Skyldur við yfirvöld

1 Hver maður hlýði þeim yfirvöldum sem eru yfir hann sett. Því engin væru yfirvöld ef Guð gæfi þau ekki. Þau sem eru til hefur Guð skipað. 2 Sá sem veitir yfirvöldum mótstöðu veitir skipan Guðs mótstöðu og hlýtur að fá sinn dóm. 3 Sá sem vinnur góð verk þarf ekki að óttast valdhafa heldur sá sem vinnur vond verk. Viljir þú eigi þurfa að óttast yfirvöld skaltu gera það sem gott er og þá færðu þeirra lof, 4 því að þau þjóna Guði þér til góðs. En ef þú gerir það sem illt er þá máttu óttast. Yfirvöldin bera ekki sverð sitt ófyrirsynju. Þau þjóna Guði og er skylt að refsa þeim sem illt fremja. 5 Því er nauðsyn að hlýðnast, ekki aðeins af ótta við hegningu heldur og vegna samvisku sinnar.
6 Enda er það þess vegna sem þið gjaldið skatta, að valdhafar eru þjónar Guðs í því sem þeir eiga að annast. 7 Gjaldið öllum það sem skylt er: Þeim skatt sem skattur ber, þeim virðingu sem virðing ber, þeim heiður sem heiður ber.

Kærleikurinn uppfylling lögmálsins

8 Skuldið ekki neinum neitt nema það eitt að elska hvert annað því að sá sem elskar náunga sinn hefur uppfyllt lögmálið. 9 Boðorðin: „Þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki stela, þú skalt ekki girnast,“ og hvert annað boðorð er innifalið í þessari grein: „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“ 10 Kærleikurinn gerir ekki náunganum mein. Þess vegna er kærleikurinn uppfylling lögmálsins.
11 Gerið þetta því heldur sem þið vitið hvað tímanum líður, að ykkur er mál að rísa af svefni. Nú er okkur hjálpræðið nær en þá er við tókum trú. 12 Liðið er á nóttina og dagurinn í nánd. Leggjum því af verk myrkursins og klæðumst hertygjum ljóssins. 13 Lifum svo að sæmd sé að, því nú er dagur kominn, en hvorki í ofáti né ofdrykkju, hvorki saurlífi né svalli, ekki með þrætum eða öfund. Íklæðist heldur Drottni Jesú Kristi og leggið ekki þann hug á jarðnesk efni að það veki girndir.