Fiskidráttur Péturs

1 Nú bar svo til að Jesús stóð við Genesaretvatn og mannfjöldinn þrengdist að honum til að hlýða á Guðs orð. 2 Þá sá hann tvo báta við vatnið en fiskimennirnir voru farnir í land og þvoðu net sín. 3 Hann fór út í þann bátinn er Símon átti og bað hann að leggja lítið eitt frá landi, settist og tók að kenna mannfjöldanum úr bátnum.
4 Þegar hann hafði lokið ræðu sinni sagði hann við Símon: „Legg þú út á djúpið og leggið net ykkar til fiskjar.“
5 Símon svaraði: „Meistari, við höfum stritað í alla nótt og ekkert fengið en fyrst þú segir það skal ég leggja netin.“ 6 Nú gerðu þeir svo og fengu þeir þá mikinn fjölda fiska en net þeirra tóku að rifna. 7 Bentu þeir þá félögum sínum á hinum bátnum að koma og hjálpa sér. Þeir komu og hlóðu báða bátana svo að nær voru sokknir.
8 Þegar Símon Pétur sá þetta féll hann á kné frammi fyrir Jesú og sagði: „Far þú frá mér, Drottinn, því að ég er syndugur maður.“ 9 En felmtur kom á hann og alla þá sem með honum voru vegna fiskaflans er þeir höfðu fengið. 10 Eins var um Jakob og Jóhannes Sebedeussyni, félaga Símonar. Jesús sagði þá við Símon: „Óttast þú ekki, héðan í frá skalt þú menn veiða.“
11 Og þeir lögðu bátunum að landi, yfirgáfu allt og fylgdu honum.

Jesús læknar líkþráan

12 Svo bar við, er Jesús var í einni borginni, að þar var maður altekinn líkþrá. Hann sá Jesú, féll fram fyrir honum og bað hann: „Drottinn, ef þú vilt getur þú hreinsað mig.“[
13 Jesús rétti út höndina, snart hann og mælti: „Ég vil, verð þú hreinn!“ Jafnskjótt hvarf af honum líkþráin. 14 Og hann bauð honum að segja þetta engum. „En far þú,“ sagði hann, „sýn þig prestinum og fórna fyrir hreinsun þína eins og Móse bauð, þeim til vitnisburðar.“
15 En fregnin um Jesú breiddist út því meir og menn komu hópum saman til að hlýða á hann og læknast af meinum sínum. 16 En Jesús dró sig í hlé og fór til óbyggðra staða og baðst þar fyrir.

Jesús læknar lama mann

17 Dag nokkurn var Jesús að kenna. Þar sátu farísear og lögmálskennendur, komnir úr hverju þorpi í Galíleu og Júdeu og frá Jerúsalem, og kraftur Drottins var með honum til að lækna. 18 Komu þá menn með lama mann í rekkju og reyndu að bera hann inn og leggja hann fyrir framan Jesú. 19 En vegna mannfjöldans sáu þeir engin ráð til að komast inn með hann og fóru því upp á þak og létu hann síga í rekkjunni niður um helluþekjuna beint fram fyrir Jesú. 20 Og er Jesús sá trú þeirra sagði hann: „Maður, syndir þínar eru þér fyrirgefnar.“
21 Þá tóku fræðimennirnir og farísearnir að hugsa með sér: „Hver er sá er fer með slíka guðlöstun? Hver getur fyrirgefið syndir nema Guð einn?“
22 En Jesús skynjaði gjörla hugsanir þeirra og sagði við þá: „Hvað hugsið þið í hjörtum ykkar? 23 Hvort er auðveldara að segja: Syndir þínar eru þér fyrirgefnar, eða segja: Statt upp og gakk? 24 En til þess að þið vitið að Mannssonurinn hefur vald á jörðu til að fyrirgefa syndir, þá segi ég þér,“ – og nú talar hann við lama manninn: „Statt upp, tak rekkju þína og far heim til þín.“
25 Jafnskjótt stóð maðurinn upp frammi fyrir þeim, tók það sem hann hafði legið á, fór heim til sín og lofaði Guð. 26 En allir voru furðu lostnir og lofuðu Guð. Og þeir urðu óttaslegnir og sögðu: „Óskiljanlegt er það sem við höfum séð í dag.“

Köllun Leví

27 Eftir þetta fór Jesús út. Þá sá hann tollheimtumann, Leví að nafni, sitja hjá tollbúðinni og sagði við hann: „Fylg þú mér!“ 28 Og hann stóð upp, yfirgaf allt og fylgdi honum.
29 Leví bjó honum veislu mikla í húsi sínu og þar sat að borði með þeim mikill fjöldi tollheimtumanna og annarra. 30 En farísearnir og fræðimenn þeirra vönduðu um við lærisveina hans og sögðu: „Hvers vegna etið þið og drekkið með tollheimtumönnum og bersyndugum?“
31 Og Jesús svaraði þeim: „Ekki þurfa heilbrigðir læknis við heldur þeir sem sjúkir eru. 32 Ég er ekki kominn til að kalla réttláta til afturhvarfs heldur syndara.“

Um föstu

33 En farísearnir og fræðimennirnir sögðu við Jesú: „Lærisveinar Jóhannesar fasta oft og fara með bænir og eins lærisveinar okkar en þínir eta og drekka.“
34 Jesús sagði við þá: „Hvort getið þið ætlað brúðkaupsgestum að fasta meðan brúðguminn er hjá þeim? 35 En koma munu þeir dagar er brúðguminn verður frá þeim tekinn, þá munu þeir fasta á þeim dögum.“
36 Jesús sagði þeim einnig líkingu: „Enginn rífur bót af nýju fati og lætur á gamalt fat því að bæði rífur hann þá nýja fatið og bótin af því hæfir ekki hinu gamla. 37 Og enginn lætur nýtt vín á gamla belgi því þá sprengir nýja vínið belgina og fer niður en belgirnir ónýtast. 38 Nýtt vín ber að láta á nýja belgi. 39 Og enginn, sem drukkið hefur gamalt vín, vill nýtt því að hann segir: Hið gamla er gott.“