Með svikum

1 Nú voru tveir dagar til páska og hátíðar ósýrðu brauðanna. Og æðstu prestarnir og fræðimennirnir leituðu fyrir sér hvernig þeir gætu handsamað Jesú með svikum og tekið hann af lífi. 2 En þeir sögðu: „Ekki á hátíðinni, þá gæti orðið uppþot meðal fólksins.“

Gott verk gerði hún

3 Jesús var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa, og sat að borði. Þá kom þar kona og hafði alabastursbuðk með ómenguðum, dýrum nardussmyrslum. Hún braut buðkinn og hellti yfir höfuð honum. 4 En þar voru nokkrir er gramdist þetta og þeir sögðu sín á milli: „Til hvers er þessi sóun á smyrslum? 5 Þessi smyrsl hefði mátt selja fyrir meira en þrjú hundruð denara[ og gefa fátækum.“ Og þeir atyrtu hana.
6 En Jesús sagði: „Látið hana í friði! Hvað eruð þið að angra hana? Gott verk gerði hún mér. 7 Fátæka hafið þið jafnan hjá ykkur og getið gert þeim gott nær þið viljið en mig hafið þið ekki ávallt. 8 Hún gerði það sem í hennar valdi stóð. Hún hefur fyrir fram smurt líkama minn til greftrunar. 9 Sannlega segi ég ykkur: Hvar sem fagnaðarerindið verður flutt, um heim allan, mun og getið verða þess sem hún gerði og hennar minnst.“

Leitað færis

10 Júdas Ískaríot, einn þeirra tólf, fór þá til æðstu prestanna að framselja þeim hann. 11 Þegar þeir heyrðu það urðu þeir glaðir við og hétu honum fé fyrir. En hann leitaði færis að framselja hann.

Búið til páskamáltíðar

12 Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna, þegar menn slátruðu páskalambinu, sögðu lærisveinar hans við Jesú: „Hvert vilt þú að við förum og búum þér páskamáltíðina?“
13 Þá sendi Jesús tvo lærisveina sína og sagði við þá: „Farið inn í borgina og ykkur mun mæta maður sem ber vatnsker. Fylgið honum 14 og þar sem hann fer inn skuluð þið segja við húsráðandann: Meistarinn spyr: Hvar er herbergið þar sem ég get neytt páskamáltíðarinnar með lærisveinum mínum? 15 Hann mun þá sýna ykkur loftsal mikinn, búinn hægindum og til reiðu. Búið þar til máltíðar fyrir okkur.“
16 Lærisveinarnir fóru, komu inn í borgina og fundu allt eins og hann hafði sagt og bjuggu til páskamáltíðar.
17 Um kvöldið kom hann með þeim tólf. 18 Þegar þeir sátu að borði[ og mötuðust sagði Jesús: „Sannlega segi ég ykkur: Einn af ykkur mun svíkja mig, einn sem með mér etur.“
19 Þeir urðu hryggir við og sögðu við hann, einn af öðrum: „Er það ég?“
20 Hann svaraði þeim: „Það er einn þeirra tólf. Hann dýfir brauðinu í fatið með mér. 21 Mannssonurinn fer að sönnu héðan svo sem um hann er ritað en vei þeim manni sem því veldur að Mannssonurinn verður framseldur. Betra væri þeim manni að hafa aldrei fæðst.“

Heilög kvöldmáltíð

22 Þá er þeir mötuðust tók Jesús brauð, þakkaði Guði, braut það, gaf þeim og sagði: „Takið, þetta er líkami minn.“
23 Og Jesús tók kaleik, gerði þakkir og gaf þeim og þeir drukku af honum allir. 24 Og hann sagði við þá: „Þetta er blóð mitt, blóð sáttmálans, úthellt fyrir marga. 25 Sannlega segi ég ykkur: Héðan í frá mun ég eigi drekka af ávexti vínviðarins til þess dags er ég drekk hann nýjan í Guðs ríki.“

Til Olíufjallsins

26 Þegar þeir höfðu sungið lofsönginn fóru þeir til Olíufjallsins. 27 Og Jesús sagði við þá: „Þið munuð allir hafna mér því að ritað er:
Ég mun slá hirðinn
og sauðirnir munu tvístrast.

28 En eftir að ég er upp risinn mun ég fara á undan ykkur til Galíleu.“
29 Þá sagði Pétur: „Þótt allir hafni þér geri ég það aldrei.“
30 Jesús sagði við hann: „Sannlega segi ég þér: Nú í nótt, áður en hani galar tvisvar, muntu afneita mér þrisvar.“
31 En Pétur kvað enn fastar að: „Þó að ég ætti að deyja með þér þá mun ég aldrei afneita þér.“
Eins töluðu þeir allir.

Í Getsemane

32 Þeir koma til staðar er heitir Getsemane og Jesús segir við lærisveina sína: „Setjist hér meðan ég biðst fyrir.“ 33 Hann tók með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes. Og nú setti að honum ógn og angist. 34 Hann segir við þá: „Sál mín er hrygg allt til dauða. Bíðið hér og vakið.“
35 Þá gekk Jesús lítið eitt áfram, féll til jarðar og bað að þessi stund færi fram hjá sér ef þess væri kostur. 36 Hann sagði: „Abba, faðir! allt megnar þú. Tak þennan kaleik frá mér! Þó ekki sem ég vil heldur sem þú vilt.“
37 Jesús kemur aftur og finnur þá sofandi. Þá sagði hann við Pétur: „Símon, sefur þú? Gastu ekki vakað eina stund? 38 Vakið og biðjið svo að þið fallið ekki í freistni. Andinn er reiðubúinn en holdið veikt.“
39 Aftur vék Jesús brott og baðst fyrir með sömu orðum. 40 Þegar hann kom aftur fann hann þá enn sofandi því drungi var á augum þeirra. Og ekki vissu þeir hvað þeir ættu að segja við hann.
41 Í þriðja sinn kom hann og sagði við þá: „Sofið þið enn og hvílist? Nú er nóg. Stundin er komin. Mannssonurinn er framseldur í hendur syndugra manna. 42 Standið upp, förum! Sá er í nánd er mig svíkur.“

Tekinn höndum

43 Um leið, meðan Jesús var enn að tala, kemur Júdas, einn þeirra tólf, og með honum flokkur manna frá æðstu prestunum, fræðimönnunum og öldungunum og höfðu þeir sverð og barefli. 44 Svikarinn hafði sagt þeim þetta til marks: „Sá sem ég kyssi, hann er það. Takið hann höndum og færið brott í tryggri vörslu.“
45 Hann kemur, gengur beint að Jesú og segir: „Meistari!“ og kyssti hann. 46 En hinir lögðu hendur á hann og tóku hann fastan. 47 Einn þeirra, er hjá stóðu, brá sverði, hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum eyrað. 48 Þá sagði Jesús við þá: „Eruð þið að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja til að handtaka mig? 49 Daglega var ég hjá ykkur í helgidóminum og kenndi og þið tókuð mig ekki höndum. En ritningarnar hljóta að rætast.“
50 Þá yfirgáfu allir lærisveinarnir Jesú og flýðu. 51 En maður nokkur ungur fylgdist með honum. Hann hafði línklæði eitt á berum sér. Þeir vildu taka hann 52 en hann lét eftir línklæðið og flýði nakinn.

Fyrir ráðinu

53 Nú færðu þeir Jesú til æðsta prestsins. Þar komu saman allir æðstu prestarnir, öldungarnir og fræðimennirnir. 54 Pétur fylgdi honum álengdar, allt inn í garð æðsta prestsins. Þar sat hann hjá þjónunum og vermdi sig við eldinn.
55 Æðstu prestarnir og allt ráðið leituðu vitnis gegn Jesú til að geta líflátið hann en fundu eigi. 56 Margir báru þó ljúgvitni gegn honum en framburði þeirra bar ekki saman.
57 Þá stóðu nokkrir upp og báru ljúgvitni gegn Jesú og sögðu: 58 „Við heyrðum hann segja: Ég mun brjóta niður musteri þetta, sem með höndum er gert, og reisa annað á þrem dögum sem ekki er með höndum gert.“ 59 En ekki bar þeim heldur saman um þetta.
60 Þá stóð æðsti presturinn upp og spurði Jesú: „Svarar þú því engu sem þessir vitna gegn þér?“
61 En hann þagði og svaraði engu. Enn spurði æðsti presturinn hann: „Ertu Kristur, sonur hins blessaða?“
62 Jesús sagði: „Ég er sá og þið munuð sjá Mannssoninn sitja til hægri handar Hins almáttuga og koma í skýjum himins.“
63 Þá reif æðsti presturinn klæði sín og sagði: „Hvað þurfum við nú framar votta við? 64 Þið heyrðuð guðlastið. Hvað líst ykkur?“
Og þeir dæmdu hann allir sekan og dauða verðan.
65 Þá tóku sumir að hrækja á hann, þeir huldu andlit hans, slógu hann með hnefunum og sögðu við hann: „Þú ert spámaður, hver sló þig?“ Eins börðu þjónarnir hann.

Pétur afneitar

66 Pétur var niðri í garðinum. Þar kom ein af þernum æðsta prestsins 67 og sá hvar Pétur var að orna sér. Hún horfir á hann og segir: „Þú varst líka með manninum frá Nasaret, þessum Jesú.“
68 Því neitaði Pétur og sagði: „Ekki veit ég né skil hvað þú ert að fara.“ Og hann gekk út í forgarðinn [en þá gól haninn].[
69 Þar sá þernan hann og fór enn að segja við þá sem hjá stóðu: „Þessi er einn af þeim.“ 70 En hann neitaði sem áður. Litlu síðar sögðu þeir er hjá stóðu enn við Pétur: „Víst ertu einn af þeim enda ertu Galíleumaður.“
71 En Pétur sór og sárt við lagði: „Ég þekki ekki þennan mann sem þið talið um.“
72 Um leið gól haninn annað sinn og Pétur minntist þess er Jesús hafði mælt við hann: „Áður en hani galar tvisvar muntu afneita mér þrisvar.“ Þá fór hann að gráta.