Sáttmáli við Abram

1 Eftir þessa atburði kom orð Drottins til Abrams í sýn: „Óttast þú ekki, Abram. Ég er skjöldur þinn. Laun þín munu mjög mikil verða.“
2 Abram svaraði: „Drottinn Guð! Hvað getur þú gefið mér? Ég fer héðan barnlaus og erfingi húss míns verður Elíeser frá Damaskus.“ 3 Og enn fremur mælti hann: „Sjá, þú hefur ekki gefið mér neitt afkvæmi og húskarl minn mun erfa mig.“
4 Þá kom orð Drottins aftur til Abrams: „Ekki mun hann erfa þig heldur sá sem af þér mun getinn verða. Hann skal erfa þig.“
5 Þá leiddi hann Abram út fyrir og mælti: „Líttu til himins og teldu stjörnurnar ef þú getur.“ Og hann sagði: „Svo margir munu niðjar þínir verða.“
6 Og Abram trúði Drottni og hann reiknaði honum það til réttlætis.
7 Og Drottinn sagði við hann: „Ég er Drottinn sem leiddi þig út frá Úr í Kaldeu til þess að gefa þér þetta land til eignar.“
8 Abram svaraði: „Drottinn Guð, hvað hef ég til marks um að ég muni eignast það?“
9 Drottinn svaraði honum: „Færðu mér þrevetra kvígu, þrevetra geit og þrevetra hrút, turtildúfu og dúfuunga.“
10 Hann færði honum öll þessi dýr, hlutaði þau sundur í miðju og lagði hvern helminginn gegnt öðrum. En fuglana hlutaði hann ekki í tvennt. 11 Flugu þá hræfuglar að ætinu en Abram fældi þá burt.
12 Er sól var að ganga til viðar leið þungur svefnhöfgi á Abram og ótti og myrk skelfing kom yfir hann.
13 Þá sagði Drottinn: „Það skaltu vita að niðjar þínir munu lifa sem landlausir aðkomumenn í landi sem þeir eiga ekki. Þeir munu þrælkaðir verða og þjáðir í fjögur hundruð ár. 14 En ég mun vissulega kveða upp dóm yfir þjóðinni sem þrælkar þá og síðar munu þeir þaðan fara með mikinn fjárhlut. 15 Og þú munt safnast til feðra þinna í friði og verða jarðaður í hárri elli. 16 Í fjórða ættlið munu þeir snúa hingað aftur því að enn hafa Amorítar ekki fyllt mæli sektar sinnar.“
17 Sólin gekk til viðar og myrkur skall á. Kom þá reykur sem úr ofni og eldslogi er leið fram á milli fórnarstykkjanna.
18 Á þeim degi gerði Drottinn sáttmála við Abram og mælti: „Niðjum þínum gef ég þetta land, frá Egyptalandsá til fljótsins mikla, Efrats, 19 land Keníta, Kenisíta, Kadmoníta, 20 Hetíta, Peresíta, Refaíta, 21 Amoríta, Kanverja, Gírgasíta og Jebúsíta.“