Sáttmálinn á Sínaífjalli

Sáttmálinn undirbúinn

1 Á fyrsta degi þriðja mánaðar, sama mánaðardag og Ísraelsmenn fóru frá Egyptalandi, komu þeir inn í Sínaíeyðimörkina. 2 Þeir lögðu af stað frá Refídím, komu inn í Sínaíeyðimörkina og settu upp búðir sínar þar. Ísrael sló upp tjöldum gegnt fjallinu 3 en Móse gekk upp til Guðs.
Drottinn hrópaði til hans af fjallinu og sagði: „Segðu svo við niðja Jakobs og kunngjörðu Ísraelsmönnum: 4 Þið hafið séð hvernig ég hef farið með Egypta og hvernig ég hef borið ykkur á arnarvængjum og flutt til mín. 5 Ef þið nú hlýðið á mig af athygli og haldið sáttmála minn skuluð þið verða sérstök eign mín, umfram aðrar þjóðir, því að öll jörðin er mín. 6 Þið skuluð verða mér konungsríki presta og heilög þjóð. Þetta eru þau orð sem þú skalt flytja Ísraelsmönnum.“
7 Þegar Móse kom aftur stefndi hann saman öldungum þjóðarinnar og flutti þeim öll þau fyrirmæli sem Drottinn hafði falið honum. 8 Öll þjóðin svaraði honum einum rómi og sagði: „Við skulum gera allt sem Drottinn hefur boðið.“ Móse flutti Drottni svar þjóðarinnar.
9 Drottinn sagði við Móse: „Nú kem ég til þín í dimmu skýi svo að fólkið geti heyrt þegar ég tala við þig og treyst þér ævinlega.“ Móse skýrði Drottni frá orðum fólksins.
10 Drottinn sagði við Móse: „Farðu til fólksins og helgaðu það í dag og á morgun. Það á að þvo klæði sín 11 og vera reiðubúið á þriðja degi því að á þriðja degi stígur Drottinn niður á Sínaífjall í augsýn allrar þjóðarinnar. 12 Þú skalt setja fólkinu mörk á allar hliðar og segja: Varist að ganga upp á fjallið eða snerta rætur þess. Sérhver, sem snertir fjallið, mun vissulega deyja. 13 Engin hönd má snerta það. En hver sem það gerir, hvort heldur það er maður eða skepna, skal grýttur eða skotinn til bana. Þegar hornið er þeytt skulu þeir ganga upp á fjallið.“
14 Móse kom því næst niður af fjallinu til fólksins. Hann helgaði fólkið og það þvoði föt sín. 15 Síðan sagði hann: „Verið reiðubúnir á þriðja degi. Komið ekki nálægt nokkurri konu.“
16 Þegar morgnaði á þriðja degi urðu þrumur og eldingar. Þykkur skýsorti var yfir fjallinu og mjög öflugur hornablástur heyrðist. Skelfdist þá allt fólkið í búðunum. 17 Móse leiddi fólkið út úr búðunum í áttina til Guðs og það tók sér stöðu undir fjallinu. 18 Allt Sínaífjall var hulið reyk því að Drottinn steig niður á það í eldi. Mökkurinn steig upp af því eins og reykur úr bræðsluofni og allt fjallið lék á reiðiskjálfi. 19 Hornablásturinn varð æ sterkari. Móse talaði og Drottinn svaraði honum svo að heyra mátti.
20 Drottinn steig niður á Sínaífjall, á fjallstindinn. Drottinn kallaði Móse upp á fjallstindinn og Móse gekk upp. 21 Drottinn sagði við Móse: „Farðu niður og varaðu fólkið við svo að það ryðjist ekki fram til Drottins til að sjá hann því að þá mundu margir láta lífið. 22 Jafnvel prestarnir, sem annars nálgast Drottin, verða að helga sig svo að Drottinn ráðist ekki gegn þeim.“ 23 Móse svaraði Drottni: „Fólkið getur ekki gengið upp á Sínaífjall því að þú hefur varað okkur við og sagt: Afmarkaðu fjallið og helgaðu það.“ 24 Drottinn sagði við hann: „Farðu nú, gakktu niður og komdu svo upp aftur og Aron með þér. En prestarnir og fólkið má ekki reyna að brjótast upp hingað til Drottins svo að hann ráðist ekki gegn þeim.“
25 Móse gekk niður til fólksins og sagði því þetta.