1 Sálmur.
Syngið Drottni nýjan söng
því að hann hefur unnið dásemdarverk,
hægri hönd hans hjálpaði honum
og heilagur armur hans.
2Drottinn kunngjörði hjálpræði sitt
og sýndi þjóðunum réttlæti sitt.
3Hann minntist miskunnar sinnar
og trúfesti sinnar við Ísraels hús.
Öll endimörk jarðar
sáu hjálpræði Guðs vors.
4Látið gleðióp gjalla fyrir Drottni, öll lönd,
hefjið gleðisöng, hrópið fagnaðaróp og lofsyngið.
5Leikið fyrir Drottni á gígju,
á gígju með lofsöngshljómi,
6með lúðraþyt og básúnuhljómi,
látið gleðióp gjalla fyrir konunginum, Drottni.
7Hafið drynji og allt sem í því er,
heimurinn og þeir sem í honum búa.
8Fljótin skulu klappa lof í lófa,
fjöllin fagna öll saman
9fyrir augliti Drottins því að hann kemur
til að ríkja yfir jörðinni,
ríkja yfir heiminum með réttlæti,
yfir þjóðunum með réttvísi.