Þakkir og hvatningar

1 Páll, postuli Krists Jesú, að vilja Guðs sendur til að boða fyrirheitið um lífið í Kristi Jesú, heilsar 2 Tímóteusi, elskuðu barni sínu.
Náð, miskunn og friður frá Guði föður og Kristi Jesú, Drottni vorum.
3 Ég þakka Guði, sem ég þjóna með hreinni samvisku, eins og forfeður mínir, með því að ég án afláts, nótt og dag, minnist þín í bænum mínum. 4 Ég þrái að sjá þig, minnugur tára þinna, til þess að ég fyllist gleði 5 er ég rifja upp fyrir mér hina hræsnislausu trú þína. Sú trú bjó fyrst í henni Lóis ömmu þinni og í henni Evnike móður þinni og ég er sannfærður um að hún býr líka í þér.
6 Fyrir þá sök minni ég þig á að glæða hjá þér þá náðargjöf sem Guð gaf þér við yfirlagningu handa minna. 7 Því að ekki gaf Guð okkur anda hugleysis heldur anda máttar og kærleiks og stillingar.
8 Fyrirverð þig því ekki fyrir vitnisburðinn um Drottin vorn né fyrir mig, bandingja hans, heldur skalt þú með mér illt þola vegna fagnaðarerindisins svo sem Guð gefur máttinn til. 9 Hann hefur frelsað okkur og kallað heilagri köllun, ekki vegna verka okkar heldur eftir eigin ákvörðun og náð sem okkur var gefin frá eilífum tímum í Kristi Jesú 10 en hefur nú birst við komu frelsara vors, Krists Jesú. Hann afmáði dauðann en leiddi í ljós líf og óforgengileika með fagnaðarerindinu. 11 Og til að boða það er ég settur prédikari, postuli og kennari.
12 Fyrir þá sök líð ég og þetta. En ég fyrirverð mig eigi því að ég veit á hvern ég trúi. Og ég er sannfærður um að hann er þess megnugur að varðveita það sem mér er trúað fyrir þar til dagurinn kemur.
13 Farðu eftir heilnæmu orðunum sem þú heyrðir mig flytja og tileinka þér þá trú og þann kærleika sem Kristur Jesús veitir. 14 Varðveittu hið góða, sem þér er trúað fyrir, með hjálp heilags anda sem í okkur býr.
15 Þú veist að allir Asíumenn sneru við mér bakinu. Í þeirra flokki eru þeir Fýgelus og Hermogenes.
16 Drottinn veiti heimili Ónesífórusar miskunn því að oft hressti hann mig og fyrirvarð sig ekki fyrir fjötur minn 17 heldur lét sér annt um að leita mín þegar hann kom til Rómar og fann mig. 18 Drottinn Jesús veiti honum á þeim degi miskunn hjá Drottni Guði. Og þú þekkir manna best hve mikla þjónustu hann innti af hendi í Efesus.