1Þegar þú situr til borðs með valdhafa 
gættu þess þá vel hvern þú hefur fyrir framan þig 
   2og settu hníf við barka þér sértu gráðugur. 
   3Láttu þig ekki langa í kræsingar hans 
því að þær eru hverful fæða. 
   4Leitastu ekki við að verða ríkur, 
hafðu vit á að gera það ekki. 
   5Beinir þú augum þínum til auðsins er hann horfinn.
Hann á sér vængi sem örn og hverfur til himins. 
   6Matastu ekki hjá nískum manni 
og láttu þig ekki langa í kræsingar hans. 
   7Hann er eins og maður sem telur eftir. 
„Et og drekk,“ segir hann við þig en hugur fylgir ekki máli. 
   8Bitanum, sem þú kyngdir, verður þú að spýta upp aftur 
og fagurgalanum hefur þú sólundað. 
   9Talaðu ekki fyrir eyrum heimskingjans 
því að hann fyrirlítur skynsemisorð þín. 
   10Færðu ekki úr stað landamerki ekkjunnar 
og gakktu ekki inn á akra munaðarleysingjanna 
   11því að lausnari þeirra er máttugur, 
hann mun flytja mál þeirra gegn þér. 
   12Snúðu hjarta þínu að umvönduninni
og eyrum þínum að orðum viskunnar. 
   13Sparaðu ekki aga við hinn unga, 
ekki deyr hann þótt þú sláir hann með vendi. 
   14Þú slærð hann með vendinum 
og frelsar líf hans frá helju.
   15Sonur minn, verði hjarta þitt viturt, 
þá gleðst ég líka í hjarta mínu 
   16og nýru mín fagna 
þegar varir þínar mæla það sem rétt er. 
   17Öfundaðu ekki syndara í hjarta þínu 
en guðhrædda menn ævinlega. 
   18Þá áttu þér framtíð 
og von þín mun aldrei bregðast. 
   19Hlustaðu, sonur minn, vertu vitur 
og beindu hjarta þínu á rétta leið. 
   20Vertu ekki með drykkjurútum 
eða þeim sem háma í sig kjöt 
   21því að drykkjumenn og mathákar verða snauðir 
og víman mun klæða þig í tötra. 
   22 Hlustaðu á föður þinn sem gat þig 
og fyrirlíttu ekki móður þína þegar hún verður gömul. 
   23 Kauptu sannleika, og seldu hann ekki, 
visku, fræðslu og skilning. 
   24 Faðir réttláts manns fagnar 
og sá sem gat vitran son gleðst yfir honum. 
   25 Faðir þinn og móðir gleðjist 
og fagni sú sem fæddi þig. 
   26 Sonur minn, gefðu mér hjarta þitt 
og láttu augu þín gaumgæfa vegu mína. 
   27 Skækja er djúp gröf 
og framandi kona [ þröngur pyttur. 
   28 Hún liggur í leyni eins og ræningi 
og fjölgar hinum ótrúu meðal mannanna. 
   29 Hver barmar sér? Hver veinar? Hver á í stælum? 
Hver kvartar? Hver fær sár að þarflausu? Hver rauð augu? 
   30 Þeir sem sitja við vín fram á nætur, 
þeir sem koma saman til að bergja á vínblöndu. 
   31 Horfðu ekki á vínið, hve rautt það er, 
hvernig það glóir í bikarnum og rennur ljúflega niður. 
   32 Að síðustu bítur það sem höggormur 
og spýtir eitri sem naðra. 
   33 Augu þín munu sjá kynlega hluti 
og munnur þinn mæla fáránleika. 
   34 Þú verður eins og sá sem liggur í úthafinu miðju, 
eins og sá er liggur efst uppi á siglutré. 
   35 „Þeir slógu mig, ég kenndi ekki til, 
þeir börðu mig, ég varð þess ekki var. 
Þegar ég vakna af víninu fæ ég mér meira.“  
			Orðskviðirnir 23. kafliHið íslenska biblíufélag2021-02-15T19:13:41+00:00
			
			
  
  			
			
				
																													
  
		        Orðskviðirnir 23. kafli                        
  Hægt er að nálgast texta þessa kafla í öðrum íslenskum þýðingum með því að smella á nafn þýðingarinnar hér fyrir neðan. Þýðingin opnast í nýjum glugga.    
                        
  
	
