Reykelsisaltarið

1 Þú skalt gera altari til að brenna á reykelsi. Þú skalt gera það úr akasíuviði, 2 álnarlangt og álnarbreitt. Það á að vera ferhyrnt og tveggja álna hátt. Horn þess skulu vera föst við það. 3 Þú skalt leggja það skíru gulli, bæði plötuna, hliðar þess og horn, og þú skalt einnig gera umgjörð úr gulli allt umhverfis það. 4 Þú skalt gera tvo hringi úr gulli og festa þá neðan við umgjörðina á báðum hliðum þess. Þeir eru til að smeygja í þá stöngum til að bera það. 5 Þú skalt gera stengurnar úr akasíuviði og leggja þær gulli. 6 Þú skalt setja altarið framan við fortjaldið, sem er fyrir örkinni með sáttmálstákninu, framan við lokið sem er yfir sáttmálstákninu þar sem ég mun eiga við þig samfundi. 7 Aron á að brenna á því ilmreykelsi. Hann á að brenna það á hverjum morgni þegar hann útbýr lampana. 8 Aron á einnig að brenna það um sólsetur þegar hann setur lampana upp. Þetta er síendurtekin reykelsisfórn fyrir augliti Drottins frá kyni til kyns.
9 Þið megið hvorki láta framandi reykelsi líða upp af því né brennifórn eða kornfórn og þið megið ekki dreypa á það dreypifórn. 10 Einu sinni á ári skal Aron friðþægja fyrir altarishornin með nokkru af friðþægingarblóði syndafórnarinnar. Einu sinni á ári skal hann friðþægja fyrir það kynslóð eftir kynslóð. Það er háheilagt og helgað Drottni.“

Gjald til helgidómsins

11 Drottinn ávarpaði Móse og sagði: 12 „Þegar þú tekur manntal meðal Ísraelsmanna við liðskönnun þeirra skal sérhver greiða lausnargjald til Drottins fyrir líf sitt þegar þeir verða kannaðir svo að ekki komi nein plága yfir þá vegna könnunarinnar. 13 Hver sá sem gengur yfir til þeirra sem taldir hafa verið, skal greiða hálfan sikil miðað við þyngd helgidómssikilsins, það er tuttugu gerur í sikli, hálfan sikil til Drottins. 14 Hver, tuttugu ára og eldri, sem gengur yfir til þeirra sem taldir hafa verið, skal greiða afgjaldið. 15 Ríkur maður skal ekki greiða meira og fátækur ekki minna en hálfan sikil þegar þið friðþægið fyrir líf ykkar til Drottins. 16 Þú skalt taka við lausnargjaldinu frá Ísraelsmönnum og nota það til að greiða fyrir þjónustuna í samfundatjaldinu. Það á að minna Ísraelsmenn á frammi fyrir augliti Drottins og friðþægja fyrir líf ykkar.“

Vatnskerið

17 Drottinn ávarpaði Móse og sagði: 18 „Þú skalt gera ker úr eir til þvottar og stétt úr eir fyrir það. Þú skalt koma því fyrir milli samfundatjaldsins og altarisins og láta vatn í það. 19 Aron og synir hans skulu þvo hendur sínar og fætur úr því. 20 Þegar þeir ganga inn í samfundatjaldið skulu þeir þvo sér úr vatni svo að þeir deyi ekki. Einnig þegar þeir ganga að altarinu til þess að þjóna, með því að láta eldfórn til Drottins líða upp í reyk, 21 þá skulu þeir þvo hendur sínar og fætur svo að þeir deyi ekki. Þetta er ævarandi skylda hans og niðja hans frá kyni til kyns.“

Smurningarolían

22 Drottinn ávarpaði Móse og sagði: 23 „Taktu þér hinar ágætustu ilmjurtir, fimm hundruð sikla af fljótandi myrru, helmingi minna, eða tvö hundruð og fimmtíu sikla, af ilmandi kanel, tvö hundruð og fimmtíu sikla af ilmandi kalmus 24 og fimm hundruð sikla miðað við þyngd helgidómssikils af kassía og eina hín af ólífuolíu. 25 Úr þessu skaltu gera heilaga smurningarolíu, ilmsmyrsl, að hætti smyrslagerðarmanna. Þetta skal verða heilög smurningarolía.
26 Með henni skaltu smyrja samfundatjaldið, örk sáttmálstáknsins, 27 borðið ásamt öllum áhöldum þess, ljósastikuna ásamt áhöldum hennar, reykelsisaltarið, 28 brennifórnaraltarið ásamt öllum áhöldum þess og kerið ásamt stétt þess. 29 Þú skalt helga þau svo að þau verði háheilög, sérhver sem snertir þau verður heilagur.
30 Þú skalt einnig smyrja Aron og syni hans og vígja þá til að þjóna sem prestar fyrir mig.
31 Þú skalt ávarpa Ísraelsmenn og segja: Þetta skal vera mér heilög smurningarolía frá kyni til kyns. 32 Henni má ekki dreypa á hörund nokkurs manns og þið megið ekki búa til neitt annað með sömu aðferð, hún er heilög og skal vera ykkur heilög. 33 Sérhver, sem gerir sams konar smyrsl og fær það óvígðum manni, skal upprættur úr þjóð sinni.“

Reykelsið

34 Drottinn sagði við Móse: „Taktu ilmefni, fljótandi ilmkvoðu, ilmolíu, ilmandi trjákvoðu og hreint reykelsi, jafnmikið af hverju, 35 og gerðu úr þessu ilmandi reykelsi að hætti smyrslagerðarmanna, saltað, hreint og heilagt.
36 Þú skalt steyta dálítið af því í fínt duft og setja nokkuð af því fyrir framan örkina með sáttmálstákninu í samfundatjaldinu þar sem ég mun eiga við þig samfundi. Það skal vera ykkur háheilagt. 37 Reykelsi, sem þú gerir á þennan hátt, megið þið ekki gera handa sjálfum ykkur. Þú skalt telja það helgað Drottni. 38 Sérhver maður, sem gerir annað eins til að njóta ilms þess, skal upprættur úr þjóð sinni.“