1 Til söngstjórans. Davíðssálmur.
Heimskinginn segir í hjarta sínu:
„Enginn Guð.“
Ill og andstyggileg er breytni þeirra,
enginn gerir það sem gott er.
2Drottinn horfir á mennina
af himnum ofan
til þess að sjá hvort nokkur sé hygginn,
nokkur sem leiti Guðs.
3Allir hafa þeir vikið af leið,
allir eru spilltir,
enginn gerir það sem gott er, ekki neinn.
4Skilja þeir þá ekkert, þessir illvirkjar?
Þeir seðja sig á lýð mínum, eta hann sem brauð
og ákalla ekki Drottin.
5Síðan skjálfa þeir af hræðslu
því að Guð er með réttlátum.
6Þér gerið áform hins snauða að engu
en Drottinn er honum athvarf.
7Ó, að Ísrael berist hjálp frá Síon.
Þegar Drottinn snýr við hag lýðs síns
mun Jakob fagna, Ísrael gleðjast.