Bæn fyrir Ísrael

1Miskunna oss, Drottinn Guð allsherjar,
2lát allar þjóðir óttast þig.
3 Reið upp hönd þína gegn framandi þjóðum
svo að þær sjái ægimátt þinn.
4 Þú hefur sýnt þeim heilagleika þinn
með því sem þú gerðir við oss.
Sýn oss nú mátt þinn á þeim.
5 Lát þá komast að raun um það sem vér þekkjum,
að enginn er Guð nema þú, Drottinn.
6 Gjör ný tákn og önnur stórmerki,
7 gjör hönd þína og hægri arm vegsamlegan.
8 Vek reiðina og úthell heiftinni,
9 afmá andstæðinginn og eyð óvininum.
10 Flýt komu dagsins og minnstu þess sem þú ákvaðst,
lát kunngjöra máttarverk þín.
11 Megi þeir sem flýja eyðast á heiftarbáli
og þeir farast sem þjóð þína kúguðu.
12 Mola höfuð leiðtoga óvinanna,
þeirra sem segja: „Enginn má sín neins nema vér.“
13 Safna þú öllum ættkvíslum Jakobs
og veit þeim aftur þann arfshlut sem þær áttu til forna.
14 Miskunna, Drottinn, lýðnum sem ber nafn þitt,
Ísrael, er þú líktir við frumgetinn son.
15 Sýn borg helgidóms þíns miskunn,
Jerúsalem, þar sem þú átt bústað.
16 Lát Síon óma af lofgjörð um dáðir þínar
og helgidóm [ þinn fyllast af dýrð.
17 Vitna þeim í vil sem þú skapaðir í upphafi,
uppfyll þá spádóma er fluttir voru í þínu nafni.
18 Launa þeim sem bíða þín
og lát spámenn þína reynast sannorða.
Hlýð, Drottinn, á bæn þjóna þinna
19 samkvæmt náð þinni við lýð þinn. [
Allir á jörðu munu þá komast að raun um
að þú ert Drottinn, eilífur Guð.

Um að velja sér konu

20Alla fæðu meltir maginn
en ein fæða tekur þó annarri fram.
21 Gómur er næmur á bragð bráðar
eins og hygginn maður á lygi.
22 Svikult hjarta veldur harmi
en reyndur maður getur launað fyrir sig.
23 Konan tekur hvaða manni sem er
en ein dóttir ber þó af annarri.
24 Fegurð eiginkonu hýrgar manninn,
ekkert girnist hann fremur.
25 Sé hún mild og hóglát í orðum
er maður hennar sælli hverjum dauðlegum.
26 Sá sem eignast konu á eign sem tekur öðru fram,
hjálp við sitt hæfi og stoð við að styðjast.
27 Þar sem ekki er girðing verður garðurinn rændur,
þar sem engin er konan eigrar maðurinn um og stynur.
28 Hver treystir liprum þjófi
sem flakkar borg úr borg?
Ekki er þeim fremur treyst sem á hvergi heima
og lætur þar nótt sem nemur.