Dómur yfir leiðtogum Jerúsalem

1 Því næst hóf andi mig upp og flutti mig að austurhliðinu á húsi Drottins, hliðinu sem snýr í austur. Við innganginn í hliðið voru tuttugu og fimm menn og meðal þeirra sá ég Jaasanja Assúrsson og Pelatja Benajason sem voru leiðtogar fólksins. 2 Hann sagði við mig: „Mannssonur, þetta eru þeir menn sem leggja á ráðin um rangindi og brugga ill ráð 3 og segja: Þess gerist ekki þörf að reisa hús á næstunni. Borgin er potturinn og við erum kjötið. 4 Mannssonur, komdu fram sem spámaður, boðaðu gegn þeim.“
5 Þá greip andi Drottins mig og sagði við mig: „Segðu: Svo segir Drottinn: Þetta hafið þið hugsað ykkur, Ísraelsmenn, en ég veit hvað ykkur kom í hug. 6 Þið hafið drepið margt af ykkar eigin fólki í þessari borg og þið hafið fyllt götur hennar vegnum mönnum. 7 Þess vegna segir Drottinn Guð: Þeir ykkar sem þið hafið vegið og skilið eftir á götum borgarinnar eru kjötið og borgin er potturinn. En ég mun reka ykkur út úr henni. 8 Þið óttist sverð og sverð er það sem ég mun senda gegn ykkur, segir Drottinn Guð. 9 Ég mun reka ykkur út úr borginni og selja ykkur í hendur útlendingum og fullnægja refsidómnum yfir ykkur. 10 Þið munuð falla fyrir sverði. Ég mun dæma ykkur við landamæri Ísraels. Þá munuð þið skilja að ég er Drottinn. 11 Borgin skal hvorki verða pottur fyrir ykkur né þið kjötið í honum. Ég mun dæma ykkur við landamæri Ísraels. 12 Þá munuð þið skilja að ég er Drottinn og að þið hafið ekki farið að lögum mínum og ekki framfylgt reglum mínum en hins vegar hafið þið farið eftir reglum þjóðanna sem eru umhverfis ykkur.“
13 Á meðan ég flutti þessi spámannlegu orð dó Pelatja Benajason. Þá féll ég fram á ásjónu mína og hrópaði hárri röddu og sagði: „Drottinn Guð. Ætlar þú að eyða öllum sem eftir eru af Ísrael?“

Endurnýjun Ísraels

14 Orð Drottins kom til mín: 15 Mannssonur, allir bræður þínir, nánustu skyldmenni þín og allir aðrir Ísraelsmenn eru þeir sem íbúar Jerúsalem segja um: „Þeir eru langt frá Drottni, landið var fengið okkur til eignar.“ 16 Segðu því: Svo segir Drottinn Guð: Þar sem ég flutti þá langt í burt til framandi þjóða og dreifði þeim um löndin[ varð ég þeim eins konar helgidómur í löndunum sem þeir fóru til. 17 Segðu því: Svo segir Drottinn Guð: Ég mun safna ykkur saman frá þjóðunum og sækja ykkur til landanna sem ykkur var dreift um. Síðan mun ég gefa ykkur landið Ísrael. 18 Þegar þeir koma þangað munu þeir fjarlægja þaðan allt sem er viðbjóðslegt og vekur andstyggð. 19 Þá mun ég gefa þeim eindrægt hjarta og leggja þeim nýjan anda í brjóst. Ég mun fjarlægja steinhjartað úr líkama þeirra og gefa þeim hjarta úr holdi 20 svo að þeir fylgi lögum mínum og haldi reglur mínar og framfylgi þeim. Þá skulu þeir verða mín þjóð og ég skal vera þeirra Guð. 21 En ég mun láta breytni þeirra koma þeim í koll sem í hjarta sínu fylgja viðbjóðslegum skurðgoðum sínum sem vekja andstyggð, segir Drottinn Guð.

Dýrð Drottins yfirgefur Jerúsalem

22 Þá lyftu kerúbarnir vængjum sínum með hjólin sér við hlið en dýrð Guðs Ísraels var yfir þeim. 23 Dýrð Drottins hóf sig upp frá borginni miðri og nam síðan staðar á fjallinu austan við borgina. 24 Í sama mund hóf andi mig upp og flutti mig í sýn, fyrir anda Guðs, til útlaganna í Kaldeu. Síðan hvarf mér sýnin sem mér hafði birst. 25 En ég greindi útlögunum frá öllum orðum Drottins sem hann hafði birt mér.