Jeremía felur tjaldbúðina

1 Í heimildum má sjá að Jeremía spámaður hafi skipað þeim sem herleiddir voru að koma nokkru af eldinum undan eins og áður er frá sagt. 2 Þar greinir og frá því að spámaðurinn afhenti hinum herleiddu lögmálið og lagði ríkt á við þá að gleyma ekki boðum Drottins og láta eigi leiða sig afvega þegar þeir sæju skurðgoð af gulli og silfri og skartið á þeim. 3 Með öðrum og áþekkum orðum áminnti hann þá að festa sér lögmálið í hjarta.
4 Einnig er þar skráð að eftir vitrun hafi spámaðurinn boðið að bera skyldi tjaldið og sáttmálsörkina á eftir sér og að hann hafi farið til fjallsins sem Móse gekk á til að sjá landið sem Guð hafði gefið fyrirheit um. 5 Þegar Jeremía kom þangað fann hann hellisskúta. Hann lét bera tjaldið, örkina og reykelsisaltarið þangað og byrgja munnann. 6 Nokkrir fylgdarmanna hans fóru síðar til að stika út leiðina en gátu ekki fundið hana. 7 Þegar Jeremía komst að þessu ávítaði hann þá og mælti: „Staðurinn á að vera hulinn þangað til Guð safnar lýð sínum saman og auðsýnir honum náð. 8 Þá mun Drottinn leiða þessa hluti í ljós og dýrð Drottins mun birtast í skýi eins og hún opinberaðist á dögum Móse og þegar Salómon bað að musterið yrði helgað á mikilfenglegan hátt.“

Lýsing á vígsluhátíð Salómons

9 Þar er og frá því skýrt hvernig hinn vísi Salómon bar fram vígslufórn þegar musterissmíðinni var lokið. 10 Eins og Móse bað til Drottins og eldur féll af himni og brenndi fórnina bað Salómon einnig og eldurinn kom ofan og eyddi brennifórninni. 11 Móse sagði: „Syndafórninni var eytt af því að hennar var ekki neytt.“
12 Með sama hætti hélt Salómon einnig hátíð í átta daga.

Bókasafn Nehemía

13 Í ritum og minnisbókum Nehemía er sagt frá þessu öllu og því að hann hafi lagt grunn að bókasafni þar sem hann kom fyrir bókum um konungana og spámennina, ritum Davíðs og bréfum konunganna um gjafir til musterisins. 14 Sömuleiðis safnaði Júdas fyrir okkur þeim ritum sem fóru á flæking í stríðinu sem við háðum og eru þau geymd hjá okkur. 15 Ef þið þarfnist þeirra þá sendið menn eftir þeim.

Boð um hátíðahöld vegna hreinsunar musterisins

16 Við ritum ykkur nú vegna þess að við ætlum að halda hátíðlega upp á hreinsun musterisins. Hvetjum við ykkur til að halda einnig þessa hátíð. 17 Guð hefur frelsað allan lýð sinn og gefið okkur öllum arfleifðina og konungdóminn og prestdóminn og heilagleikann 18 eins og hann hét í lögmálinu. Við vonum til Guðs að hann muni brátt miskunna okkur og safna okkur saman úr öllum heimshornum á hinn heilaga stað því að hann hefur frelsað okkur úr mikilli ógæfu og hreinsað staðinn.

Formáli höfundar

19 Hér segir frá Júdasi Makkabeusi og bræðrum hans, hreinsun hins mikla musteris og vígslu altarisins, 20 enn fremur frá styrjöldum gegn Antíokkusi Epífanes og Evpator, syni hans, 21 og frá hinum himnesku vitrunum sem birtust hinum fræknu hetjum sem börðust fyrir gyðingdóminn og auðnaðist að vinna aftur landið allt, þótt fáliðaðir væru, og hrekja hersveitir útlendinganna á brott. 22 Tókst þeim að ná aftur á sitt vald musterinu heimsfræga, frelsa borgina og koma á ný á lögum sem voru nær afnumin. Það var vegna þess að Guð var þeim náðugur í allri mildi sinni. 23 Allt þetta ritaði Jason frá Kýrene í fimm bókum og ætla ég að reyna að draga það saman í eina bók. 24 Mér er fullljóst hve óárennilegt hið langa rit hans er. Efnismergðin veldur þeim miklum erfiðleikum sem vilja ná tökum á því sem þar er sagt frá. 25 Þess vegna lagði ég í þetta þeim til ánægju sem sögur lesa og til hægðarauka þeim sem vilja festa sér það í minni sem þeir lesa og öllum til gagns sem bók þessi berst í hendur.
26 En mér, sem gengið hef undir þá byrði að semja ágrip þetta, er það ekki auðvelt verk heldur kostar það svita og svefnleysi, 27 alveg eins og það krefur þann mikils sem undirbýr veislu sem hann ætlar öðrum að njóta. Samt er ég fús til að takast á við þessa þraut til að hljóta þakklæti margra. 28 Ég læt sagnaritarann um hin einstöku efnisatriði en geri mér far um að aðalatriðin komi fram í ágripi mínu. 29 Sá sem reisa vill hús verður að hafa yfirsýn yfir framkvæmd verksins. Hinn, sem tekst á hendur að prýða bygginguna og mála, þarf einungis að huga að því sem hentar til skrauts. Þannig finnst mér því farið um mig. 30 Frumhöfundur sögunnar verður að kynna sér efnið nákvæmlega og gera öllu skil í smáatriðum. 31 Sá sem semur ágrip getur leyft sér að fara fljótt yfir sögu og sleppa því að rekja allt til rótar.
32 Nú vil ég hefja frásögnina án frekari málalenginga um það sem fyrr var sagt enda er hjákátlegt að fjölyrða í formála bókar og þurfa fyrir bragðið að stytta söguna.