Örkin flutt til Jerúsalem

1 Þegar hann hafði látið byggja sér hús í borg Davíðs lét hann einnig búa örk Guðs stað og reisa tjald fyrir hana. 2 Þá skipaði Davíð svo fyrir: „Enginn má bera örk Guðs nema Levítarnir því að Drottinn hefur valið þá til að bera örk Drottins og til að þjóna sér ævinlega.“
3 Því næst kallaði Davíð allan Ísrael saman í Jerúsalem til þess að flytja örk Drottins þangað upp eftir á staðinn sem hann hafði búið henni.
4 Davíð stefndi saman niðjum Arons og Levítunum. 5 Af niðjum Kahats kom höfðinginn Úríel og bræður hans, 120 menn. 6 Af niðjum Merarí kom höfðinginn Asaja og bræður hans, 220 menn. 7 Af niðjum Gersons kom höfðinginn Jóel og bræður hans, 130 menn. 8 Af niðjum Elísafans kom höfðinginn Semaja og bræður hans, 200 menn. 9 Af niðjum Hebrons kom höfðinginn Elíel og bræður hans, 80 menn. 10 Af niðjum Ússíels kom höfðinginn Ammínadab og bræður hans, 112 menn.
11 Davíð kallaði til sín prestana Sadók og Abjatar og Levítana Úríel, Asaja, Jóel, Semaja, Elíel og Ammínadab 12 og gaf þeim þessi fyrirmæli: „Þið eruð ættarhöfðingjar Levítanna. Helgið ykkur nú ásamt bræðrum ykkar og flytjið örk Drottins, Guðs Ísraels, til staðarins sem ég hef búið henni. 13 Vegna þess að þið voruð ekki með okkur í fyrsta skiptið hefur Drottinn, Guð okkar, steypt yfir okkur ófarnaði. Við leituðum ekki úrskurðar hans eins og okkur bar.“
14 Prestarnir og Levítarnir helguðu sig nú til þess að flytja örk Drottins, Guðs Ísraels, upp eftir. 15 Því næst tóku niðjar Leví örk Guðs á axlir sér með burðarstöngum hennar eins og Móse hafði gefið fyrirmæli um að boði Drottins.
16 Davíð skipaði höfðingjum Levítanna að láta ættbræður þeirra, söngvarana, taka sér stöðu með hljóðfæri sín, hörpur, sítara og bjöllur, til þess að leika undir fagnaðarsöngnum. 17 Þá létu þeir Heman Jóelsson og Asaf Berekíason, ættbróður þeirra, taka sér stöðu, enn fremur ættbróður þeirra, Etan Kúsajason af niðjum Merarí. 18 Þeir létu einnig nokkra af bræðrum þeirra úr öðrum þjónustuflokki taka sér stöðu með þeim: Sakaría, Jaasíel, Semíramót, Jehíel, Únní, Elíab, Benaja, Maaseja, Mattitja, Elífala, Mikneja, Óbeð Edóm og Jeíel.
19 Söngvararnir Heman, Asaf og Etan léku á tvö klukkuspil úr eir, 20 Sakaría, Jaasíel, Semíramót, Jehíel, Únní, Elíab, Maaseja og Benaja léku á hörpur að elamítískum hætti. 21 Mattitja, Elífala, Mikneja, Óbeð Edóm, Jeíel og Asasja léku á gígjur að símjónítískum hætti til að stjórna söngnum.
22 Kenanja, höfðingi Levítanna, stjórnaði flutningi tónlistarinnar.[ Hann stjórnaði flutningnum af því að hann hafði kunnáttu til þess.
23 Berekía og Elkana voru hliðverðir arkarinnar.
24 Prestarnir Sebanja, Jósafat, Netaneel, Amasaí, Sakaría, Benaja og Elíeser blésu í lúðra frammi fyrir örk Guðs.
Óbeð Edóm og Jehía voru hliðverðir arkarinnar.
25 Davíð, öldungar Ísraels og foringjar þúsund manna sveitanna fóru nú glaðir í bragði til þess að flytja sáttmálsörk Drottins upp eftir úr húsi Óbeðs Edóms. 26 Sjö nautum og sjö hrútum var fórnað af því að Guð styrkti Levítana sem báru sáttmálsörk Drottins. 27 Davíð bar yfirhöfn frá Byssos, einnig allir Levítarnir sem báru örkina, söngvararnir og Kenanja, stjórnandi söngvaranna, en Davíð bar línhökul. 28 Þannig flutti allur Ísrael sáttmálsörk Drottins upp eftir með fagnaðarópum og hafurshornablæstri, með lúðrablæstri, bjölluhljómi, hörpuleik og gígjuleik.
29 Þegar sáttmálsörk Drottins kom til borgar Davíðs varð Míkal, dóttur Sáls, litið út um glugga. Þegar hún sá Davíð konung hoppa og dansa frammi fyrir augliti Drottins fyrirleit hún hann í hjarta sínu.