Nói gengur í örkina

1 Drottinn sagði við Nóa: „Gakktu inn í örkina og allt þitt fólk því að í mínum augum ert þú eini réttláti maðurinn af þessari kynslóð. 2 Taktu til þín sjö og sjö, karldýr og kvendýr, af öllum hreinum dýrum en tvö og tvö af þeim sem ekki eru hrein, karldýr og kvendýr, 3 og einnig sjö og sjö, karlkyns og kvenkyns, af fuglum himins til þess að viðhalda lífsstofni á allri jörðinni. 4 Að sjö dögum liðnum mun ég láta rigna á jörðina í fjörutíu daga og fjörutíu nætur og afmá af jörðinni sérhverja lifandi veru sem ég hef skapað.“
5 Og Nói gerði allt eins og Drottinn bauð honum.
6 Nói var sex hundruð ára þegar vatnsflóðið steyptist yfir jörðina.
7 Nú gengu Nói, synir hans, kona hans og tengdadætur með honum inn í örkina undan vatnsflóðinu. 8/9 Tvennt og tvennt, karlkyns og kvenkyns, af hreinum og óhreinum dýrum, fuglum og öllum skriðdýrum jarðar gekk í örkina til Nóa eins og Guð hafði boðið honum. 10 Og að liðnum sjö dögum steyptist vatnsflóðið yfir jörðina.

Vatnsflóðið skellur á

11 Á sautjánda degi annars mánaðar á sex hundraðasta aldursári Nóa, þann dag brutust fram allar uppsprettur hins mikla djúps og flóðgáttir himinsins opnuðust. 12 Það rigndi á jörðina í fjörutíu daga og fjörutíu nætur. 13 Einmitt þann dag gengu Nói, Sem, Kam og Jafet, synir Nóa, og kona Nóa ásamt þremur tengdadætrum hans í örkina, 14 þau og öll dýr merkurinnar eftir sínum tegundum, allur búfénaður eftir sínum tegundum og öll skriðdýr jarðar eftir sínum tegundum, allir fuglar eftir sínum tegundum og allt það sem flogið gat og vængi hafði. 15 Þau komu í örkina til Nóa tvö og tvö, öll dýr sem lífsanda drógu. 16 Þau sem inn gengu voru karlkyns og kvenkyns af öllum dýrum eins og Guð hafði boðið Nóa.
Og Drottinn lokaði á eftir honum.
17 Flóðið stóð í fjörutíu daga á jörðinni og vötnin jukust og lyftu örkinni svo hún hófst hátt yfir jörðina. 18 Vötnin mögnuðust og jukust stórum á jörðinni en örkin flaut á vatninu. 19 Vötnin uxu enn á jörðinni og huldu öll hin háu fjöll sem eru undir himninum. 20 Vötnin stigu enn um fimmtán álnir og huldu öll fjöll. 21 Þá fórust öll dýr sem hreyfast á jörðinni, fuglar, búfénaður, dýr merkurinnar og allt sem jörðin er kvik af og mannkyn allt. 22 Allt sem lífsanda dró, allt sem var á þurru landi, dó. 23 Allt líf á jörðinni var afmáð, bæði menn og dýr, skriðdýr og fuglar himins. Þau voru máð af jörðinni. En Nói varð einn eftir og þau sem með honum voru í örkinni.
24 Vötnin mögnuðust á jörðinni í hundrað og fimmtíu daga.