Kveðja

1 Pétur postuli Jesú Krists heilsar hinum útvöldu sem lifa sem útlendingar dreifðir meðal þjóðanna í Pontus, Galatíu, Kappadókíu, Asíu og Biþýníu, 2 en útvaldir samkvæmt fyrirvitund Guðs föður og helgaðir af anda hans til að hlýða Jesú Kristi og hreinsast með blóði hans.
Náð og friður margfaldist með yður.

Lifandi von

3 Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists sem eftir mikilli miskunn sinni hefur endurfætt oss til lifandi vonar fyrir upprisu Jesú Krists frá dauðum 4 og veitt oss óforgengilega, flekklausa og ófölnandi arfleifð sem yður er geymd á himnum. 5 Kraftur Guðs varðveitir yður sem trúið til þess að þér öðlist hjálpræðið sem albúið bíður þess að opinberast á efsta degi.
6 Fagnið því þótt þið nú um skamma stund hafið orðið að hryggjast í margs konar raunum. 7 Það er til þess að trúfesti ykkar, langtum dýrmætari en forgengilegt gull, sem þó er reynt í eldi, geti orðið ykkur til lofs og dýrðar og heiðurs við opinberun Jesú Krists. 8 Þið hafið ekki séð hann en elskið hann þó. Þið hafið hann ekki nú fyrir augum ykkar en trúið samt á hann og fagnið með óumræðilegri og dýrlegri gleði 9 þegar þið eruð að ná takmarki trúar ykkar, frelsun sálna ykkar.
10 Þessa frelsun könnuðu spámennirnir og rannsökuðu vandlega þegar þeir töluðu um þá náð sem ykkur mundi hlotnast. 11 Þeir rannsökuðu til hvers eða hvílíks tíma andi Krists, sem í þeim bjó, benti þá er hann vitnaði fyrir fram um píslir Krists og dýrðina þar á eftir. 12 En þeim var opinberað að eigi væri það fyrir sjálfa þá heldur fyrir ykkur að þeir þjónuðu að þessu sem ykkur er nú kunngjört af þeim sem boðuðu ykkur fagnaðarerindið í heilögum anda sem er sendur frá himni. Inn í þetta fýsir jafnvel englana að skyggnast.

Verið heilög

13 Gerið því hugi ykkar viðbúna og verið vakandi. Bindið alla von ykkar við þá náð sem ykkur mun veitast við opinberun Jesú Krists. 14 Verið eins og hlýðin börn og látið líferni ykkar ekki framar mótast af þeim girndum er þið áður létuð stjórnast af í vanvisku ykkar. 15 Verðið heldur sjálf heilög í öllu dagfari ykkar eins og sá er heilagur sem ykkur hefur kallað. 16 Ritað er: „Verið heilög því ég er heilagur.“
17 Fyrst þið ákallið þann sem föður er dæmir án manngreinarálits eftir verkum hvers og eins, þá gangið fram í guðsótta útlegðartíma ykkar. 18 Þið vitið að Guð frelsaði ykkur ekki með forgengilegum hlutum, silfri eða gulli, frá fánýtri hegðun ykkar er þið höfðuð að erfðum tekið frá forfeðrum ykkar, 19 heldur með dýrmætu blóði Krists, hins lýtalausa og óflekkaða lambs. 20 Guð útvaldi hann fyrir sköpun heims en hann var opinberaður vegna ykkar í lok tímanna. 21 Fyrir hann trúið þið á Guð er vakti hann upp frá dauðum og gaf honum dýrð. Því er trú ykkar einnig von til Guðs.
22 Með því að hlýða sannleikanum hafið þið hreinsað ykkur og getið því borið hræsnislausa elsku hvert til annars. Haldið því áfram að elska hvert annað af heilu[ hjarta. 23 Þið eruð endurfædd, ekki af forgengilegu sæði heldur óforgengilegu, fyrir orð Guðs sem lifir og varir. 24 Því að:
Allir menn eru sem gras
og öll vegsemd þeirra sem blóm á grasi,
grasið skrælnar og blómið fellur.
25 En orð Drottins varir að eilífu.
Og þetta orð er fagnaðarerindið sem ykkur hefur verið boðað.