Ver mildur við fátæka

1Barnið mitt, sviptu ekki bágstaddan björg,
lát eigi þurfandi augu lengi mæna.
2 Særðu ekki þann sem sveltur,
skaprauna þeim eigi sem líður skort.
3 Auk ekki angur þess sem þegar er bitur
og drag ekki nauðstaddan á gjöf þinni.
4 Synja ei bón aðþrengds manns
og snú eigi baki við fátækum.
5 Bein eigi sjónum frá þurfandi manni
og gef honum ekki ástæðu til að formæla þér.
6 Biðji hann þér bölbæna í nístandi biturð
mun sá sem hann skóp heyra bæn hans.
7 Gjör þig kæran söfnuðinum,
auðsýn valdsmönnum virðingu.
8 Hlýð á orð fátæks manns,
svara ávarpi hans vingjarnlega.
9 Bjarga ofsóttum frá ofsækjendum
og ver fastur fyrir þegar þú dæmir.
10 Vertu munaðarlausum sem faðir
og ekkjum stoð í makans stað.
Þá munt þú verða Hinum hæsta sem sonur,
hann mun elska þig meir en móðir þín.

Spekin sem kennari

11Spekin hefur börn sín til vegs
og tekur þau að sér sem hennar leita.
12 Sá sem elskar hana elskar lífið,
árrisulir hennar vegna hljóta ómældan fögnuð.
13 Sá sem spekina höndlar auðnast vegsemd
og blessun Drottins fylgir henni.
14 Þeir þjóna Hinum heilaga sem þjóna spekinni
og Drottinn elskar þá sem unna henni.
15 Sá sem hlýðir spekinni mun dæma lýði,
sá er henni fylgir mun óhultur búa.
16 Treysti hann spekinni mun hún verða eign hans
og ganga í arf til niðja hans.
17 Fyrst mun hún leiða hann um torfæra stigu
og vekja honum ótta og skelfingu.
Spekin agar hann með þjáningum
uns hann ber fullt traust til hennar.
Hún reynir hann með kröfum sínum.
18 Hún kemur síðan rakleitt til hans á ný,
gleður hann og birtir honum sína leyndu dóma.
19 Ef hann leiðist afvega yfirgefur hún hann
og ofurselur hann glötun.

Forðastu illt

20Tak ráð í tíma og forðast illt,
blygðast þín eigi fyrir sjálfan þig.
21 Til er blygðun sem leiðir til syndar
og blygðun sem heiður vex af og hylli.
22 Gjör þér engan mannamun þér til skaða,
lát eigi auðmýkja þig og ganga á hlut þinn.
23 Skirrstu ekki við að segja hug þinn þegar þér ber
[og leyn ekki speki þinni]. [
24 Af orðum má spekina þekkja
og menntun af málfari.
25 Mæl aldrei gegn sannleikanum
en fyrirverð þig fyrir fáfræði þína.
26 Blygðast þín eigi fyrir að játa syndir þínar
og reyndu eigi að stöðva árstraum.
27 Smjaðra ekki fyrir heimskum manni
og dragðu eigi taum valdhafa.
28 Legg líf þitt að veði í baráttu fyrir sannleikann,
þá mun Drottinn Guð berjast þér við hlið.
29 Ver hvorki stórlátur í orðum
né latur og hirðulaus í verkum.
30 Ver ekki ljóni líkur heima fyrir,
eigi dyntóttur við þjóna þína.
31 Hafðu ekki höndina teygða út til að þiggja
en að þér kippta er launa ber.