1 Til söngstjórans. Davíðssálmur.
Þú, Guð lofsöngs míns, ver eigi hljóður
2því að óguðlegan og svikulan munn opna þeir gegn mér,
tala við mig með ljúgandi tungu.
3Með hatursorðum umkringja þeir mig
og áreita mig að ástæðulausu.
4Þeir launa elsku mína með fjandskap
en ég endurgeld þeim með bæn.
5Þeir launa mér gott með illu
og elsku mína með hatri.
6Sendið óguðlegan gegn mótstöðumanni mínum
og ákærandinn standi honum til hægri handar.
7Hann gangi sakfelldur frá dómi
og bæn hans verði honum til áfellis.
8Dagar hans verði fáir
og annar hljóti embætti hans.
9Börn hans verði föðurlaus
og kona hans ekkja,
10börn hans fari á flæking og vergang,
rekin úr rústum heimilis síns.
11Okrarinn leggi snöru fyrir allar eigur hans
og ókunnugir ræni afla hans.
12Enginn sýni honum líkn
og enginn aumkist yfir föðurlaus börn hans.
13Niðjar hans verði afmáðir,
nöfn þeirra þurrkuð út í næstu kynslóð.
14Drottinn minnist misgjörðar feðra hans
og synd móður hans verði ekki afmáð,
15séu þær ætíð fyrir augum Drottins,
hann afmái minningu hans[ af jörðinni
16sakir þess að hann gleymdi að sýna gæsku
en ofsótti hinn hrjáða og snauða
og hinn ráðþrota til þess að drepa hann.
17Hann hafði ánægju af bölbænum,
þær bitni á honum sjálfum,
blessun gladdi hann ekki,
hún sé honum fjarri.
18Hann íklæddist bölvuninni sem kufli,
hún þrengi sér í innyfli hans sem vatn
og í bein hans sem olía,
19hún verði honum skikkja sem hylur hann,
belti er hann sífellt gyrðist.
20Þetta séu laun hatursmanna minna frá Drottni,
þeirra sem sífellt rægja mig.
21En þú, Drottinn, Guð minn, breyt vel við mig sakir nafns þíns,
frelsa mig sakir gæsku þinnar og miskunnar
22 því að ég er hrjáður og snauður,
hjartað berst í brjósti mér.
23 Ég hverf sem skugginn er degi hallar,
ég er flæmdur burt eins og engispretta,
24 hné mín skjögra af föstu
og hold mitt skortir feiti.
25 Ég er orðinn mönnum að spotti,
þeir hrista höfuðið þegar þeir sjá mig.
26 Hjálpa mér, Drottinn, Guð minn,
bjarga mér eftir miskunn þinni,
27 að þeir megi komast að raun um að það var þín hönd,
að það varst þú, Drottinn, sem gerðir það.
28 Bölvi þeir, blessar þú,
rísi þeir gegn mér verði þeir til skammar
en þjónn þinn gleðjist.
29 Andstæðingar mínir íklæðist svívirðing,
sveipi sig skömminni eins og skikkju.
30 Ég vil lofa Drottin með munni mínum,
í fjölmenni vegsama ég hann
31 því að hann stendur við hlið hins snauða
til að hjálpa honum gegn þeim sem sakfella hann.