Nýjar lögmálstöflur

1 Drottinn sagði við Móse: „Högg þér tvær steintöflur eins og hinar fyrri. Ég mun rita á þessar töflur orðin sem stóðu á fyrri töflunum sem þú molaðir sundur. 2 Vertu tilbúinn á morgun. Þá skaltu ganga árla upp á Sínaífjall og staðnæmast hjá mér þar á fjallstindinum. 3 Enginn annar maður má koma upp með þér og enginn maður má sjást nokkurs staðar á fjallinu. Sauðfé og naut mega hvergi vera á beit í fjallshlíðinni.“
4 Móse hjó tvær steintöflur eins og hinar fyrri. Hann var snemma á fótum morguninn eftir og gekk upp á Sínaífjall eins og Drottinn hafði boðið honum og hélt á báðum steintöflunum. 5 Drottinn steig niður í skýi og nam staðar þar hjá Móse. Hann hrópaði nafn Drottins. 6 Drottinn gekk fram hjá honum og hrópaði: „Drottinn, Drottinn er miskunnsamur og náðugur Guð, seinn til reiði, gæskuríkur og trúfastur. 7 Hann sýnir þúsundum gæsku, fyrirgefur misgjörðir, afbrot og syndir en lætur hinum seka ekki óhegnt heldur lætur afbrot feðranna bitna á börnum og barnabörnum í þriðja og fjórða lið.“
8 Móse lét sig þegar í stað falla til jarðar 9 og sagði: „Hafi ég fundið náð fyrir augum þínum, Drottinn, komdu þá með okkur, Drottinn. Þótt þetta sé harðsvíruð þjóð, fyrirgefðu okkur sekt okkar og syndir og gerðu okkur að eign þinni.“

Sáttmálinn

10 Drottinn sagði: „Nú geri ég sáttmála. Ég ætla að gera þau kraftaverk frammi fyrir þjóð þinni sem aldrei áður hafa verið gerð í neinu landi eða hjá neinni annarri þjóð. Allt fólkið, sem með þér er, skal sjá verk Drottins. Það sem ég ætla nú að gera fyrir þig er ógnvekjandi. 11 Haltu það sem ég býð þér í dag. Ég mun hrekja á undan þér Amoríta, Kanverja, Hetíta, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta.
12 Gættu þess að gera ekki sáttmála við íbúa þess lands sem þú kemur til svo að þeir verði þér ekki að tálsnöru mitt á meðal ykkar. 13 Þú skalt rífa niður ölturu þeirra, brjóta merkisteina þeirra og höggva niður Asérustólpa þeirra.
14 Þú skalt ekki falla fram fyrir neinum öðrum guði því að nafn Drottins er „Hinn vandláti“, hann er vandlátur Guð. 15 Þú skalt ekki gera sáttmála við íbúa landsins. Þegar þeir hórast með guðum sínum og færa guðum sínum sláturfórnir munu þeir bjóða þér og þá muntu neyta fórna þeirra. 16 Takirðu dætur þeirra sem eiginkonur handa sonum þínum munu dætur þeirra halda fram hjá með guðum sínum og fá syni þína til að hórast með guðum sínum.
17 Þú skalt ekki gera þér steypta guði.
18 Þú skalt halda hátíð hinna ósýrðu brauða. Þú skalt eta ósýrt brauð í sjö daga á ákveðnum tíma í abíbmánuði eins og ég hef boðið þér því að í abíbmánuði fórst þú frá Egyptalandi.
19 Allt sem opnar móðurlíf er mitt og allt það sem er karlkyns af fénaði þínum, frumburðir nauta og sauðfjár. 20 Frumburð asna getur þú leyst með lambi en viljir þú ekki leysa hann skaltu hálsbrjóta hann. Þú skalt leysa sérhvern frumburð sona þinna og enginn tómhentur skal koma fyrir auglit mitt.
21 Sex daga skaltu vinna en hvílast sjöunda daginn, hvort heldur er tími plægingar eða uppskeru.
22 Þú skalt halda viknahátíðina, hátíð frumgróða hveitiuppskerunnar og hátíð ávaxtauppskerunnar við áramót.
23 Þrisvar á ári skal allt karlkyn meðal þín birtast fyrir augliti Drottins, Guðs Ísraels. 24 Þegar ég hef hrakið burt aðrar þjóðir undan þér og fært út landamæri þín skal enginn ásælast land þitt þegar þú, þrisvar á ári, ferð upp eftir til að birtast fyrir augliti Drottins, Guðs þíns.
25 Þú skalt ekki slátra og bera fram blóð sláturfórnar minnar með sýrðu brauði. Sláturfórn páskahátíðarinnar má ekki liggja yfir nótt til morguns.
26 Þú skalt færa það besta af frumgróða jarðar þinnar til húss Drottins, Guðs þíns.
Þú mátt ekki sjóða kið í mjólk móður sinnar.“
27 Drottinn sagði við Móse: „Skráðu þessi fyrirmæli því að samkvæmt þeim geri ég sáttmála við þig og Ísrael.“ 28 Móse var með Drottni fjörutíu daga og fjörutíu nætur án þess að neyta brauðs eða vatns og hann skráði á töflurnar orð sáttmálans, boðorðin tíu.

Ljómi af andliti Móse

29 Þegar Móse var á leiðinni niður af Sínaífjalli með báðar töflurnar í höndum sér vissi hann ekki að ljómi stóð af andliti hans því að hann hafði talað við Drottin. 30 En Aron og allir Ísraelsmenn sáu að ljómi stóð af andliti hans svo að þeir þorðu ekki að koma nærri honum. 31 Þá kallaði Móse á þá og Aron og allir leiðtogar safnaðarins sneru aftur til hans og Móse ávarpaði þá. 32 Síðan komu allir aðrir Ísraelsmenn nær og hann skýrði þeim frá öllu því sem Drottinn hafði boðið honum á Sínaífjalli. 33 Þegar Móse hafði lokið máli sínu huldi hann andlit sitt með skýlu. 34 En þegar Móse gekk fyrir auglit Drottins til að tala við hann tók hann af sér skýluna þar til hann gekk út aftur. Síðan gekk hann út og sagði Ísraelsmönnum frá því sem honum hafði verið falið. 35 Þegar Ísraelsmenn sáu andlit Móse sáu þeir að ljómi stóð af andliti hans. Þá huldi Móse andlit sitt aftur með skýlu þar til hann fór til að tala við Drottin.