1 Til frelsis frelsaði Kristur okkur. Standið því stöðug og látið ekki aftur leggja á ykkur ánauðarok.

Frelsuð til frelsis

2 Takið eftir því sem ég, Páll, segi ykkur: Ef þið látið umskerast, þá gagnar Kristur ykkur ekkert. 3 Og enn legg ég ríka áherslu á að sérhver sem lætur umskerast er skyldur til að halda allt lögmálið. 4 Þið eruð orðin viðskila við Krist, þið sem ætlið að réttlætast með lögmáli. Þið eruð fallin úr náðinni. 5 En við væntum í andanum að öðlast af trúnni réttlætinguna sem er von okkar. 6 Í samfélaginu við Krist Jesú gildir hvorki umskurn né yfirhúð heldur trú sem verkar í kærleika.
7 Þið fóruð svo vel af stað. Hver hefur hindrað ykkur í að hlýða sannleikanum? 8 Það kom ekki frá þeim sem kallaði ykkur. 9 Lítið súrdeig sýrir allt deigið. 10 Ég hef það traust til ykkar í Drottni að þið verðið sama sinnis og ég. Sá sem truflar ykkur mun fá sinn dóm, hver sem hann svo er. 11 En hvað mig snertir, bræður mínir og systur,[ ef ég er enn þá að prédika umskurn, hví er þá enn verið að ofsækja mig? Þá væri hneyksli krossins tekið burt. 12 Vel mættu þeir sem koma ykkur í uppnám aflima sig.
13 Bræður og systur,[ þið voruð kölluð til að vera frjáls. Misnotið ekki frelsið í þágu eigin girnda heldur þjónið hvert öðru í kærleika. 14 Allt lögmálið felst í þessu eina boðorði: „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“ 15 En ef þið bítist og etið hvert annað upp, þá gætið þess að þið tortímið ekki hvert öðru.
16 En ég segi: Lifið í andanum og þá fullnægið þið alls ekki girnd holdsins. 17 Holdið girnist gegn andanum og andinn gegn holdinu. Þau standa hvort gegn öðru til þess að þið gerið ekki það sem þið viljið. 18 En ef þið leiðist af andanum þá eruð þið ekki undir lögmáli.
19 Holdsins verk eru augljós: frillulífi, óhreinleiki, saurlífi, 20 skurðgoðadýrkun, fjölkynngi, fjandskapur, deilur, metingur, reiði, eigingirni, tvídrægni, flokkadráttur, 21 öfund, ofdrykkja, svall og annað þessu líkt. Og það segi ég ykkur fyrir, eins og ég hef áður sagt, að þeir sem slíkt gera munu ekki erfa Guðs ríki.
22 En ávöxtur andans er: kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild, trúmennska, 23 hógværð og sjálfsagi. Gegn slíku er lögmálið ekki. 24 En þeir sem trúa á Krist hafa krossfest holdið með ástríðum þess og girndum.
25 Fyrst andinn hefur vakið okkur til lífs skulum við lifa í andanum. 26 Verum ekki hégómagjörn svo að við áreitum og öfundum hvert annað.