Að þekkja Krist

1 Enn og aftur, bræður mínir og systur,[ verið glöð í Drottni. Ég tel ekki eftir mér að endurtaka það sem ég hef skrifað en ykkur er það fyrir bestu.
2 Varist hundana, varist hina vondu verkamenn, varist hina sundurskornu. 3 Umskurnina eigum við sem dýrkum Guð í anda og miklumst af Jesú Kristi en treystum engum ytri auðkennum, 4 enda þótt ég fyrir mitt leyti hafi slík auðkenni sem ég mætti treysta. Ef einhver annar þykist geta treyst á ytri merki gæti ég það fremur. 5 Ég var umskorinn á áttunda degi, af kyni Ísraels, ættkvísl Benjamíns, Hebrei af Hebreum, í lögmálshlýðni farísei, 6 svo kappsfullur að ég ofsótti kirkjuna. Ef litið er á réttlætið, sem fæst með lögmálinu, var ég vammlaus.
7 En það sem var mér ávinningur met ég nú vera tjón sakir Krists. 8 Já, meira að segja met ég allt vera tjón hjá þeim yfirburðum að þekkja Krist Jesú, Drottin minn. Sakir hans hef ég misst allt og met það sem sorp til þess að ég geti áunnið Krist 9 og reynst vera í honum, ekki sakir eigin réttlætis, sem fæst af hlýðni við lögmálið, heldur sakir þess sem trúin á Krist gefur, réttlætið frá Guði með trúnni. – 10 Ég vil þekkja Krist og kraft upprisu hans, ég vil þjást með honum og líkjast honum í dauða hans. 11 Mætti mér auðnast að ná til upprisunnar frá dauðum. 12 Ekki er svo að ég hafi þegar náð því eða sé þegar fullkominn. En ég keppi eftir því ef ég skyldi geta höndlað það, með því að ég er höndlaður af Kristi Jesú. 13 Systkin,[ ekki tel ég sjálfan mig enn[ hafa höndlað það. En eitt geri ég. Ég gleymi því sem að baki er en seilist eftir því sem fram undan er 14 og keppi þannig að markinu, til verðlaunanna á himnum, sem Guð hefur í Kristi kallað okkur til.
15 Þetta hugarfar skulum við því öll hafa sem fullkomin erum. Og ef þið hugsið í nokkru öðruvísi, þá mun Guð einnig opinbera ykkur þetta. 16 Við skulum fyrir alla muni ganga þá götu sem við höfum komist á.
17 Systkin,[ breytið öll eftir mér og festið sjónir ykkar á þeim sem breyta eftir þeirri fyrirmynd er við höfum gefið ykkur. 18 Margir breyta – ég hef oft sagt ykkur það og nú segi ég það jafnvel grátandi – eins og óvinir kross Krists. 19 Afdrif þeirra eru glötun. Guð þeirra er maginn, þeim þykir sómi að skömminni og þeir hafa hugann á jarðneskum munum. 20 En föðurland okkar er á himni og frá himni væntum við frelsarans, Drottins Jesú Krists. 21 Hann mun breyta veikum og forgengilegum líkama okkar svo að hann fái sömu mynd og dýrðarlíkami hans því hann hefur kraftinn til að leggja allt undir sig.