Afreksverk Samsonar

1 Að nokkrum tíma liðnum kom Samson um hveitiuppskerutímann að vitja konu sinnar og hafði með sér kiðling. Hann sagði við föður hennar: „Hleyptu mér inn í afhýsið til konu minnar.“ En faðir hennar vildi ekki hleypa honum þangað inn. 2 Faðir hennar sagði: „Ég var þess fullviss að þú hefðir fengið megna óbeit á henni og gifti hana því brúðarsveini þínum. Yngri systir hennar er fríðari en hún, hana skaltu fá í hennar stað.“ 3 Þá sagði Samson: „Nú geta Filistear ekki ásakað mig þótt ég vinni þeim mein.“ 4 Síðan fór Samson og veiddi þrjú hundruð refi, tók blys, lét skottin á þeim vísa saman og batt eitt blys á hver tvö skott. 5 Síðan kveikti hann í blysunum og sleppti því næst refunum inn á akra Filistea og brenndi þannig bæði kornknippi, óslegið korn, víngarða og olíugarða. 6 Þá sögðu Filistear: „Hver hefur gert þetta?“ Og menn svöruðu: „Samson, tengdasonur mannsins frá Timna, því að hann hefur tekið frá honum konuna og gift hana brúðarsveini hans.“ Þá fóru Filistear til hans og brenndu hana inni og föður hennar. 7 En Samson sagði við þá: „Fyrst þið farið svona að mun ég ekki hætta fyrr en ég hef hefnt mín á ykkur að fullu.“ 8 Síðan barði hann svo óþyrmilega á þeim að sundur gengu læri og leggir. Og hann fór þaðan og settist að í hellinum í Etamskletti.
9 Þá fóru Filistear upp eftir, settu herbúðir sínar í Júda og dreifðu sér um Lekí. 10 Júdamenn sögðu: „Hví hafið þið snúist gegn okkur?“ En þeir svöruðu: „Við erum hingað komnir til þess að binda Samson svo að við getum farið með hann eins og hann hefur farið með okkur.“ 11 Þá fóru þrjú þúsund manns frá Júda niður til Etamskletts og sögðu við Samson: „Veistu ekki að Filistear drottna yfir okkur? Hvers vegna hefur þú gert okkur þetta?“ Hann svaraði þeim: „Á sama hátt og þeir léku mig, þannig hef ég leikið þá.“ 12 Þeir sögðu við hann: „Við erum komnir hingað til að binda þig svo að við getum framselt þig í hendur Filistea.“ Þá sagði Samson við þá: „Vinnið mér eið að því að þið munið ekki drepa mig sjálfir.“ 13 Þeir svöruðu honum: „Við munum aðeins binda þig og láta þig í hendur þeirra en við munum ekki drepa þig.“ Þeir bundu hann með tveimur nýjum reipum og fóru með hann burt frá klettinum.
14 Þegar Samson kom til Lekí komu Filistear með miklu ópi á móti honum. Þá kom andi Drottins yfir hann og urðu þá reipin, sem voru um armleggi hans, sem sviðnir þræðir og fjötrarnir hrukku af höndum hans. 15 Hann fann nýjan asnakjálka, rétti út höndina og tók hann og laust með honum þúsund manns. 16 Þá sagði Samson:
Með asnakjálka
setti ég hrauk á hrauk ofan, [
með asnakjálka
hef ég banað þúsund manns.

17 Að svo mæltu varpaði hann kjálkanum úr hendi sér og var þessi staður upp frá því nefndur Ramat Lekí.[
18 En Samson var mjög þyrstur og hrópaði því til Drottins og mælti: „Þú hefur veitt þennan mikla sigur fyrir hönd þjóns þíns. Á ég nú að deyja úr þorsta og falla í hendur óumskorinna manna?“ 19 Þá klauf Guð holuna sem var í Lekí svo að vatn spratt fram úr henni. Þegar hann hafði drukkið kom andi hans aftur og hann lifnaði við. Þess vegna er hún nefnd En hakkóre[ í Lekí fram á þennan dag. 20 En Samson var dómari í Ísrael tuttugu ár á dögum Filistea.