1 Eftir þetta heyrði ég sem sterkan ym mikils fjölda á himni. Hann sagði:
Hallelúja! Hjálpræðið, dýrðin og mátturinn kemur frá Guði vorum.
2Sannir og réttlátir eru dómar hans.
Hann hefur dæmt skækjuna miklu sem spillti jörðunni með saurlifnaði sínum
og hann hefur refsað henni fyrir að deyða þjóna sína.

3 Og aftur var sagt: „Hallelúja! Reykurinn frá henni stígur upp um aldir alda.“ 4 Og öldungarnir tuttugu og fjórir og verurnar fjórar féllu fram og tilbáðu Guð sem í hásætinu situr og sögðu: „Amen, hallelúja!“

Brúðkaup lambsins

5 Og rödd barst frá hásætinu er sagði: „Lofsyngið Guði vorum, allir þjónar hans sem óttist hann, smáir og stórir.“ 6 Og ég heyrði raddir sem frá miklum mannfjölda og sem nið margra vatna og sem gný frá sterkum þrumum. Þær sögðu: „Hallelúja, Drottinn Guð vor, hinn alvaldi, er konungur orðinn. 7 Gleðjumst og fögnum og vegsömum hann því að komið er að brúðkaupi lambsins og brúður hans hefur búið sig. 8 Henni var fengið skínandi og hreint lín til að skrýðast í. Línklæðið er dygðir heilagra.“
9 Engillinn segir við mig: „Rita þú: Sælir eru þeir sem boðið er í brúðkaupsveislu lambsins.“ Og hann segir við mig: „Þetta eru hin sönnu orð Guðs.“ 10 Og ég féll fram fyrir fætur honum til að tilbiðja hann og hann segir við mig: „Varastu þetta! Ég er samþjónn þinn og systkina[ þinna sem hafa vitnisburð Jesú. Tilbið þú Guð. Vitnisburður Jesú er andi spádómsgáfunnar.“

Sigurvegarinn á hvítum hesti

11 Þá sá ég himininn opinn. Og sjá: Hvítur hestur. Sá sem á honum sat hét Trúr og Sannur, hann dæmir og berst með réttlæti. 12 Augu hans voru sem eldslogi og á höfði hans voru mörg ennisdjásn. Og hann ber nafn ritað sem enginn þekkir nema hann sjálfur. 13 Hann var skrýddur skikkju, blóði drifinni, og nafn hans er Orðið Guðs. 14 Og hersveitirnar, sem á himni eru, fylgdu honum á hvítum hestum, klæddar hvítu og hreinu líni. 15 Og af munni hans gekk út biturt sverð til að slá þjóðirnar með og hann mun stjórna þeim með járnsprota og troða vínþröng heiftarreiði Guðs hins alvalda. 16 Og hann hefur á skikkju sinni og lend nafn ritað: „Konungur konunga og Drottinn drottna.“
17 Og ég sá einn engil standa inni í sólinni. Hann hrópaði hárri röddu til allra fuglanna sem flugu um himinhvolfið: „Komið, safnist saman til hinnar miklu máltíðar Guðs 18 til þess að eta hold konunga, herforingja og kappa og til að eta hold hesta og þeirra sem á þeim sitja og hold allra, bæði frjálsra og ófrjálsra, smárra og stórra.“
19 Og ég sá dýrið og konunga jarðarinnar og hersveitir þeirra safnaðar saman til að heyja stríð við þann sem á hestinum sat og við herlið hans. 20 Og dýrið var handtekið og ásamt því falsspámaðurinn sem hafði látið dýrið gera táknin. Með þeim hafði hann leitt þá afvega sem höfðu fengið merki dýrsins og tilbeðið líkneski þess. Þeim báðum var kastað lifandi í eldsdíkið sem logar af brennisteini. 21 Og hinir voru drepnir með sverðinu sem gekk út af munni þess sem á hestinum sat. Allir fuglarnir söddust af hræjum þeirra.