1Svo segir Drottinn:
Vegna þriggja, já, vegna fjögurra glæpa Móabs
hverf ég ekki frá þessu:
Af því að íbúarnir þar brenndu bein konungsins í Edóm að kalki
2mun ég senda eld til Móabs.
Hann mun gleypa hallirnar í Keríjót.
Móab mun deyja í vopnagný,
við heróp og lúðurhljóm.
3Þann sem ríkir yfir Móab mun ég uppræta úr landinu
og drepa alla höfðingja þess ásamt honum,
hefur Drottinn sagt.
4Svo segir Drottinn:
Vegna þriggja, já, vegna fjögurra glæpa Júda
hverf ég ekki frá þessu:
Þar sem íbúarnir þar hafa hafnað lögmáli Drottins
og ekki haldið boðorð hans,
þar sem falsguðir þeirra, sem feður þeirra eltu,
hafa leitt þá afvega
5mun ég senda eld til Júda.
Hann mun gleypa hallirnar í Jerúsalem.
6Svo segir Drottinn:
Vegna þriggja, já, vegna fjögurra glæpa Ísraels
hverf ég ekki frá þessu:
Þar sem íbúarnir þar hafa selt saklausa menn fyrir silfur,
hinn fátæka fyrir eina ilskó,
7af því að þeir traðka höfuð hins umkomulausa niður í moldina
og hrekja hina varnarlausu út af veginum,
af því að faðir og sonur ganga inn til sömu konu
svo að þeir vanhelga mitt heilaga nafn,
8af því að þeir teygja úr sér hjá hverju altari
á klæðum sem tekin hafa verið að veði
og drekka sektarvín
í húsi Guðs síns.
9Vegna þeirra tortímdi ég sjálfur Amorítum
sem voru hávaxnir sem sedrustré og sterkir sem eikur,
ég eyddi ávöxtum þeirra að ofanverðu
og rótum þeirra að neðan.
10Ég leiddi yður sjálfur frá Egyptalandi
og gekk með yður í eyðimörkinni í fjörutíu ár
svo að þér gætuð tekið land Amoríta til eignar.
11Ég upphóf nokkra af sonum yðar til að verða spámenn
og ýmsa af æskumönnum yðar til að verða nasírear.
Eða er ekki svo, Ísraelsmenn?
hefur Drottinn Guð sagt.
12En þér gáfuð nasíreunum vín að drekka
og sögðuð við spámennina:
„Spáið ekki.“
13Sjá, ég vil láta jörðina undir yður skjálfa
eins og hlaðinn vagn skelfur undir kornböggum.
14Hlauparinn kemst ekki í skjól,
kraftajötunninn fær ekki neytt afls síns
og kappinn ekki bjargað lífi sínu,
15bogaskyttan nær ekki fótfestu,
fæturnir bjarga ekki hinum fótfráa
og riddarinn bjargar ekki lífi sínu.
16Jafnvel kappinn hugrakki mun á þeim degi flýja nakinn,
hefur Drottinn sagt.