1Betri er fátækur maður og ráðvandur
en sá sem er flár í orðum og heimskur.
2Kapp er best með forsjá
og sá hrasar sem hraðar sér.
3Flónska mannsins eyðir efnum hans
en hjarta hans kennir Drottni um.
4Auður fjölgar vinum
en fátækum manni bregst vinur.
5Falsvotti verður ekki látið órefsað,
sá sem fer með lygar kemst ekki undan.
6Margir smjaðra fyrir tignarmanninum,
allir eru vinir hins örláta.
7Allir bræður hins snauða fyrirlíta hann,
hve miklu fremur forðast þá vinir hans hann.
8Sá sem öðlast skilning vinnur sér mest gagn,
sá sem ann skynseminni hlýtur hamingju.
9Falsvotti verður ekki látið órefsað
og sá sem fer með lygar tortímist.
10Sællífi hæfir ekki heimskum manni,
hvað þá þræli að drottna yfir höfðingjum.
11Það er viska að vera seinn til reiði
og sæmd að láta rangsleitni ekki á sig fá.
12Reiði konungs er eins og ljónsöskur
en hylli hans sem dögg á grasi.
13Heimskur sonur steypir föður sínum í glötun,
konuþras er sem sífelldur þakleki.
14Hús og auður er arfur frá feðrunum
en hyggin kona er gjöf frá Drottni.
15Letin svæfir þungum svefni
og iðjuleysingjann mun hungra.
16Sá sem hlýðir lögmálinu varðveitir líf sitt
en sá deyr sem ekki hefur gát á vegum sínum.
17Sá lánar Drottni sem líknar fátækum,
hann mun endurgjalda honum.
18Agaðu son þinn meðan enn er von,
gættu þess að gera ekki út af við hann.
19Hinn skapbráði mun hljóta refsingu,
reynir þú að bjarga honum gerir þú illt verra.
20Hlýddu ráðum og taktu umvöndun
svo að þú verðir vitur að lokum.
21Mörg er ráðagerð mannshjartans
en áform Drottins standa.
22 Maðurinn þráir miskunnarverk
og betri er fátækur maður en lygari.
23 Að óttast Drottin leiðir til lífs,
þá hvílast menn mettir og óhultir.
24 Latur maður dýfir hendinni ofan í skálina
en nennir ekki að bera hana upp að munni sér.
25 Sláir þú spottarann verður hinn fávísi hygginn,
sé vandað um við skynsaman mann vex hann að viti.
26 Sá sem misþyrmir föður sínum og rekur burt móður sína,
sá sonur fremur smán og óhæfu.
27 Sonur minn, hættu að hlýða á umvöndun
og þú fjarlægist orð þekkingarinnar.
28 Gagnslaust vitni hæðir réttinn
og illkvittni býr í munni ranglátra.
29 Spottarar eiga refsingar í vændum
og bök heimskingjanna verða barin.