Guð ríkir í Jerúsalem

1En sjá, þeir dagar koma
að musterisfjall Drottins
stendur óbifanlegt,
hæst allra fjalla,
og gnæfir yfir hæðirnar.
Þangað munu þjóðirnar flykkjast
2og segja:
„Komum. Göngum upp á fjall Drottins,
til húss Jakobs Guðs,
svo að hann sýni oss veg sinn
og vér fáum fetað slóð hans.“
Því að frá Síon mun kenning berast
og orð Drottins frá Jerúsalem.
3Og hann mun dæma meðal margra þjóða
og skera úr málum fjarlægra stórvelda.
Þær munu smíða plógjárn
úr sverðum sínum
og sniðla úr spjótum sínum.
Engin þjóð skal sverð reiða að annarri þjóð
og ekki skulu þær temja sér hernað framar.
4Þá munu menn sitja óhræddir,
hver undir sínum vínviði eða fíkjutré.
Svo hefur Drottinn allsherjar mælt.
5Aðrar þjóðir munu lifa,
hver í nafni síns guðs,
en vér munum lifa í nafni Drottins, Guðs vors,
um aldir alda.
6Á þeim degi, segir Drottinn,
safna ég hinum höltu saman,
stefni saman hinum útskúfuðu
og þeim sem ég hef beitt hörku.
7Hina höltu læt ég komast af
og geri hina útskúfuðu að voldugri þjóð.
Og Drottinn mun ríkja yfir þeim á Síonarfjalli
héðan í frá og að eilífu.
8Þú, varðturn hjarðmannsins,
varðhæð dótturinnar Síonar.
Til þín mun koma
hið fyrra veldi,
á ný mun konungdæmið hverfa til Jerúsalem.
9En hví hljóðar þú hástöfum?
Áttu þér engan konung?
Eru ráðgjafar þínir á burt?
Er það vegna þess sem þú engist
sem jóðsjúk kona?
10Þú skalt engjast og hljóða, dóttirin Síon,
eins og kona í barnsnauð.
Nú verður þú að fara úr borginni
og hafast við á víðavangi.
Þú ferð til Babýlonar
og þar verður þér bjargað,
þar frelsar Drottinn þig
úr höndum óvina þinna.

Þjóðir safnast gegn Jerúsalem

11Nú hafa margar þjóðir safnast gegn þér.
Þær segja: „Hlökkum nú yfir óförum Síonar.“ [
12Þær þekkja hvorki hug Drottins
né skilja áform hans.
Hann hefur þegar safnað þeim
líkt og kornknippum á þreskivöll.
13Nú skal þreskja, dóttirin Síon.
Ég geri þér horn úr járni
og klaufir úr eir.
Margar þjóðir munt þú troða niður,
helga Drottni herfang þeirra
og auðæfi þeirra Drottni allrar veraldar.
14Ristu hörund þitt, ræningjadóttir.
Þeir hafa gert oss umsátur
og með sprota löðrunga þeir
leiðtoga Ísraels.