1 Helgigönguljóð. Eftir Davíð.
Ég varð glaður er menn sögðu við mig:
„Göngum í hús Drottins.“
2Fætur vorir standa
í hliðum þínum, Jerúsalem.
3Jerúsalem, þú rammgerða borg,
þéttbyggð og traust,
4þangað sem ættbálkarnir halda,
ættbálkar Drottins.
Það er regla í Ísrael
að syngja nafni Drottins lof.
5Þar standa hásæti dómsins,
hásæti Davíðs ættar.
6Biðjið Jerúsalem friðar,
að þeir sem elska þig megi búa óhultir.
7Friður sé innan múra þinna,
heill í höllum þínum.
8Sakir bræðra minna og vina
óska ég þér friðar.
9Sakir húss Drottins, Guðs vors,
vil ég leita þér heilla.