir málstað allra lánleysingja. 
   9Ljúktu upp munni þínum, dæmdu af réttvísi, 
réttu hlut hinna voluðu og snauðu.  
Lof um dugmikla konu
 10Dugmikla konu, hver hlýtur hana? 
   Hún er miklu dýrmætari en perlur. 
   11Hjarta manns hennar treystir henni 
og ekki er lát á hagsæld hans. 
   12Hún gerir honum gott og ekkert illt 
alla ævidaga sína. 
   13Hún sér um ull og hör
og vinnur fúslega með höndum sínum. 
   14Hún er eins og kaupförin,
sækir björgina langt að. 
   15Hún fer á fætur fyrir dögun, 
skammtar heimilisfólki sínu 
og segir þernum sínum fyrir verkum.
   16Fái hún augastað á akri kaupir hún hann 
og af eigin rammleik býr hún sér víngarð. 
   17Hún gyrðir lendar sínar krafti 
og tekur sterklega til armleggjunum. 
   18Hún finnur að starf hennar er ábatasamt, 
á lampa hennar slokknar ekki um nætur. 
   19Hún réttir út hendurnar eftir rokknum 
og fingur hennar grípa snælduna. 
   20Hún er örlát við bágstadda 
og réttir fram hendurnar móti snauðum. 
   21Ekki óttast hún um heimilisfólk sitt þótt snjói 
því að allt heimilisfólk hennar er klætt skarlati. 
   22 Hún býr sér til ábreiður, 
klæðnaður hennar er úr baðmull og purpura. 
   23 Maður hennar er mikils metinn í borgarhliðunum 
þegar hann situr með öldungum landsins. 
   24 Hún býr til línkyrtla og selur þá 
og kaupmanninum fær hún belti. 
   25 Kraftur og tign er klæðnaður hennar 
og hún fagnar komandi degi. 
   26 Mál hennar er þrungið speki 
og ástúðleg fræðsla er á tungu hennar. 
   27 Hún vakir yfir því sem fram fer á heimili hennar 
og etur ekki letinnar brauð. 
   28 Börn hennar segja hana sæla, 
maður hennar hrósar henni: 
   29 „Margar konur hafa sýnt dugnað
en þú tekur þeim öllum fram.“ 
   30 Yndisþokkinn er svikull og fegurðin hverful 
en sú kona sem óttast Drottin á hrós skilið. 
   31 Hún njóti ávaxta handa sinna
og verk hennar skulu vegsama hana í borgarhliðunum.  

